Fólki verði ekki stefnt fyrir að nýta sér rétt sinn

For­sæt­is­ráð­herra tjáir sig um ákvörðun mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um að höfða mál gegn kon­unni sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála sagði hann hafa brotið á. Katrín vill ekki að fram­kvæmd lag­anna hafi kæl­ing­ar­á­hrif á vilja fólks til að leita réttar síns.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er auð­vitað sér­stakt að lögin geri ráð fyrir því að eina leiðin til að fá úrskurði hnekkt sé að fara í mál við ein­stak­ling­inn sem kærir.“

Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans varð­andi ákvörðun Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að höfða mál gegn Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði nýverið að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með því að snið­ganga í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

„Eins og fram kom í fréttum fyrir helgi þá gera lögin ráð fyrir þess­ari heim­ild ráð­herra og kær­andi hefur sama úrræði ef málið fer ekki á hans veg,“ segir í svari for­sæt­is­ráð­herra. Katrín telur að full ástæða sé til að skoða þetta „því ekki viljum við að fram­kvæmd lag­anna með þessum hætti hafi kæl­ing­ar­á­hrif, ef svo mætti segja, á vilja fólks til að leita réttar síns. Ferlið er einmitt hugsað til að tryggja rétt fólks sem telur á sér brotið.“

[adspot]

For­sæt­is­ráð­herr­ann tekur undir það með Jafn­rétt­is­stofu að til fram­tíðar litið þurfi að skoða hvort ekki megi útfæra þetta betur þannig að fólki sé ekki stefnt fyrir að nýta rétt sinn en báðir aðilar geti áfram látið reyna á úrskurð kæru­nefndar fyrir dóm­stólum. „Það tel ég um að gera nú þegar end­ur­skoðun á jafn­rétt­islögum fer fram og ég er full­viss um að hægt er að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi til betri vegar,“ segir hún.

Katrín segir enn fremur að í þessu til­tekna máli hafi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ákveðið að nýta sér þessa heim­ild lag­anna vegna ann­marka sem hún telur á úrskurði kæru­nefndar. Lilja hafi upp­lýsti hana um þá ákvörðun en hvað varðar efn­is­at­riði máls­ins vísar Katrín á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Vanmat Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál

[links]Forsagan er sú að greint var frá því í byrjun mán­aðar að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­sonar í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í fyrra, sam­­kvæmt úrskurði kæru­­nefndar jafn­­rétt­is­­mála. Hún hefði van­­metið Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­nefnd hafði ekki talið Haf­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­urra sem hæf­astir voru taldir í starf­ið.

Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­að­­­ar­­­störfum fyrir Fram­­­sókn­­­ar­­­flokk­inn en hann var vara­­þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í tvö kjör­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­ar­­maður Val­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár