Útilokar ekki að Þorsteinn Már snúi aftur sem forstjóri Samherja

Samherji ein­beitir sér nú að því kanna ásak­anir um mútu­greiðslur í Namibíu en fyr­ir­tækið telur sig hafa úti­lokað að ásak­anir um pen­inga­þvætti eigi við rök að styðj­ast. Enn er þó verið að rann­saka þær ásak­anir.

Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, reiknar ekki með því að sitja í for­stjóra­stólnum lengur en fram á mitt ár 2020. Hann úti­lokar ekki að Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem var for­stjóri Samherja til ára­tuga en steig til hliðar eftir opin­ber­anir fjöl­miðla um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja, muni snúa aftur í starfið. Þetta kemur fram í við­tali við Björgólf í vef­miðl­inum Intra­fish, sem sér­hæfir sig í umfjöllun um sjáv­ar­út­vegs­mál, sem birt var í vik­unni.

„Hann hefur verið starf­andi í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi í mörg ár og er lík­lega sá náungi sem veit mest um sjáv­ar­út­veg á Íslandi og í Evrópu,“ sagði Björgólfur um Þorstein Má.

Áður hafði Björgólfur sagt að hann bygg­ist ekki við því að vera for­stjóri Samherja lengur en fram á fyrsta árs­fjórð­ung þessa árs. Nú er ljóst að sá tími hefur lengst, en Samherji býst við því að rann­sókn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein á við­skipta­háttum þess, sem Samherji greiðir fyrir, muni ljúka í apríl. Yfirvöld í Namibíu, Angóla, Íslandi og í Noregi eru einnig að rann­saka mál tengd Samherja.

Einbeita sér að ásökunum um mútugreiðslur

Í við­tal­inu við Intra­fish sagði Björgólfur að Samherji væri að ein­beita sér að því að kanna ásak­anir um mútu­greiðslur og að fyr­ir­tækið hefði þegar úti­lokað að ásak­anir um pen­inga­þvætti ættu sér stoð. Enn er þó verið að rann­saka þær ásak­anir af yfir­völdum á Íslandi og í Noregi sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

[adspot]Aðspurður um hver áhrif Sam­herj­a­máls­ins gætu orðið fyrir fyr­ir­tækið sagði Björgólfur að það gæti orðið jákvætt af hvert og eitt fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi myndi reyna að styrkja áhættu­varn­ar­kerfin sín. Það gæti auk þess leitt til meira gagn­sæis við að til­kynna hátt­semi innan íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, stórra sem smárra.

Sam­herji til­kynnti um það í lok síð­ustu viku að fyr­ir­tækið ætli að þróa og inn­leiða heild­rænt stjórn­un­ar- og reglu­vörslu­kerfi sem bygg­ist á áhættu­skipu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars með áherslu á spill­ingu, efna­hags­legar refsi­að­gerðir og pen­inga­þvætti.

Í til­kynn­ingu vegna þessa kom fram að stefnt sé að því að ljúka inn­leið­ingu kerf­is­ins síðar á þessu ári og að ákvörðun um inn­leið­ingu kerf­is­ins hafi verið tekin á „grund­velli reynslu af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu.“

Sam­herji seg­ist vera að draga úr starf­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það sé hins vegar ljóst að það muni taka ein­hvern tíma.

Björgólfur sagði við Intra­fish að Samherji hefði ekki tapað neinum við­skipta­vini vegna þeirra ásak­ana sem settar hafa verið fram gagn­vart fyr­ir­tæk­inu. Við­skipta­vinir þess hafi hins vegar áhyggjur af stöðu mála og Samherji væri að vinna náið með þeim.

Meira fjármagn tryggt í rannsóknir

Sam­herji hefur verið í miklu brim­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­u­greiðsl­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­þús­undum gagna og upp­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­son­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­manns Sam­herja í Namib­­íu.

[links]Þegar er búið að hand­­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­ónir namibískra doll­­­­­ara, jafn­­­­­virði 860 millj­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­sóttan kvóta í land­in­u. Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­for­­­­­maður namibísku rík­­­­­is­út­­­­­­­­­gerð­­­­­ar­inn­ar Fishcor ný­ver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­son­ur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­­­starfs­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­skyld­u­­­­­bönd­um, ákærð­­­­ir.

Um síð­ustu helgi til­kynnti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um 200 millj­óna króna við­bót­ar­fjár­veit­ingu til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara, skatt­rann­sókn­ar­stjóra og Skatts­ins á þessu ári. Sú fjár­veit­ing kemur í kjöl­far þess að rík­is­stjórnin kynnti aðgerð­ar­á­ætlun í sjö liðum til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi. Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni sagði meðal ann­ars að hugað yrði sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara „í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­in­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár