Bjóða upp aflaheimildir til þess að kjást við COVID-19

Namibísk yfir­völd ætla sér að bjóða upp hluta afla­heim­ilda, meðal ann­ars 60 pró­sent hrossa­makríl­skvót­ans sem stjórn­völd hafa til úthlut­unar. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins segir nauð­syn­legt að ná inn gjald­eyri til að fást við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Frá Windhoek, höf­uð­borg Namibíu. Mynd: Pexels

Albert Kawana sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu hefur sent aðilum í sjáv­ar­út­vegi þar í landi bréf og beðið þá um að búa sig undir að afla­heim­ildir fyrir þrjár fisk­teg­undir verði boðnar upp til hæst­bjóð­enda á mark­aði. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann segir, sam­kvæmt fréttum bæði Namibian og Reuters, að upp­boðs­leiðin verði farin til þess að safna erlendum gjald­eyri svo mögu­legt sé að kaupa lyf og sjúkra­gögn til þess að fást við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Fyrr í sumar bár­ust fregnir frá Namibíu þess efnis að stjórn­völd stefndu að upp­boði afla­heim­ilda, meðal ann­ars hrossa­makríl­skvóta, sem áður var á hendi dótt­ur­fé­lags Samherja í land­inu. Sá kvóti fer nú á upp­boð, rétt eins og afla­heim­ildir í lýs­ingi og skötu­sel.

Þetta er í fyrsta sinn sem namibíska ríkið býður upp kvóta á mark­aði, en árum saman hefur stórum hluta afla­heim­ilda verið úthlutað til rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, sem sá svo um að úthluta kvót­anum áfram.

Samkvæmt frétt Namibían munu 60 pró­sent af hrossa­makríls- og lýs­ingskvót­anum verða seld til hæst­bjóð­anda, en 40 pró­sent munu fara til fyr­ir­tækja sem starfa í Namibíu á „mun lægri verðum“ til þess að tryggja atvinnustig í land­inu, sam­kvæmt sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum. Allur skötuselskvót­inn fer hins vegar á upp­boð.

Tortryggnisraddir heyrast

Ein­hverrar tor­tryggni virð­ist gæta í Namibíu vegna þess­ara áforma yfir­valda og hefur Namibian eftir ónafn­greindum aðila sem starfar í namibískum sjáv­ar­út­vegi að með þessu sé verið að opna á það að erlend skip geti fengið kvóta á kostnað heima­manna sem sitji verk­efna­lausir á meðan. Annar segir að hann bíði bara eftir því að stjórn­mála­menn fari að maka krók­inn á kvóta­út­boð­inu með ein­hverjum hætti.

[adspot]

Kawana sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra vísar þessu á bug og segir að gætt verði að gagn­sæi við upp­boðið og tekjur af kvót­anum verði birtar opin­ber­lega. Einnig segir hann að krafa verði gerð um að skip sem skrá­sett eru í Namibíu veiði kvót­ann.

Namibíska ríkið er nú í veru­legum efna­hag­skröggum og þarf nauð­syn­lega á gjald­eyri að halda til þess að geta orðið sér úti um nauð­synjar til að fást við COVID-19 far­ald­ur­inn í land­inu, en þar hafa um 3.000 sýkst og 19 lát­ist til þessa, sam­kvæmt tölum sem birtar voru á sunnu­dag.

Í júlí­mán­uði leit­aði ríkið eftir neyð­ar­láni frá Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðnum að and­virði tæp­lega 35 millj­arða íslenskra króna til þess að fást við far­ald­ur­inn og afleið­ingar hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár