Grundvallarréttindum ekki fórnað á einu bretti

Þekkt er að á kreppu­tímum sé vegið að kjörum og rétt­indum vinn­andi fólks. Gegn slíku mun Flug­freyju­fé­lag Íslands standa, segir í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Frá því kór­ónu­veiran lam­aði allt flug í mars hefur Flug­freyju­fé­lag Íslands leitað allra leiða til að koma til móts við Icelandair til að hjálpa fyr­ir­tæk­inu í vand­ræðum þess. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu í dag.

Þar segir að flug­freyjur og -þjónar hafi verið án kjara­samn­ings í eitt og hálft ár, og því ekki notið neinna kjara­bóta ólíkt flestum á vinnu­mark­aði, en engu að síður hafi Flug­freyju­fé­lagið boðið Icelandair til­slak­anir á kjara­samn­ingi félags­manna meðan mestu erf­ið­leik­arnir ganga yfir.

Um miðjan apríl hafi Flug­freyju­fé­lagið lagt fram til­boð til Icelandair um lang­tíma­samn­ing sem hafi falið í sér veru­legar til­slak­anir, auk­inn sveigj­an­leika og lengri vinnu­tíma. Slíkar til­slak­anir hafi komið veru­lega til móts við kröfur um fyr­ir­sjá­an­leika og hefðu haft umtals­verðar kostn­að­ar­lækk­anir í för með sér fyrir flug­fé­lagið en að sama skapi kjara­skerð­ingu fyrir félags­menn. Icelandair hafn­aði þessu til­boði, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni, og hefur kraf­ist tug­pró­senta launa­lækk­ana og skerð­ingar á rétt­indum flug­freyja og -þjóna til fram­búðar.

Ekki hálaunastarf

„Starf flug­freyja/-þjóna er ekki hálauna­starf. Með­al­laun félags­manna með ára­tuga starfs­reynslu eru tals­vert undir með­al­launum í land­inu. Icelandair stillir nú stétt­ar­fé­lögum upp við vegg og reynir að gera þau ábyrg fyrir stöð­unni og þeirri áskorun að skapa fyr­ir­tæk­inu rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar með því að umturna gild­andi kjara­samn­ingi og sam­þykkja mikla kjara­skerð­ingu til fram­tíðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur segir að Flug­freyju­fé­lagið hafi ekki verið til­búið að fórna á einu bretti grund­vall­ar­rétt­indum í kjara­samn­ingi, sem tekið hafi ára­tugi að berj­ast fyrir, vegna þeirrar tíma­bundnu stöðu sem uppi er.

„Þekkt er að á kreppu­tímum sé vegið að kjörum og rétt­indum vinn­andi fólks. Gegn slíku mun Flug­freyju­fé­lag Íslands standa,“ segir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár