Hvert einasta tilvik einu tilviki of mikið

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis segir ýmis­legt í nið­ur­stöðum könn­unar um vinnu­um­hverfið á Alþingi hafa slegið sig. Helm­ingur þing­manna sagð­ist þar telja að starf þeirra hefði orðið öðrum í fjöl­skyldu þeirra til ama.

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis segir að sem betur fer hafi almennt starfs­fólk Alþingis ekki upp­lifað jafn mikið ein­elti og kyn­bundið áreiti og þing­menn segj­ast hafa upp­lifað. Nið­ur­stöður nýrrar könn­unar sem þingið lét Félags­vís­inda­stofnun þykja þing­for­set­anum slá­andi, en sam­kvæmt þeim hefur á annan tug þing­manna orðið fyrir ein­elti og/eða kyn­bund­inni áreitni í tengslum við starf sitt, eða um og yfir þriðj­ungur þeirra þing­manna sem svör­uðu könn­un­inni.[links]

„Maður er auð­vitað alltaf sleg­inn þegar maður sér svona nið­ur­stöður, af því það á við um þetta, að hvert ein­asta til­vik er einu til­viki of mikið. Þetta er eitt­hvað sem maður vill ekki sjá og maður verður dapur þegar maður sér hvað þetta er útbreitt,“ segir Stein­grímur.

Hann hefur setið á Alþingi í ára­tugi, en þegar blaða­maður spyr hvort hann teldi stöðu mála hvað varðar þá hluti sem Félags­vís­inda­stofnun var að mæla í könn­un­inni hafa verið verri eða betri áður fyrr, segir Stein­grímur að það sé erfitt að meta. Tíð­ar­and­inn hafi verið annar.

[adspot]

„Það er mjög erfitt, held ég, að fara að láta draga sig út í reyna að meta það, eða hafa ein­hverja til­finn­ingu fyrir því. Ég hef viljað trúa því að ýmis­legt væri að batna í sam­skiptum kynj­anna og að það sem er kallað á manna­máli kven­fyr­ir­litn­ing og slík óvið­eig­andi fram­koma í garð kvenna væri á und­an­haldi, en umræðan er líka orðin sem betur fer orðin opn­ari og það er lík­lega að menn segi frá svona hlutum,“ segir þing­for­set­inn.

Hann segir að mögu­lega sé hægt að skýra þann tölu­verða mun sem er á upp­lif­unum þing­manna og almennra starfs­manna Alþingis að í könn­un­inni hafi verið spurt um upp­lif­anir fólks almennt, í tengslum við vinn­una, ekki endi­lega bara varð­andi þann þátt vinn­unnar sem á sér stað innan veggja Alþingis. „Það kann ef til vill að ein­hverju leyti að skýra að þessi munur birt­ist, fyrir utan að þetta er jú sér­stakt starf, eins og allir vita,“ segir Stein­grímur.

Sláandi hve fáir hafa látið vita

Samkvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar voru afar fáir svar­endur í hópi starfs­liðs­ins á þingi og þing­manna sem höfðu til­kynnt sér­stak­lega um óvið­eig­andi hegðun sem þeir hefðu upp­lifað. Það segir Stein­grímur að hafi verið á meðal þess sem sló hann við nið­ur­stöð­urnar, hversu fáir hafi til­kynnt öðrum um það sem þeir hafi orðið fyrir.

„Það gildir eig­in­lega um allt, hvort sem það er ein­elti, kyn­ferð­is­leg áreitni, kyn­bundin áreitni eða ein­hvers­konar ofbeld­is­full hegðun,“ segir Stein­grímur.

Þing­for­set­inn kveðst einnig sleg­inn yfir því, sem fram kom í könn­un­inni, að helm­ingur þeirra þing­manna sem svör­uðu teldu fjöl­skyldu sína hafa borið ama af starfi þeirra sem þing­menn, ýmist í starfi eða námi. 

„Það er auð­vitað ekki gaman, að sjá slíkt. Þessi könnun snýr þannig kannski að fleirum en bara okkur og er ákveð­inn speg­ill inn í sam­fé­lagið líka, eins og allar mæl­ingar af þessu tagi eru,“ segir Stein­grímur, sem segir að ráð­ist hafi verið í gerð könn­un­ar­innar til þess að vita Alþingi sem vinnu­staður standi.

Þingið ætlar að vinna áfram með nið­ur­stöður könn­un­ar­innar á næst­unni og Stein­grímur segir að kyn­bundin áreitni verði áfram á dag­skrá þings­ins, rétt eins og hún hafi verið frá því að „#MeToo-bylgjan skall á ströndum Íslands“ á haust­mán­uðum 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár