Stefnir í að umsóknir um vernd hérlendis verði færri en þær hafa verið frá 2015

Þótt fleiri flótta­menn fái nú vernd en áður á Íslandi þá hefur umsækj­endum verið að fækka. Tæplega helm­ingur þeirra sem fá að vera hér­lendis eftir að hafa hrak­ist hingað á flótta koma frá Venes­ú­ela eða Írak.

Frá mótmælum flóttamanna sem sótt höfðu um vernd hérlendis sem fóru fram í febrúar 2019.
Frá mót­mælum flótta­manna sem sótt höfðu um vernd hér­lendis sem fóru fram í febr­úar 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 sóttu 514 ein­stak­lingar um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Haldist sú þróun sem verið hefur að með­al­tali á árinu áfram mun fjöldi umsókna verða sá minnsti í ár frá árinu 2015, þegar þær voru 354 tals­ins.

[links]Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn spilar þar hlut­verk enda sóttu ein­ungis tíu manns um vernd hér­lendis í apríl og maí, á meðan að Ísland var að mestu lokað fyrir umheim­inum vegna fyrstu bylgju hans sem gekk þá yfir. Jafnvel þótt að fjöldi umsækj­enda yrði sá sami og í sept­em­ber, þegar 80 sóttu um vernd, hvern þeirra mán­aða sem eftir lifa árs­ins þá myndi fjöldi umsækj­enda samt áfram verða sá lægsti síðan 2015.

Þetta má lesa út úr tölum sem vernd­ar­svið Útlend­inga­stofn­unar birtir mán­að­ar­lega.

Flestir sóttu um vernd komu frá Venes­ú­ela en í gildi eru til­mæli frá Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um það að þeir sem komi þaðan séu í þörf fyrir vernd. Alls hafa 102 ein­stak­lingar þaðan sótt um vernd á Íslandi það sem af er ári, eða um 20 pró­sent allra umsækj­enda. Næst flestir koma frá Írak, en þeir sem koma þaðan og óska eftir hæli hér­lendis fá flestir vernd. Alls hafa 79 Írakar sótt eftir vernd á Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020. Það þýðir að 35 pró­sent allra umsækj­enda koma frá þessum tveimur löndum.

[adspot]Þrátt fyrir að umsækj­endum sé að fækka er fjöldi þeirra sem fær vernd hér­lendis að aukast. Hann hefur aldrei verið jafn mik­ill og í ár þegar alls 405 hafa hlotið slíka. Ástæðan er aftur fjöldi þeirra sem koma hingað frá Venes­ú­ela (128 hafa fengið vernd í ár) og Írak (55 hafa fengið vernd í ár). Samtals eru flótta­menn frá þessum tveimur löndum 45 pró­sent af þeim sem hlotið hafa vernd á Íslandi það sem af er árinu 2020.

Mikil fjölgun umsókna árið 2016

Spreng­ing varð í umsóknum um vernd á Íslandi á árinu 2016, þegar þeim fjölg­aði úr 354 í 1.132. Það er enn metár í fjölda umsókna. Þrátt fyrir að fjöldi umsókna það árið hefði auk­ist svona mikið fengu ein­ungis 111 flótta­menn vernd hér­lendis á því.

Staðan var svipuð árið eftir, 2017. Þá voru umsókn­irnar 1.096 og 135 manns fengu alþjóð­lega vernd. Stór hluti þess hóps sem sótt­ist eftir vernd hér­lendis á þessu ári voru frá ríkjum sem flokkuð eru sem örugg, og þá sér­stak­lega frá Albaníu (þaðan sem 290 manns komu og sóttu um vernd) og Georgíu (þaðan sem 276 komu og sóttu um vernd). Einungis þrír úr hvorum hópnum fyrir sig hlaut vernd hér­lendis á árinu 2017.

Á árinu 2018 hélt sú þróun áfram að færri, alls 800, umsóknir bár­ust um vernd en fleirum, alls 160, var veitt slík.

Í fyrra voru umsókn­irnar 867 en 376 fengu jákvæða nið­ur­stöðu í efn­is­með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun.

Kostnaður ríkisins stöðugur milli ára

Vert er að taka fram að á hverju ári fyrir sig hefur einnig nokkur fjöldi fengið alþjóð­lega vernd eða mann­úð­ar­leyfi eftir með­ferð mála hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála. Það sem af er árinu 2020 hafa 52 ein­stak­lingar hlotið slíka vernd.

Kostn­aður rík­is­ins við það sem er kallað „útlend­inga­mál“ í ár er áætl­aður um fjórir millj­arðar króna. Það er mjög svipuð upp­hæð og kostn­að­ur­inn hefur verið und­an­farin ár.

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2021 er reiknað með að kostn­að­ur­inn verði rétt undir fjórum millj­örðum króna á næsta ári og muni hald­ast á þeim slóðum út árið 2023.

Aldrei fleiri kvótaflóttamenn

Til við­bótar tekur Ísland við svoköll­uðum kvótaflótta­mönnum. Það er sá hópur sem Flótta­­manna­­stofnun Sam­ein­uðu Þjóð­anna óskar eftir að þjóðir heims taki á móti vegna stríðs­á­stands í heima­landi þeirra.

Íslend­ingar hafa tekið á móti kvótaflótta­­mönnum frá 13 löndum: Ung­verja­landi, Júgóslavíu, Víetnam, Pól­landi, Krajina, Kosovo, Kól­umbíu, Írak, Afganistan, Simbabve, Úganda, Kamerún og Sýr­landi. 
Meðal íslenskra sveit­­ar­­fé­laga sem tekið hafa á móti flótta­­fólki eru Ísa­­fjörð­­ur, Horna­­fjörð­­ur, Blönd­u­ós, Fjarð­­ar­­byggð, Dal­vík, Siglu­­fjörð­­ur, Akur­eyri, Reykja­­nes­­bær, Akra­­nes, Hafn­­ar­­fjörð­­ur, Kópa­vogur og Reykja­vík. Nýlega bætt­ist Garðabær, Sel­tjarn­ar­nes og Mos­fells­bær við.

Ísland tók á móti 765 kvótaflótta­­mönnum frá árinu 1956 til loka árs 2019. Á 63 árum tókum við því á móti um tólf á ári að með­­al­tali. Langmest aukn­ingin hefur verið á allra síð­ustu árum og í ár átti að taka við 85 alls, sem er met­fjöldi. Það met var bætt enn frekar í sept­em­ber þegar rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti að Ísland taki á móti alls 15 flótta­mönnum frá Lesbos á Grikk­landi, með áherslu á sýr­lenskar fjöl­skyldur í við­kvæmri stöðu. Því fór fjöldi kvótaflótta­manna sem tekið var á móti hér­lendis í fyrsta sinn í þriggja stafa tölu á árinu 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár