Bjarni tekur undir áhyggjur Ásmundar Friðrikssonar af kostnaði við hælisleitendur

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tekur undir áhyggjur Ásmundar Frið­riks­sonar um að kostn­aður vegna umsókna um alþjóð­lega vernd sé mik­ill. Hann segir að reyna ætti að flýta afgreiðslu umsókna sem aug­ljós­lega verði ekki sam­þykktar.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gerir ekki athuga­semdir við Facebook-færslur Ásmundar Frið­riks­sonar þing­manns flokks­ins um komur hæl­is­leit­enda til Íslands, sem hafa vakið athygli að und­an­förnu.

Hann seg­ist telja að þing­mað­ur­inn sé að benda á að á sama tíma og illa gangi að afgreiða beiðnir umsækj­enda um alþjóð­lega vernd falli til „gríð­ar­lega mik­ill kostn­aður“, sem sé slæmt, ekki síst þegar verið sé að reka rík­is­sjóð með 260 millj­arða halla. Þessu seg­ist Bjarni sam­mála.

Þetta kom fram í við­tali við Bjarna í hádeg­is­fréttum RÚV í dag, en þar sagði fjár­mála­ráð­herra einnig að það ætti að reyna að hraða máls­með­ferð hjá þeim umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem „munu aug­ljós­lega ekki fá jákvæða nið­ur­stöðu í sín mál.“ Í dag væri ríkið að jafn­aði að halda um það bil 500 manns uppi á hverjum tíma og verði til þess um 4 millj­örðum á ári.

„[V]ið verðum að horfa í þessar tölur um leið og við höfum skýra afstöðu til þess að við Íslend­ingar ætlum að axla okkar ábyrgð með öðrum löndum í heim­inum til þess að koma þeim til aðstoðar sem eru að flýja hörmu­legar aðstæður,“ sagði Bjarni.

Ásmundur Frið­riks­son hefur að und­an­förnu birt færslur á Facebook þar sem hann greinir frá komum hæl­is­leit­enda til lands­ins, svo gott sem í raun­tíma. Á sunnu­dag­inn, 11. októ­ber, birti hann síð­ast slíka færslu og sagði þá að síð­ustu þrjár vik­urnar hefðu 54 hæl­is­leit­endur komið til lands­ins og reikn­aði út að það myndi kosta ríkið á fjórða hund­rað millj­ónir króna.[links]

Hann hefur ekki viljað segja hvaðan hann fær upp­lýs­ing­arnar um komur fólks­ins hingað til lands, sem liggja ekki opin­ber­lega fyrir. Í við­tali við Kjarnann fyrr í vik­unni sagð­ist hann hafa fengið sím­töl og skila­boð um að til­tek­inn fjöldi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hefði komið til lands­ins um Kefla­vík­ur­flug­völl.

Ásmundur telur að sumir hæl­is­leit­endur komi hingað til lands á fölskum for­sendum til þess að sækj­ast eftir betra lífi – betra lífs­við­ur­væri og lífs­kjör­um. „Það fólk á auð­vitað að koma hingað á öðrum for­send­um. Það á að sækja um land­vist­ar­leyfi og vinnu. Fá atvinnu­leyfi eins og útlend­ingar þurfa að gera. Og þá þurfa þeir að gera það áður en þeir koma til lands­ins, ekki éta vega­bréfið sitt á leið­inn­i,“ sagði Ásmundur.

Þing­mað­ur­inn hefur verið gagn­rýndur fyrir orð­ræðu sína í garð þeirra sem hingað koma og sækja um alþjóð­lega um vernd nokkuð reglu­lega á und­an­förnum árum, ekki síst fyrir að stilla umræð­unni upp með þeim hætti að Íslend­ingar eigi nóg með sig sjálfa.

„Þreng­ingar eru á hús­næð­is­mark­aði. Heima­fólk er sett á göt­una á meðan margar íbúð­ir, gisti­heim­ili og gamlir skólar eru setin hæl­is­leit­end­um. Nábýlið við suma þeirra er svo eld­fimt að það dugar ekki minna en sér­sveit lög­regl­unnar ef stilla þarf til frið­ar,“ skrif­aði Ásmundur í Morg­un­blaðs­grein fyrir þremur árum síðan, þegar efna­hags­á­standið á Íslandi var allt annað og mun betra en það er í dag.

Nú seg­ist Ásmundur telja að Íslend­ingar eigi nóg með sig vegna COVID-krepp­unnar og sagði þing­mað­ur­inn við Kjarnann í vik­unni að honum þætti „rétt að taka þráð­inn aðeins upp“ og ræða um kostnað vegna hæl­is­leit­enda, eftir að hafa lagt sig fram um að hafa frið í stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks við Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk und­an­farin þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár