Minjastofnun hafnar því að friðlýsing hindri lagningu Sundabrautar

Frið­lýs­ing menn­ingar- og búsetu­lands­lags á Álfsnesi á ekki að hindra lagn­ingu Sunda­brautar að mati Minja­stofn­unar Íslands. Bæði Vega­gerðin og Reykja­vík­ur­borg halda hinu gagn­stæða fram.

Minja­stofnun Íslands segir að áform hennar um frið­lýs­ingu menn­ingar- og búsetu­lands­lags við Þern­eyj­ar­sund, í Þerney og á Álfsnesi eigi ekki að hindra lagn­ingu Sunda­brautar. Við gerð frið­lýs­inga­til­lög­unar, fyrr á árinu, hafi verið tekið til­lit til þeirra val­kosta sem lágu fyrir varð­andi lagn­ingu braut­ar­innar á þann hátt að frið­lýs­ingin úti­lok­aði ekki gerð hennar. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem birt hefur verið á heima­síðu stofn­un­ar­innar.

[links]Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að Vega­gerðin hefði sent bréf til Minja­stofn­unar vegna máls­ins 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þar var áformum Minja­­stofn­unar um frið­­lýs­ingu við Þerney og Álfs­­nes mót­mælt, en gert er ráð fyrir að síð­­­ari áfangi Sunda­brautar liggi frá Gufu­­nesi, um Geld­ing­ar­nes, yfir Leiru­vog, Gunn­u­­nes, Álfs­­nes og Kolla­­fjörð. Orðrétt segir í bréf­inu að frið­lýs­ingin geti „haft veru­leg áhrif á lagn­ingu Sunda­braut­ar“.

Ebba Schram borg­ar­lög­maður Reykja­vík­ur­borgar sendi í kjöl­farið Minja­stofnun bréf með athuga­semdum borg­ar­innar á ætl­aðri frið­lýs­ingu.

Í bréf­inu, sem er dag­sett 9. sept­em­ber, er kallað eftir mati stofn­un­ar­innar á því hvort hægt sé að tryggja vernd minja á svæð­inu með öðrum hætti en frið­lýs­ingu. Borg­ar­lög­maður segir að mik­il­vægt sé að slíkt mat fari fram með hlið­sjón af því að um sé að ræða veru­lega fjár­hags­lega hags­muni og stjórn­ar­skrár­var­inn eigna­rétt ann­ars vegna Reykja­vík­ur­borgar og hins vegar fyr­ir­tæk­is­ins Björg­unar ehf., sem hefur í hyggju að byggja upp frek­ari starf­semi innan athafna­svæðis fyr­ir­tæk­is­ins sem frið­lýs­ingin myndi ná til.

[adspot]Ef áform Minja­stofn­unar um frið­lýs­ingu yrðu að veru­leika þá myndi sú frið­lýs­ing, að mati borg­ar­innar, ná yfir ætlað vegstæði Sunda­brautar og setja þá fram­kvæmd, miðað við þá val­kosti sem nú eru til skoð­unar um legu henn­ar, í upp­nám.

Sunda­braut verið á dag­­skrá í ára­tugi

Ára­tugir eru síðan að Reykja­vík­­­ur­­borg og íslenska ríkið settu fyrst fram áform um að leggja Sunda­braut. Veg­­ur­inn hefur raunar verið hluti af aðal­­­skipu­lagi Reykja­vík­­­ur­­borgar frá árinu 1985 og inni á vega­­skrá sem fyr­ir­hug­aður þjóð­­vegur frá 1995.

Í sam­­göng­u­á­ætlun fyrir árin 2020-2034, sem sam­­þykkt var á Alþingi í lok júní síð­­ast­lið­ins, er lagn­ing Sunda­brautar inni. Sam­hliða voru sam­­þykkt lög sem heimil að Vega­­gerðin geti gert samn­ing við einka­að­ila um fjár­­­mögn­un, fram­­kvæmd, við­hald og rekstur Sunda­braut­­ar, enda er fram­­kvæmdin ekki fjár­­­mögnuð á sam­­göng­u­á­ætl­­un.

Sam­­þykkt ofan­­greindra laga og sam­­göng­u­á­ætl­­unar var hluti af stærra sam­komu­lagi um að flýta sam­­göng­u­fram­­kvæmd­um, meðal ann­­ars á for­­sendum svo­­kall­aðs sam­­göngusátt­­mála höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins sem fjallar um hvernig kostn­að­­ar­­skipt­ing við stór­fram­­kvæmdir þar verður á milli ríkis og sveit­­ar­­fé­lag­anna sem mynda svæð­ið. Í þeim sátt­­mála er þó ekki talað ákveðið um Sunda­braut þurfi að verða að veru­­leika held­ur að við end­an­­lega útfærslu fram­­kvæmda verði „sér­­stak­­lega hugað að greiðri teng­ingu aðliggj­andi stofn­brauta svo sem Sunda­brautar inn á stofn­brautir höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár