Namibísk yfirvöld ætla að bjóða upp kvótann sem áður fór til Fishcor

Namibíska rík­is­stjórnin ætlar sér að setja þann kvóta sem áður var úthlutað til rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor á upp­boð. Þetta er gert til að fá auknar tekjur af afla­heim­ild­unum og auka gagn­sæi, segir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins.

Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu.
Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu. Mynd: Skjáskot frá upptöku Al Jazeera

Namibíska rík­is­stjórnin ætlar að byrja að bjóða upp afla­heim­ildir sem áður var úthlutað til rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor. Þetta er haft eftir Albert Kawana sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins í dag­blað­inu Namibian í dag.

Kawana segir að upp­boðs­leiðin sem namibísk yfir­völd ætla að fara muni tryggja rík­inu auknar tekjur til þess að fjár­magna sam­fé­lags­leg verk­efni og auka gagn­sæi við úthlutun afla­heim­ilda.

Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins, sem nú situr ásamt sex öðrum í gæslu­varð­haldi vegna ásak­ana um spill­ingu og mútu­þægni í tengslum við úthlutun kvóta, kom fyrra fyr­ir­komu­lagi á árið 2014. Alls úthlut­aði ráð­herr­ann 360 þús­und tonnum af hrossa­makríl­kvóta til Fishcor frá 2014 og fram á síð­asta ár.

Hluti þessa kvóta var seldur til félags í eigu Samherja og grunur leikur á að íslenska fyr­ir­tækið hafi greitt mútur til að fá þann kvóta á frá Fishcor á lægra verði en eðli­legt hefði verið, eins og fram kom í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks um Sam­herj­a­skjölin í nóv­em­ber í fyrra.

Með Esau í gæslu­varð­haldi er meðal ann­ars James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Fishcor. Sam­an­lagt eru þeir sjö sem hand­teknir hafa verið vegna máls­ins ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­ónir namibískra doll­ara, jafn­virði yfir 800 millj­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að hafa tryggt félögum tengdum Samherja umræddan hrossa­makríl­skvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár