Samherji ætlar að þróa kerfi til að hindra spillingu og peningaþvætti

Samherji ætlar að klára að inn­leiða kerfi sem bygg­ist á áhættu­skipu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars með áherslu á spill­ingu, efna­hags­legar refsi­að­gerðir og pen­inga­þvætti, á þessu ári. Ástæðan er „reynsla af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu.“

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, þegar hann tók við starfinu.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, þegar hann tók við starf­inu. Mynd: Samherji

Samherji ætlar að þróa og inn­leiða heild­rænt stjórn­unar- og reglu­vörslu­kerfi sem bygg­ist á áhættu­skipu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars með áherslu á spill­ingu, efna­hags­legar refsi­að­gerðir og pen­inga­þvætti. Þetta segir Björgólfur Jóhanns­son starf­andi for­stjóri Samherja, í frétta­til­kynn­ingu.

Þar kemur fram að stefnt sé að því að ljúka inn­leið­ingu kerf­is­ins síðar á þessu ári og að ákvörðun um inn­leið­ingu kerf­is­ins hafi verið tekin á „grund­velli reynslu af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu.“

Samherji seg­ist vera að draga úr starf­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það sé hins vegar ljóst að það muni taka ein­hvern tíma. „Allar ákvarð­anir vegna starf­sem­innar í Namibíu verða teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­völd og í sam­ræmi við gild­andi lög og reglur,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Þar er einnig haft eftir Björgólfi að kerfið muni „gegna lyk­il­hlut­verki í nýrri áætlun þar sem við munum krefj­ast þess að allir starfs­menn taki virkan þátt í ferli til að end­ur­meta gildi okkar, menn­ingu og starfsvenjur. Við munum síðan inn­leiða verk­ferla fyrir áhættu­mat og siða­reglur í sam­ræmi við kerfið.“

Segir að tekist hafi að verja öll viðskiptasambönd

Samherji hefur verið í miklu brim­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mútu­greiðsl­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­þús­undum gagna og upp­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­son­ar, fyrr­ver­andi starfs­manns Sam­herja í Namib­íu.

[adspot]Þegar er búið að hand­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­ónir namibískra doll­­­­ara, jafn­­­­virði 860 millj­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­sóttan kvóta í land­in­u. Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður namibísku rík­­­­is­út­­­­­­­gerð­­­­ar­innar Fishcor nýver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­sonur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­­starfs­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­­­­skyld­u­­­­bönd­um, ákærð­­­ir.

Mál Sam­herja er til rann­sóknar í Namib­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­mála­rann­sókn.

Í frétta­til­kynn­ing­unni sem birt er á vef Samherja í dag segir Björgólfur að þrátt fyrir alvar­legar ásak­anir á hendur félag­inu í fjöl­miðlum hafi tek­ist að verja öll sam­bönd við við­skipta­vini og sam­starfs­að­ila þess, bæði hér inn­an­lands og erlendis. Samherji hafi náð að þjón­usta alla við­skipta­vini sína með sama hætti og félagið hafi gert í gegnum tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár