Uppboð á aflaheimildum í Namibíu mistókst og skilaði sáralitlum tekjum

Stjórn­völd í Namibíu náðu ein­ungis að inn­heimta 1,3 pró­sent af þeirri upp­hæð sem þau ætl­uðu sér að ná í með upp­boði á afla­heim­ildum til að veiða meðal ann­ars hrossa­makríl.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Frá Windhoek, höf­uð­borg Namibíu. Mynd: Pexels

Uppboð á afla­heim­ildum til að veiða meðal ann­ars hrossa­makríl í Namibíu fór mun verr en stjórn­völd þar höfðu lagt upp með. Þegar þær voru boðnar út í ágúst síð­ast­liðnum var greint frá því að þær myndu skila 628 millj­ónum namibískra dala, um 5,8 millj­arða króna, í tekjur fyrir namibísk stjórn­völd.

Nið­ur­staðan varð hins vegar sú að ein­ungis fimm bjóð­endur greiddu fyrir þann kvóta sem þeir skráðu sig fyrir og 1,3 pró­sent af ætl­aðri upp­hæð skil­aði sér í rík­is­kass­ann hjá namibískum stjórn­völdum, eða um 78 millj­ónir króna. Frá þessu var greint nýverið í dag­blað­inu Namibian.

Kjarninn greindi frá því í júní að stjórn­völd í Namibíu stefndu að upp­boði afla­heim­ilda, meðal ann­ars hrossa­mak­ríl­skvóta, sem áður var á hendi dótt­ur­fé­lags Sam­herja í land­inu. Sá kvóti var svo boð­inn upp í ferli sem hófst um miðjan ágúst og lauk í byrjun sept­em­ber.

Þetta var í fyrsta sinn sem namibíska ríkið bauð upp kvóta á mark­aði, en árum saman hefur stórum hluta afla­heim­ilda verið úthlutað til rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, sem sá svo um að úthluta kvót­anum áfram.

[adspot]Samkvæmt frétt Namibian þá telja stjórn­völd í Namibíu að skemmd­ar­verk hafi verið unnin á upp­boðs­ferl­inu. Nú lægi þó fyrir, í ljósi þess að áhuga­samir hefðu boðið 628 millj­ónir namibískra dala í heim­ild­irnar, hvers virði þær væru, að mati sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins, Albert Kawana.

Fjár­mála­ráð­herra Namibíu, Lipumbu Shiimi, sagði að stjórn­völd teldu enn að upp­boð á kvóta væri rétta leiðin til að fá sann­virði fyrir auð­lind­irnar. Þetta hafi verið í fyrsta sinn sem upp­boð hafi verið haldið og að undir eðli­legum kring­um­stæðum hefðu stjórn­völd getað fengið tvö­falda þá upp­hæðar sem var greidd hefði verið fyrir kvót­ann ef hann hefði ekki verið boð­inn upp.

[links]Af þeim 111 sem buðu í kvót­ann í fyrstu umferð þá náðu ein­ungis 33 bjóð­endur inn á loka­lista stjórn­valda yfir kaup­endur. Af þeim þá gátu ein­ungis fimm greitt það sem þeir buðu innan þess tíma sem stjórn­völd höfðu gefið þeim.

Þá var ráð­ist í aðra umferð og til­boðum tekið í kvóta upp á 464 millj­ónir namibískra dala frá alls 18 manns. Af þeim 18 borg­uðu ein­ungis þrír innan til­skil­ins tíma. Í frétt Namibian sgir að flestir þeirra sem buðu hafi ekki átt skip til að veiða kvót­ann og að þeir leik­endur í sjáv­ar­út­vegi sem eigi slík hafi ákveðið að taka ekki þátt.

Namibíska ríkið er nú í veru­legum efna­hag­skröggum og þarf nauð­syn­lega á gjald­eyri að halda til þess að geta orðið sér úti um nauð­synjar til að fást við COVID-19 far­ald­ur­inn í land­inu.

Í júlí­mán­uði leit­aði ríkið eftir neyð­ar­láni frá Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðn­um að and­virði tæp­lega 35 millj­arða íslenskra króna til þess að fást við far­ald­ur­inn og afleið­ingar hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár