„Faraldurinn er í vexti“ – Fólk á þrítugsaldri á sjúkrahúsi

Dæmi eru um að fólk á þrí­tugs­aldri hafi lagst inn á sjúkra­hús í þess­ari þriðju bylgju far­ald­urs­ins. Engin merki eru um að veiran sé væg­ari nú en áður. Í gær greindust 59 smit – og vís­bend­ingar eru um að far­ald­ur­inn sé í veld­is­vexti.

Vinnu­staðir, sam­komur vina og fjöl­skyldna, krár og lík­ams­rækt­ar­stöðvar eru þeir staðir og aðstæður þar sem fólk er helst að smit­ast af kór­ónu­veirunni þessa dag­ana. „Far­ald­ur­inn er í vexti,“ segir sótt­varna­læknir og að yfi­r­á­lag gæti orðið á heil­brigð­is­kerfið ef ekk­ert verður að gert. Engin merki eru um að veiran sé veik­ari nú en áður.

670 eru nú með COVID-19 og í ein­angrun. Fimmtán eru á sjúkra­húsi, þar af þrír á gjör­gæslu­deild. Í gær greindust 59 ný smit en meiri­hlut­inn var í sótt­kví við grein­ingu. Fjórtán daga nýgengi á hverja 100 þús­und íbúa er nú 156,3.

„Far­ald­ur­inn er áfram í vexti,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í morgun. Stundum virð­ist hann vera að fara í veld­is­vöxt, sagði hann.

Hópar sem hafa verið að smit­ast síð­ustu daga hafa gert það á vinnu­stöðum, innan fjöl­skyldna, í vina­hópum, á lík­ams­rækt­ar­stöðvum og krám. Þá hefur ekki tek­ist að rekja öll smit. „Þetta eru upp­lýs­ingar sem við höfum notað til að ákveða þær tak­mark­anir sem hefur verið ráð­ist í,“ sagði Þórólfur.

2.980 manns hafa frá upp­hafi far­ald­urs­ins greinst með COVID-19 hér á landi. Þann 18. sept­em­ber fjölg­aði greindum smitum snögg­lega og voru þann dag­inn 75. Frá þeim tíma hafa þau verið á bil­inu 20-61. Þriðja bylgja far­ald­urs­ins hófst að mati vís­inda­fólks við Háskóla Íslands þann 11. sept­em­ber. Um það leyti kom upp hópsmit á vín­veit­inga­stöðum í mið­borg Reykja­víkur. Nýtt afbrigði veirunnar var þar á ferð sem rakið er til tveggja franskra ferða­manna sem komu hingað til lands í ágúst. Í kjöl­farið var tekin sú ákvörðun að loka börum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í nokkra daga. Nú hefur börum aftur verið lokað en um allt land og gilda þær hertu aðgerðir í tvær vikur.

[links]Thor Aspelund, pró­fessor í líf­töl­fræði sem fer fyrir rann­sókn­arteymi Háskóla Íslands, sagði í við­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að þriðja bylgjan gæti mögu­lega staðið í fimm vikur í við­bót og að smit­fjöld­inn í heild­ina gæti orðið hár. Hann sagði í við­tali við RÚV í morgun að smit­stuð­ull­inn, sem segir til um hversu marga hver og einn smitar, sé nú komin yfir 2.

Hertar tak­mark­anir á sam­komum, m.a. skóla­haldi, tóku gildi á mið­nætti. Meg­in­reglan er að ekki mega fleiri en tutt­ugu koma saman en und­an­þágur frá hámarks­fjölda eru nokkrar.

Húsnæði lík­ams­rækt­ar­stöðva skulu vera lokuð og krár, skemmti- og spila­staðir eru einnig lok­aðir. Gestir á sund­stöðum mega að hámarki vera 50% pró­sent af leyfi­legum fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi. Fjar­lægð­ar­mörk eru áfram einn metri og við aðstæður þar sem slíkt er ekki mögu­legt er skylt að nota grímur.

Mikið álag er nú á Land­spít­al­anum vegna COVID-19 og ann­arra sjúk­dóma. Smit hafa komið upp á tveimur hjúkr­un­ar­heim­ilum, á Eir og Hrafn­istu.

Sagði Þórólfur að ýmis „rauð flögg“ væru uppi og „við gætum farið að sjá hér alvar­legri far­aldur ef ekki verður gripið inn í.“

Aðgerð­irnar núna eru harð­ari en þær hafa verið frá því að fyrsta bylgjan var kveðin niður. Gripið var til stað­bund­inna aðgerða í sept­em­ber, börum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var lokað, og var von­ast til þess að smitum myndi fækka. „Það hefur því miður ekki gerst að miklu leyti og því ekki annað í stöð­unni að grípa til hert­ari aðgerða og tak­mark­ana,“ sagði Þórólfur.

Sótt­varna­læknir segir að „eðli­lega“ hafi komið gagn­rýni á aðgerð­irnar, sumir vilji að þær séu harð­ari og aðrir að þær séu væg­ari. En á end­anum þurfi að taka ákvörðun og nú hafi rík­is­stjórnin gert það.

Meðal þess sem hefur verið gagn­rýnt er að aðgerð­irnar nái til alls lands­ins þó að lang­flest smitin séu að grein­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þórólfur benti á að veiran væri vissu­lega að grein­ast úti á landi – hún hefði þegar greinst í öllum lands­hlutum. Hann telji ekki væn­legt til árang­urs að beita mis­mun­andi aðgerðum á þessum tíma­punkti. Þá gæti haf­ist elt­inga­leikur við far­ald­ur­inn og tölu­vert lengri tíma en ella. „Þessi nálgun, að láta aðgerðir gilda á öllu land­inu, þá getum við kveðið far­ald­ur­inn niður eins fljótt og auðið er. Svo hægt sé að aflétta aðgerðum fljótt.“

Þórólfur segir far­ald­ur­inn nú öðru­vísi en í vetur. Hann er útbreidd­ari. Hann biðlar til lands­manna að standa saman um þessar aðgerðir. Það skipti mestu. „Þannig náum við árangri og þannig mun okkur takast að kveða þennan far­aldur niður.“

Alma Möller land­læknir tal­aði um hina svoköll­uðu far­sótt­ar­þreytu sem margir væru að finna fyrir. Hún sagði ekki hægt að setja á tak­mark­anir sem allir eru sáttir við. „Þraut­seigja og þol­in­mæli er það sem öllu skiptir,“ sagði Alma. „Við höfum þegar gengið í gegnum erf­iða tíma í þessum far­aldri og gerðum það með glæsi­brag.“

Við þurfum að reyna að hjálp­ast að við að stjórna far­sótt­inni með ábyrgri og agaðri hegðun en láta far­sótt­ina ekki stjórna okkur, sagði land­læknir. „Stöndum áfram saman og leggjum að mörkum hvert og eitt eins og við getum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár