Efnahagslegu áhrifin munu vara í marga mánuði eftir að veikin gengur yfir

Seðla­banka­stjóri seg­ist von­ast til þess að útbreiðsla COVID-19 muni ganga yfir á þremur mán­uðum. Efna­hags­legu áhrif hennar muni hins vegar vara í margar mán­uði umfram það. Ferða­þjón­ustan muni koma til baka.

„Vonandi gengur veikin yfir á þremur mán­uðum. Efna­hags­legu áhrifin munu vara eitt­hvað lengur. Þetta er hins vegar tíma­bundið. Það er það sem er jákvætt. Allir far­aldar, þeir ganga yfir.“

Þetta sagði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri í sam­eig­in­legum morg­un­þætti allra miðla RÚV í morgun.

[links]Ásgeir sagði að staðan nú væri „eld­skírn“ fyrir ferða­þjón­ust­una. Hún muni ekki skila neinum telj­andi tekjum á öðrum árs­fjórð­ungi. Hún hafi gengið í gegnum sam­drátt á síð­asta ári þegar ferða­mönnum fækk­aði um 20 pró­sent og núver­andi ástand komi svo ofan í það. „Hún verður von­andi end­ur­skipu­lögð og síðan nátt­úru­lega verður Ísland áfram ferða­þjón­ustu­land. Og hún komi til baka. Þetta er spurn­ing um tíma, hvort það verði sex mán­uðir eða tólf mán­uðir, hún er að koma til baka.“

Ásgeir var spurður hversu slæmt ástandið væri orðið og hverjar spár Seðla­banka Íslands um áhrif þess væru. Hann sagði það áður hafa gerst fyrir Ísland að landið hefði tapað stórum hluta útflutn­ings­tekna sinna, til dæmis þegar síldin fór. Nú njótum við þess hins vegar að hafa gripið til marg­hátt­aðra ráð­staf­ana eftir hrunið 2008 sem hjálpi til við að bregð­ast vel við nú. Þar skipti til dæmis máli að háir eig­in­fjár­aukar hafi verið settir á bank­ana í land­inu sem geri það að verkum að þeir eigi 25 pró­sent eigið fé. Nú sé hægt að losa um það eigið fé til að hjálpa fyr­ir­tækj­unum í land­inu með fyr­ir­greiðslu.

Það hjálpi líka til við að mæta sam­drætti í útflutn­ingi að neysla Íslend­inga hefur dreg­ist skarpt saman. Fólk eyði minna, fari ekki til útlanda, kaupi ekki mikið af inn­fluttum fatn­aði og svo fram­vegis. Það hjálpi til við að halda við greiðslu­jöfn­uði.

[adspot]Aðspurður hvaða sviðs­myndir bank­inn væri að vinna með sagði Ásgeir: „Það verður að hafa í huga að sviðs­myndir eru ekki spár.“ Ljóst væri að sam­dráttur væri framundan en þjóðin yrði vænt­an­lega í ein­hvers­konar sótt­kví næstu þrjá mán­uð­ina. Efna­hags­legu áhrifin myndu vara lengur. Bankinn hafi ekki gefið út neinar spár sem stendur vegna þess að óvissan væri ein­fald­lega of mikið og það yrði þá ein­ungis „leikur að tölum“.

Ásgeir sagð­ist upp­lifa að allir væru að róa í sömu átt. Líf­eyr­is­sjóðir hefðu sam­þykkt að halda að sér höndum og fara ekki úr landi með fé tíma­bundið og bank­arnir væru allir að vilja gerðir.

Á kynn­ing­ar­fundi í Seðla­bank­anum í gær, sem var hald­inn vegna þess að ákveðið var í annað sínn á viku að lækka vexti niður í sögu­legar lægðir og afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka bank­anna,

sagði Ásgeir að ekki ætti að búast við því að það yrði tíð­inda­laust úr Seðla­bank­anum á næst­unni, bank­inn væri bara „rétt að byrja“ að takast á við stöð­una í efna­hags­líf­inu.

Þegar hann var beð­inn um að skýra hvað fælist í þessu benti hann á að nýi Seðla­bank­inn, sem varð til við sam­ein­ingu við Fjár­mála­eft­ir­litið um síð­ustu ára­mót, hefði fleiri tæki til að bregð­ast við en áður, þegar stjórn­tæki hans var að uppi­stöðu stýri­vextir.

Ásgeir sagði að Seðla­bank­inn gæti til að mynda beitt efna­hags­reikn­ingi sínum. Hann væri nú, eftir mikla veik­ingu krón­unnar und­an­farið, með 930 millj­arða króna í gjald­eyr­is­vara­forða. Með honum væri til dæmis hægt að hafa áhrif á lausa­fjár­stöðu bank­anna.

Aðspurður hvort hann hefði boð­vald yfir bönkum og líf­eyr­is­sjóðum svar­aði Ásgeir: „Já og nei, ég er nátt­úru­lega æðsti yfir­maður fjár­mála­eft­ir­lits í land­inu.“ Hann benti þó á að yfir­leitt gangi bankar ekki gegn Seðla­bank­anum og fram til þessa hafi allt farið fram í mestu vin­semd og sam­starfi.

Þegar Ásgeir var spurður um hvernig staða heim­il­anna yrði varin benti hann á að í fyrstu aðgerðum væri væri bæði Seðla­bank­inn og rík­is­stjórnin að hugsa um að koma í veg fyrir að fólk missi vinn­una, með því meðal ann­ars að lækka vexti og tryggja lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu. Það séu ekki ein­ungis aðgerðir fyrir fyr­ir­tæki, heldur fólkið í land­inu.

Að lokum sagði Ásgeir að þrátt fyrir að krónan hefði veikst um tíu pró­sent á skömmum tíma þá hefði hann ekki trú á því að verð­bólga væri í kort­unum. Aðrir kraftar toga þar á móti til að halda henni í skefjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár