Borgin vill láta kanna að falla frá friðlýsingu sem gæti hindrað lagningu Sundabrautar

Borg­ar­lög­maður hefur sent Minja­stofnun Íslands bréf þar sem óskað er eftir því að kannað verði hvort hægt sé að vernda minjar á ætl­uðu vegstæði Sunda­brautar með öðrum hætti en frið­lýs­ingu. Verði frið­lýs­ingin að veru­leika er lagn­ing Sunda­brautar í upp­námi.

Dagur B. Eggertsson, er borgarstjóri í Reykjavík. Umsögn borgarinnar um tilögu Minjastofnunar var lögð fram á fundi borgarráðs í gær.
Dagur B. Egg­erts­son, er borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Umsögn borg­ar­innar um til­ögu Minja­stofn­unar var lögð fram á fundi borg­ar­ráðs í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Ebba Schram borg­ar­lög­maður Reykja­vík­ur­borgar hefur sent Minja­stofnun Íslands með athuga­semdum borg­ar­innar á ætl­aðri frið­lýs­ingu menn­ingar- og búsetu­lands­lanfs við Þern­eyj­ar­sund, í Þerney og á Álfsnesi.

[links]Í bréf­inu, sem er dag­sett 9. sept­em­ber, er kallað eftir mati stofn­un­ar­innar á því hvort hægt sé að tryggja vernd minja á svæð­inu með öðrum hætti en frið­lýs­ingu. Borg­ar­lög­maður segir að mik­il­vægt sé að slíkt mat fari fram með hlið­sjón af því að um sé að ræða veru­lega fjár­hags­lega hags­muni og stjórn­ar­skrár­var­inn eigna­rétt ann­ars vegna Reykja­vík­ur­borgar og hins vegar fyr­ir­tæk­is­ins Björg­unar ehf., sem hefur í hyggju að byggja upp frek­ari starf­semi innan athafna­svæðis fyr­ir­tæk­is­ins sem frið­lýs­ingin myndi ná til.

Ef áform Minja­stofn­unar Íslands um frið­lýs­ingu verða að veru­leika þá mun sú frið­lýs­ing ná yfir ætlað vegstæði Sunda­brautar og setja þá fram­kvæmd, miðað við þá val­kosti sem nú eru til skoð­unar um legu hennar, í upp­nám.

Kjarninn greindi frá því í gær að Vega­gerðin hefði sent bréf til Minja­stofn­unar vegna máls­ins 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þar er áformum Minja­stofn­unar um frið­lýs­ingu við Þerney og Álfs­nes mót­mælt, en gert er ráð fyrir að síð­ari áfangi Sunda­brautar liggi frá Gufu­nesi, um Geld­ing­ar­nes, yfir Leiru­vog, Gunnu­nes, Álfs­nes og Kolla­fjörð.

Sunda­braut verið á dag­skrá í ára­tugi

Ára­tugir eru síðan að Reykja­vík­ur­borg og íslenska ríkið settu fyrst fram áform um að leggja Sunda­braut. Veg­ur­inn hefur raunar verið hluti af aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar frá árinu 1985 og inni á vega­skrá sem fyr­ir­hug­aður þjóð­vegur frá 1995.

[adspot]Í sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2020-2034, sem sam­þykkt var á Alþingi í lok júní síð­ast­lið­ins, er lagn­ing Sunda­brautar inni. Sam­hliða voru sam­þykkt lög sem heimil að Vega­gerðin geti gert samn­ing við einka­að­ila um fjár­mögn­un, fram­kvæmd, við­hald og rekstur Sunda­braut­ar, enda er fram­kvæmdin ekki fjár­mögnuð á sam­göngu­á­ætl­un.

Sam­þykkt ofan­greindra laga og sam­göngu­á­ætl­unar var hluti af stærra sam­komu­lagi um að flýta sam­göngu­fram­kvæmd­um, meðal ann­ars á for­sendum svo­kall­aðs sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem fjallar um hvernig kostn­að­ar­skipt­ing við stór­fram­kvæmdir þar verður á milli ríkis og sveit­ar­fé­lag­anna sem mynda svæð­ið. Í þeim sátt­mála er þó ekki talað ákveðið um Sunda­braut þurfi að verða að veru­leika held­ur að við end­an­lega útfærslu fram­kvæmda verði „sér­stak­lega hugað að greiðri teng­ingu aðliggj­andi stofn­brauta svo sem Sunda­brautar inn á stofn­brautir höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár