Kallar eftir afstöðu forsætisráðherra til dómsmáls Lilju

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sé greini­lega að störfum, sitji rík­is­stjórnar- og þing­flokks­fundi, en mæti hins vegar ekki í þing­sal til að svara fyrir brot sín á jafn­rétt­islögum.

Hanna Katrín Friðriksson.
Hanna Katrín Frið­riks­son. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, segir það tíð­indi að Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ætli að höfða dóms­mál á hendur konu sem gerði athuga­semd við emb­ætt­is­færslu hennar og taldi rétt sinn brot­inn. „Ég velti því fyrir mér hvort þessi ákvörðun hafi verið rædd í rík­is­stjórn og hver sé afstaða Katrínar Jak­obs­dóttur til dóms­máls­ins. For­sæt­is­ráð­herra fer með jafn­rétt­is­mál eftir að hafa tekið mála­flokk­inn til sín í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins, vafa­lítið til að gera jafn­rétt­is­málum sér­stak­lega hátt undir höfði.“

[links]Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook sem Hanna Katrín birtir í dag.

Greint var frá því í gær að Lilja ætli að höfða mál gegn Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði í lok maí að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með því að snið­ganga í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Með því að stefna Haf­dísi Helgu ætlar Lilja að reyna að ógilda úrskurð kæru­nefnd­ar­inn­ar.

Hanna Katrín rifjar upp í stöðu­upp­færsl­unni að sama dag og lög­brot Lilju urðu ljós, 2. júní síð­ast­lið­inn, hafi hún beint spurn­ingu um málið til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þar sem Lilja sjálf hafi ekki verið í þing­sal. „For­sæt­is­ráð­herra tók við það til­efni sér­stak­lega fram að mennta­mála­ráð­herra þyrfti auð­vitað að gera grein fyrir sjón­ar­miðum sínum í þessu máli og að hún yrði vafa­laust til svara í þing­sal síðar til að reifa þau. Sú spá for­sæt­is­ráð­herra hefur því miður ekki gengið eftir. Mennta­mála­ráð­herra hefur síð­ustu vik­urnar vissu­lega verið að störfum í ráðu­neyti sínu. Hún situr rík­is­stjórn­ar­fundi og fréttir eru af störfum hennar í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum. Mennta­mála­ráð­herra sést jafn­framt í þing­hús­inu, t.d. á þing­flokks­fundum Fram­sóknar. Hún hefur bara ekki mætt í þing­sal í fyr­ir­spurna­tíma þing­manna eftir að þetta mál kom upp. Þær eru því nokkuð margar spurn­ing­arnar sem enn er ósvarað varð­andi þetta mál. Sú stærsta er þó; ríkir sátt í rík­is­stjórn­inni um þessar áherslur í jafn­rétt­is­málum?“

Niðurstaðan að Hafdís Helga hafi verið vanmetin

Forsaga máls­ins er sú að í byrjun júní var greint frá því í fjöl­miðlum að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­sonar í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í fyrra, sam­­kvæmt úrskurði kæru­­nefndar jafn­­rétt­is­­mála. Hún hafi van­­metið Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­nefnd hafði ekki talið Haf­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­urra sem hæf­astir voru taldir í starf­ið.

[adspot]Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­að­­­ar­­­störfum fyrir Fram­­­sókn­­­ar­­­flokk­inn en hann var vara­­þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í tvö kjör­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­ar­­maður Val­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins.

Í kjöl­far frétta um nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar fjöll­uðu fjöl­miðlar um for­mann hæf­is­nefnd­ar­innar sem tók um ráðn­ingu ráðu­neyt­is­stjór­ans. For­maður hennar er lög­fræð­ing­ur­inn Einar Hugi Bjarna­son, sem Lilja hefur á tveggja og hálfs starfs­tíma sínum í ráðu­neyt­inu, valið til margra trún­að­ar­starfa. Ráðu­neytið hefur á þeim tíma greitt Ein­ari Huga alls 15,5 millj­ónir króna fyrir lög­fræði­ráð­gjöf og nefnd­ar­setu á vegum ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár