200 milljónir til viðbótar settar í rannsóknir og varnir gegn peningaþvætti og skattsvikum

Hér­aðs­sak­sókn­ari fær við­bót­ar­fjár­magn til að rann­saka Sam­herj­a­málið og skatta­yf­ir­völd mun geta bætt við sig mann­afla tíma­bundið til að rann­saka „ýmis atriði sem þarfn­ast ítar­legrar skoð­unar“.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þær stofn­anir sem tengj­ast eft­ir­liti og vörnum gegn pen­inga­þvætti, skatt­rann­sóknum og skatt­eft­ir­liti munu fá 200 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði á þessu ári. Þetta er gert í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um að grípa til alls sjö aðgerða til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi, en aðgerð­ar­á­ætl­unin var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi 19. nóv­em­ber, nokkrum dögum eftir að opin­berun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera á meintum mútu­greiðslum, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja í Namibíu og víðar var birt.

Í henni kom fram að rík­is­stjórnin ætl­aði meðal ann­ars að tryggja við­bót­ar­fjár­veit­ingar til skatt­rann­sókna þar sem komið hefði fram „ýmis atriði sem þarfn­ast ítar­legrar skoð­unar af hálfu Skatt­rann­sókn­ar­stjóra og Rík­is­skatt­stjóra. Í ljósi umfangs og flækju­stigs slíkra mála hefur rík­is­stjórnin ákveðið að stofn­un­unum verði gert kleift að auka mann­afla tíma­bundið til að geta sinnt þessum verk­efnum á sem skjótastan og far­sælastan hátt.“ Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni sagði enn fremur að hugað yrði sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara „í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­inu.“

Samkvæmt til­kynn­ingu sem birt var á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í morgun eru þær stofn­anir sem munu skipta með sér við­bót­ar­fram­lag­inu Skatt­ur­inn (áður emb­ætti rík­is­skatt­stjóra og toll­stjóra), emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra og emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Þar segir að fjár­mun­irnir muni fara í efl­ingu rann­sókna og fjölgun rann­sak­enda hjá emb­ætt­unum. „Eftir umræðu seint á síð­asta ári um getu og stöðu eft­ir­lits­stofn­ana til að sinna sínum verk­efnum og bregð­ast við óvæntum, flóknum og umfangs­miklum verk­efnum var lagt mat á útgjalda­heim­ildir sem til þyrftu að koma. Ákveðið var að fjár­mögnun verk­efn­anna verði tryggð með milli­færslum innan mála­flokka og ráð­stöf­unum úr vara­sjóði. Ákvarð­anir um við­var­andi hækkun gjalda­heim­ilda verða teknar við gerð fjár­mála­á­ætl­unar 2021-2025.“

Allar stofn­an­irnar sem um ræðir hafa mál tengd Samherja til skoð­unar sem stendur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

Harðvítugar pólitískar deilur

Þegar Sam­herj­a­málið kom upp á yfir­borð­ið í nóv­em­ber varð harð­vítug póli­tísk umræða um hvers konar fjár­heim­ildir emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem sinnir nú efna­hags­brota­rann­sókn­um, þyrfti til að geta tek­ist á við það. Stjórn­ar­and­staðan ásak­aði rík­is­stjórn­ina um að vilja ekki fjár­magna nauð­syn­legar rann­sóknir, við litlar vin­sældir ráða­manna. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, rauk meðal ann­ars á dyr þegar óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tími stóð yfir á Alþingi 25. nóv­em­ber, og Sam­herj­a­málið var til umræðu, þar sem hann var sak­aður um að brjóta lög um opin­ber fjár­mál. Bjarni svar­aði því til í umræðu um málið að ef með þyrfti þá væri mögu­legt að sækja fjár­magn í vara­sjóð mála­flokka og að hann hefði engar áhyggjur að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fengi ekki nægi­legt fjár­magn ef þyrfti að rann­saka málið.

[adspot]Í minn­is­blaði sem Ólafur Þór Hauks­son hér­aðs­sak­sókn­ari sendi til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber kom fram að um hund­rað mál biði rann­sóknar hjá emb­ætt­inu og að núver­andi starfs­manna­fjöldi dygði ekki til að sinna öllum þeim rann­sókn­ar­verk­efnum sem það þarf að takast á við að óbreyttu, hvað þá við­bót­ar­málum af stærra umfangi. Meiri fjár­muni þyrfti til.

Ólafur Þór lagði til að starfs­mönnum á rann­sókn­ar­sviði emb­ættis hans yrði fjölgað um sex í byrjun árs 2020. Hann lagði auk þess til að starfs­mönnum verði mögu­lega fjölgað um tvo til við­bótar síðar á árinu ef verk­efna­staða emb­ætt­is­ins gefur til­efni til. Með­al­kostn­aður fyrir hvert starf sem við bæt­ist er áætl­aður 15 millj­ónir króna og því myndi fyrsta aukn­ingin kosta um 90 millj­ónir króna.

Aukið álag vegna betra eftirlits með peningaþvætti

Í minn­is­blað­inu var einnig fjallað um aukið álag vegna auk­inna umsvifa skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu, en hún hét áður pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa og var færð frá rík­is­lög­reglu­stjóra yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara sum­arið 2015. Þá starf­aði einn maður á skrif­stof­unni.

[adspot]Í kjöl­far þess að alþjóð­legu sam­tökin Financial Action Task Force (FATF) gáfu pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands fall­ein­kunn í úttekt sem var birt í apríl 2018 var ráð­ist í miklar umbættur á starf­semi hennar og starfs­fólki fjölgað til muna. Fjár­­munir hafa verið settir í að kaupa upp­­lýs­inga­­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­­semi innan bank­anna sjálfra hefur verið eflt. Inn­­­leið­ing þess kerfis er þó ekki að fullu til­­­bú­in og ekki er búist við því að hún klárist fyrr en á næsta ári. Þrátt fyrir að gripið hafi verið til þess að styrkja skrif­stof­una, og ann­arra marg­hátt­aðra ráð­staf­ana til að bregð­ast við aðfinnslum FATF, end­aði Ísland á gráum lista sam­tak­anna yfir ríki sem eru ekki búin að gera nóg til að verja sig fyrir pen­inga­þvætti.

Í minn­is­blað­inu benti Ólafur Þór á að fjölgun starfs­manna og efl­ing skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu hafi leitt til fleiri grein­inga þaðan til rann­sókn­ar­sviðs emb­ætt­is­ins sem þurfi að rann­saka. Taka þurfi til­lit til þess við fjár­veit­ing­ar.

Það bendi til þess að aukið eft­ir­lit með pen­inga­þvætti hafi þegar skilað því að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara sé að rann­saka fleiri slík mál en áður.

Gátu ekki klárað hrun­rann­sóknir

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem emb­ættið hefur verið í þeirri stöðu að geta ekki sinnt rann­sóknum í málum þar sem grunur leikur á um refsi­verða hátt­semi.

Í októ­ber 2018 sagði Ólafur Þór í við­tali á Hring­braut að nið­­ur­­skurð­­ur­inn sem emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara, sem síðar var breytt í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, var lát­inn sæta árið 2013, upp á 774 millj­­ónir króna, hafi gert það að verkum að ekki var hægt að klára rann­­sókn á sumum málum tengdum hrun­inu. „Auð­vitað voru þarna nokkur mál sem við hefðum viljað fara betur ofan í sem við höfðum ekki „resource-a“ til að taka.“

Ólafur Þór sagði þá að um 200 mál hefðu komið inn á borð emb­ætt­is­ins tengd hrun­inu. Af þeim hafi mörg verið sam­einuð og á end­­anum fóru 35 í ákæru­­ferli.

[links]Aðspurður um þau mál sem röt­uðu ekki í ákæru­­ferli sagði Ólafur Þór að þar væru fyrst og fremst um mál að ræða sem emb­ættið taldi að myndu ekki ná inn í dóm. „Ann­­ars vegar var þá hætt rann­­sókn eða þá mál voru full­­kláruð og svo tekið mat á því hvort þau stæð­ust sönn­un­­ar­­lega séð. Hvort það væru meiri lík­­indi en minni að það yrði sak­­fellt í þeim. Í nokkrum til­­vikum var það þannig að það þótti ekki vera. Síðan í rest­ina voru farin að koma inn frek­­ari sjón­­­ar­mið eins og til dæmis tíma­­lengd­in, hvað þetta var búið að taka langan tíma. Þar kom inn í að við erum skorin svo­­lítið hressi­­lega niður strax á árinu 2013, sem gerir það að verkum að sumt að því sem við vorum með það náði ekki fram.“

Þegar Ólafur Þór var spurður um það í þætt­inum hvernig það stæð­ist jafn­­ræð­is­­sjón­­ar­mið að sumir ein­stak­l­ingar slyppu við ákæru, og mög­u­­lega dóm, vegna þess að rann­­sókn á málum þeirra hefði tekið lengri tíma en hjá öðrum eða vegna þess að emb­ætt­inu skorti fjár­­­magn, svar­aði hann því til að það væri eðli­­legt að velta þeirri spurn­ingu upp. „En í mjög mörgum til­­vikum var um að ræða mál sem beindust að sömu aðilum og áður höfðu fengið dóma og jafn­­vel voru komnir með full­nýtta refsiramma, upp í sex ár. Þannig að það var í lang­flestum til­­vikum um slíkt að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár