Kærunefnd jafnréttismála verði einnig stefnt en ekki bara kæranda einum

For­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram drög að breyt­ingum á stjórn­sýslu jafn­rétt­is­mála, sem fela meðal ann­ars í sér að kærendum í jafn­rétt­is­málum verði ekki lengur stefnt einum fyrir dóm, uni gagn­að­ili ekki nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram drög að laga­frum­varpi um stjórn­sýslu jafn­rétt­is­mála í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Með þeim breyt­ingum sem lagðar eru til yrði meðal ann­ars komið í veg að sú staða gæti komið aftur upp að ráð­herra eða ein­hver annar þurfi að stefna kær­anda í jafn­rétt­is­máli einum fyrir dóm til að fá nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar hnekkt.

Það er einmitt sú staða sem kom upp í síð­asta mán­uði, eftir að Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ákvað að una ekki þeirri nið­ur­stöðu sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að í máli Hafdísar Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem sótt­ist eftir starfi ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyti Lilju.[links]

Lilja hefur stefnt Hafdísi per­sónu­lega fyrir dóm vegna máls­ins, eftir að hafa aflað sér lög­fræði­á­lita sem að sögn ráðu­neyt­is­ins bentu á laga­lega ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. Ráðu­neytið hefur neitað að láta þessi lög­fræði­á­lit í hendur Kjarnans svo hægt sé að upp­lýsa almenn­ing um efni þeirra. Synjunin hefur verið kærð til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Eina leiðin til að fá úrskurðinum hnekkt

Lagalega voru Lilju engir aðrir vegir færir til þess að fá úrskurð­inum hnekkt og hefur for­sæt­is­ráð­herra bent á að hún telji full ástæða til þess að skoða breyt­ingar á þessu, „því ekki viljum við að fram­kvæmd lag­anna með þessum hætti hafi kæl­ing­ar­á­hrif, ef svo mætti segja, á vilja fólks til að leita réttar síns. Ferlið er einmitt hugsað til að tryggja rétt fólks sem telur á sér brot­ið.“

[adspot]

Í skrif­legu svari til Kjarnans undir lok júní­mán­aðar sagði Katrín að það væri „auð­vitað sér­stakt að lögin geri ráð fyrir því að eina leiðin til að fá úrskurði hnekkt sé að fara í mál við ein­stak­ling­inn sem kær­ir.“

Nú hafa sem áður segir verið lögð fram frum­varps­drög þar sem þessu er breytt, á þann veg að sá sem unir ekki nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála mun stefna nefnd­inni sjálfri, auk kær­and­ans. Þetta mun ef til vill breyta ásýnd mál­anna nokkuð, en athygli vakti í máli Lilju gegn Hafdísi Helgu að ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands væri að stefna borg­ara sem leit­aði réttar síns hjá stjórn­sýslu­nefnd.

„Enginn þekkir betur á hvaða grunni úrskurður nefnd­ar­innar er byggður en nefndin sjálf og því er rétt að hún sjái um að færa fram máls­á­stæður og lagarök fyrir því af hverju úrskurð­ur­inn sé lög­legur og réttur, en ekki kær­andi einn eins og núver­andi skipan mála er hagað,“ segir í umfjöllun um frum­varps­drögin í sam­ráðs­gátt­inni.

Þó er tekið fram að eftir sem áður hafi kær­andi kost á að koma að öllum við­horfum sínum varð­andi málið til skila fyrir dóm­stólum, þar sem hann telj­ist einnig til varn­ar­að­ila máls­ins.

Einnig verður tryggt, sam­kvæmt frum­varps­drög­unum, að máls­kostn­aður vegna dóms­mála sem þess­ara á öllum dóm­stigum verði áfram greiddur úr rík­is­sjóði.

Auknar kröfur til nefndarmanna um sérþekkingu á jafnréttismálum

Í frum­varps­drög­unum er lagt til að kröfur um sér­þekk­ingu nefnd­ar­manna í kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála verði auknar. Lagt er til að a.m.k. tveir nefnd­ar­menn, þar á meðal for­maður nefnd­ar­innar, skuli hafa sér­þekk­ingu á jafn­rétt­is­málum.

Einn skal hafa sér­þekk­ingu á jafn­rétti kynj­anna og annar á jafn­rétti í víð­tæk­ari merk­ingu, þar sem þau mál sem koma til kasta kæru­nefnd­ar­innar lúta jú að öðrum atriðum en ein­göngu jafn­rétti kynj­anna.

Í því skyni að tryggja að þessi sér­þekk­ing hald­ist innan dóm­stóls­ins þrátt fyrir að skipt verði um full­trúa er lagt til að full­trúar í nefnd­inni verði ekki skip­aðir á sama tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár