Algjört lykilatriði að ná smitstuðlinum undir 1

Áætlað er að smit­stuð­ull utan sótt­kvíar sé í dag 1,4 á Íslandi. Á meðan að þessi tala er yfir einum er óvissa til staðar um þróun far­ald­urs­ins og hann gæti farið í veld­is­vöxt. Þátttaka í sótt­varn­ar­að­gerðum er það sem nær smit­stuðl­inum niður.

Thor Aspelund prófessor í líftölfræði og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í vor.
Thor Aspelund pró­fessor í líf­töl­fræði og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í vor. Mynd: EPA

Ef þær sótt­varn­ar­að­gerðir sem nú eru í gildi hafa svipuð áhrif og þegar þeim var beitt í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, smitrakn­ing heldur í við far­ald­ur­inn og helm­ingur þeirra sem grein­ast smituð verða þegar í sótt­kví, ætti smitum að taka að fækka á næstu 10 dögum.

Þetta kemur fram í bjart­sýn­ari sviðs­mynd af tveimur sem dregnar eru upp í upp­færðu spálík­ani vís­inda­fólks frá Háskóla Íslands, emb­ætti land­læknis og Land­spít­ala, sem birt­ist í dag.

Lyk­il­at­riði er að smit­stuð­ull veirunnar utan sótt­kvíar lækki undir einn, en í dag er hann áætl­aður 1,4, sem þýðir að hver sá sem grein­ist utan sótt­kvíar smiti að með­al­tali 1,4 aðra.

Hann hefur farið lækk­andi frá því að sam­komu­tak­mark­anir voru hertar 7. októ­ber en miðað við núver­andi stöðu má þó gera ráð fyrir að nokkur fjöldi fólks hafi smit­ast síð­ustu daga og muni grein­ast á næstu dögum. Innan sótt­kvíar er smit­stuð­ull­inn áætl­aður 0,6.

„Það er mik­il­vægt að hlut­fall grein­inga í sótt­kví fari hækk­andi og gegnir öflug smitrakn­ing lyk­il­hlut­verki í því. Það er einnig mik­il­vægt að sam­fé­lagið allt fylgi til­mælum um sótt­varnir þannig að fjöldi greindra ein­stak­linga utan sótt­kvíar lækki. Þannig gætum við séð smit­stuð­ull­inn lækka á næstu vikum. Í þeirri stöðu verður hægt að spá til lengri tíma um hámark og hvernig bylgjan muni hnigna,“ segir í þess­ari nýju rýni spáteym­is­ins.

Hvað ef aðgerðirnar hrífa ekki?

Í hinni sviðs­mynd­inni, sem lítur ekki jafn vel út, er gengið út frá því að núver­andi aðgerðir hafi ekki áhrif á smit­stuð­ul­inn, til dæmis vegna lak­ari þátt­töku almenn­ings í sótt­vörnum en raunin var í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og að hann hald­ist svip­aður áfram.

Þó er gert ráð fyrir því að smitrakn­ing verði áfram öflug og helm­ingur smit­aðra verði í sótt­kví við grein­ingu. Í þess­ari sviðs­mynd er meiri óvissa um þró­un­ina og smitum gæti allt eins fjölgað á næstu 10 dögum.

Nið­ur­staðan í rýni vís­inda­fólks­ins um mögu­lega þróun er sú að það sé algjört grund­vall­ar­at­riði að smit­stuð­ull­inn fari undir 1. 

„Meðan hann er yfir 1, er til staðar ástand þar sem smit geta auð­veld­lega blossað upp og þróað far­ald­ur­inn í veld­is­vísis­vöxt. Það sem hefur áhrif á smit­stuð­ul­inn er okkar hegðun,“ segir spálík­an­steymið og bætir við að ef þátt­taka í aðgerðum sé góð og fólk passi upp á smit­varnir, þá muni að ná far­aldr­inum niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár