Upp­hafs­menn Bauhaus Bauhaus-meist­arar uppi á þaki Gropius-bygg­ing­ar­innar í Dessau, frá vinstri: Josef Albers, Hinnerk Scheper, Georg Muche, László Moholy-Nagy, Herbert Bayer, Joost Schmidt, Walter Gropius, Marcel Breuer, Wassily Kand­in­sky, Paul Klee, Lyonel Fein­inger, Gunta Stölzl, Oskar Schlemmer.

Bauhaus: Listaháskólinn sem bjó til nútímann

Í goð­sagna­kennda hönn­un­ar­skól­anum Bauhaus sam­ein­uð­ust tækni og list, en póli­tíkin reyndi að ganga af honum dauðum.

Bauhaus-lista­há­skól­inn var stofn­aður í þýsku smá­borg­inni Weimar á vor­mán­uðum árs­ins 1919. Í ár hefur 100 ára afmæli skól­ans verið fagnað, reyndar ekki aðeins í Weimar, heldur um allan heim. Áhrif skól­ans verða seint ofmetin. Stofn­andi hans, Walter Gropius, er án nokk­urs vafa einn mik­il­væg­asti arki­tekt allra tíma, en það var ef til vill nálgun hans á skap­andi greinar og hug­mynda­fræði lista­há­skóla sem eiga mestan þátt í að umbylta skap­andi greinum og þeirri þýð­ingu sem sköpun hafði fyrir allt fólk, ekki aðeins hinar efna­meiri stéttir. Markmið Gropius voru að nýta nútíma tækni til að færa gjör­vallri alþýðu góða og fal­lega hönnun. Allt fólk átti að geta búið í hreinu, björtu og góðu hús­næði og fengið að njóta þess besta sem tæknin hafði skapað. Björn Teitsson stundar nám við end­urstofn­aðan Bauhaus-háskóla í Weimar og stiklar hér á stóru í stuttri sögu hins upp­runa­lega skóla sem starf­aði aðeins í 14 ár, frá 1919 til 1933.

Árið 1919 var mikið örlagaár í sögu Þýska­lands. Um sum­arið það ár voru Ver­sala­samn­ing­arnir und­ir­rit­aðir sem mark­aði um leið form­leg enda­lok fyrri heims­styrj­aldar, eða Stríðs­ins mikla eins og það var þá kallað. Um svipað leyti, eða frá 6. febr­úar, var sam­an­komið þýskt þjóð­þing í Weimar, menn­ing­ar­borg­inni í Thür­ingen, höf­uð­borg þýskra bók­mennta og fyrrum heima­borg Göthe og Schiller. Það var einmitt í húsi Rík­is­leik­húss­ins í Weimar, sem var stofnað af fyrr­nefndum bók­mennta­legu sálu­fé­lögum, sem þingið kom saman. Þar var samin Weimar-stjórn­ar­skráin, sem er enn talin ein fram­sækn­asta stjórn­ar­skrá allra tíma. Í öðrum hluta hennar, í efn­is­greinum 109 til 134, er fjallað um rétt ein­stak­linga og sam­fé­lags­ins. Þar var meðal ann­ars kveðið á um lög­bundið jafn­rétti kynj­anna, jafn­rétti allra Þjóð­verja fyrir lögum óháð stétt­ar­stöðu, prent- og tján­ing­ar­frelsi, kosn­inga­rétt allra sem náð höfðu 20 ára aldri, og, sem skiptir máli í til­viki Bauhaus, rétt fólks til að eiga heim­ili. Lýð­veldið sem þarna var stofnað, þar sem stjórn­ar­skráin var horn­steinn, hefur síðan verið kennt við Weimar.

Rætur til Íslandsvinar

Það var því við hæfi að á sama tíma og stjórn­mála­menn sömdu nýja fram­sækna stjórn­ar­skrá í Weimar, var þar einnig stofn­aður fram­sækn­asti lista­há­skóli heims fram til þess tíma, Staatliches Bauhaus, eða Rík­is­skól­inn Bauhaus. Upphaf skól­ans má reyndar rekja til 1860 þegar fyrst var stofn­aður lista­há­skóli í Weimar. Árið 1907 til 1915 var belgíski lista­mað­ur­inn og arki­tekt­inn Henry van de Velde skóla­meist­ari þess hluta skól­ans sem var kenndur við ver­ald­legar listir, eða sam­runa hand­verks og lista. Það var hann sem teikn­aði skóla­bygg­ing­una sem varð síðan fyrsta heim­ili Bauhaus, og það var van del Velde sem mælti sér­stak­lega með arf­taka sínum sem skóla­meist­ari. Átti það að vera Walter Gropius, ungur arki­tekt sem hafði vakið mikla athygli fyrir form­fastar bygg­ingar á borð við Fagus-verk­smiðj­una í Alfeld (1911–1913), sem og verk­smiðju­bygg­ingu sem var hönnuð fyrir sýn­ingu Deutscher Werkbund, Þýska list­iðn­að­ar­fé­lagið, í Köln árið 1914. 

Hús Walters GropiusEitt meist­ara­hús­anna í Dessau, hönnuð fyrir kenn­ara­lið Bauhaus. Þetta hús var fyrir Gropius sjálfan en það eyði­lagð­ist síðan í seinna stríði og stendur ekki lengur

Það var einmitt í þeim félags­skap þar sem van de Velde komst í kynni við Gropius og varð heill­aður af ástríðu hans fyrir sam­ein­ingu fagur- og nytja­lista, list­iðnar, sem við þekkjum venju­lega undir enska heit­inu „arts & crafts“, sem var upp­haf­lega gert frægt af Íslands­vin­inum, skáld­inu og þús­und­þjala­smiðnum William Morris upp úr miðri 19. öld. Bygg­ingar Gropius þóttu sér­stak­lega eft­ir­tekt­ar­verðar vegna áhersl­unnar sem hann lagði á þarfir fólks­ins sem not­uðu þær. Í verk­smiðju­bygg­ingum hafði fram til þessa verið lítið um birtu, þar voru þröng rými og loft­gæði af afar skornum skammti. Í Fagus-verk­smiðj­unni, sem var byggð úr hinni heilögu þrenn­ingu steypu, stáli og gleri, var hátt til lofts, þar voru stórir gluggar sem hleyptu inn nátt­úru­legri birtu og þar leið starfs­fólki vel. Gropius var undir miklum áhrifum frá læri­meist­ara sínum, Peter Behrens, sem hafði einmitt teiknað AEG-verk­smiðj­una í Berlín, sem byggir á sömu áherslum og fyrr­nefnd Fagus-verk­smiðja. Á teikni­stofu Behrens á árunum fyrir stríð var mikil gerjun, en á einum eða öðrum tíma störf­uðu þar þrír af áhrifa­mestu arki­tektum 20. aldar, auk Gropius þeir Ludwig Mies van der Rohe og Charles Edouard Jeann­eret, betur þekktur sem Le Corbusier.

Fallegasta hugsjón módernismans

Á Íslandi var mikið rætt um „upp­safn­aðan íbúða­skort“ fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Til að skilja Bauhaus, og módern­isma í bygg­ing­ar­list, þarf að skilja þær áskor­anir sem arki­tektar stóðu frammi fyrir í upp­hafi 20. aldar. Tækni­fram­farir á seinni hluta 19. aldar voru svo hraðar að slíkt hafði aldrei áður sést. Með til­komu alþýðu­mennt­unar, lestr­ar­kunn­áttu, fjölda dag­blaða og bóka var fólk upp­lýst­ara en nokkru sinni fyrr. Lest­ar­sam­göngur og útbreiðsla reið­hjóls­ins færði fólki áður óþekkt ferða­frelsi innan þétt­býlis og með til­komu stétt­ar­fé­laga sem börð­ust fyrir rétt­indum verka­manna fékk fólk jafn­vel að njóta frí­tíma, afþrey­ingar á borð við tón­leika, leik­hús eða bíó­sýn­inga. Heim­ur­inn var að breyt­ast hratt og íbúum fjölg­aði í borgum þar sem hin nýja mið­stétt hafði fundið sitt heim­ili.

Ný tækni, undir áhrifum fjölda­fram­leiðslu, þar sem not­ast var við steypu, stál og gler, umbylti bygg­ing­ar­að­ferðum.

Í Weimar sá Gropius tæki­færi til að koma sýn sinni í verk. Að end­ur­skapa hlut­verk lista­há­skóla með það mark­mið að sam­eina fagur-og nytja­listir til að þjóna hags­munum fólks­ins þar sem „loka­mark­mið allra skap­andi greina væri bygg­ingin“ (þ. das Endziel aller bildnerischen Tätig­k­eit ist der Bau), kjör­orð úr stefnu­yf­ir­lýs­ingu skól­ans. Náms­greinar, rétt eins og nem­end­urnir sjálfir, áttu að njóta jafn­ræðis, mjög í anda stjórn­ar­skrá­ar­innar sem þá var verið að semja í næsta nágrenni í Rík­is­leik­hús­inu. Og einmitt í anda hennar, með áherslu á rétt allra til að eiga heim­ili, vildi Gropius starfa að því mark­miði að finna lausnir á hús­næð­is­vanda. Ný tækni, undir áhrifum fjölda­fram­leiðslu, þar sem not­ast var við steypu, stál og gler, umbylti bygg­ing­ar­að­ferðum. Bygg­ing­ar­tím­inn varð styttri og efn­is­kostn­aður varð minni. Með þessu móti var draum­ur­inn, hug­sjónin, að skapa nýjan heim þar sem allt fólk gæti átt kost á góðu heim­ili loks­ins innan seil­ingar.

Dessau-heima­vistBakhlið Gropius-bygg­in­ar­innar var nem­enda­vistin í Dessau, full­komið dæmi um hrein form og nota­gildi í hug­mynda­fræði Bauhaus.

New York, París … Weimar?

Margt kom heim og saman fyrir Gropius árið 1919. Hann hafði sinnt her­skyldu og rúm­lega það í Stríðinu mikla. Hann hlaut til að mynda í tvígang Þýska járn­kross­inn, æðstu orðu þýska hers­ins, fyrir hug­prýði í skot­gröf­unum við vest­ur­víg­stöðv­arnar. Þá var hjóna­band Gropius og Ölmu Mahler, fyrri eig­in­konu Gustavs Mahlers, í and­ar­slitr­unum þótt þau hafi ekki skilið form­lega fyrr en 1920. Hann gat því beitt öllum sínum kröftum í Bauhaus og þar var fyrsta verk­efnið að skipa kenn­ara­lið skól­ans, sem reynd­ist alls ekk­ert slor. 

Það er furðu­legt að hugsa til þess að í Weimar árið 1919, sem var þá borg sem hafði um 40 þús­und íbúa, hafi verið lista­mannaný­lenda sem taldi marga af áhrifa­mestu og fram­bæri­leg­ustu lista­mönnum sög­unnar. Að smá­borg í Thür­ingen sé nefnd í sömu andrá og París á milli­stríðs­ár­unum er ekk­ert minna en ótrú­legt. Í kenn­ara­liði skól­ans mátti finna nöfn á borð við Paul Klee, Josef og Anni Albers, László Moholy-Nagy, Lyonel Fein­inger, Marcel Breuer, Hannes Mayer, Herbert Bayer og umdeil­an­legan föður abstrakt-list­ar­innar, Wassily Kand­in­sky. Áhrifa­mesti kenn­ar­inn til að byrja með skar sig þó nokkuð úr, og átti sér­stakan þátt í að skapa goð­sögn­ina um Bauhaus í Weimar, sem varð að lokum til þess að skól­inn var hrak­inn þaðan á brott. Sá kenn­ari var Johannes Itten. 

Bauhaus-sýn­ingin aug­lýstUpp­runa­leg aug­lýs­inga­spjöld fyrir Bauhaus-sýn­ing­una í Weimar 1923. Höfundar: Fritz Schleifer, Joost Schmidt, Lázló Moholy-Nagy og Oskar Schlemmer.

Úrkynjun og svall

Miðað við það sem hér hefur komið fram mætti ímynda sér Weimar árið 1919 sem frjáls­lynda vin í eyði­mörk skorts og bug­unar Þýska­lands í kjöl­far stríðsloka. En málið er ekki svo ein­falt. Weimar hefur vissu­lega verið mið­punktur menn­ing­ar­starfs um margar aldir, þar hafa dafnað bók­menntir, fag­ur­listir og tón­list svo eftir var tekið. En þar var um að ræða lista­menn á fram­færi vel­gjörða­manna, þá sér­stak­lega stór­her­toga­ætt­ar­innar við Saxe-Weimar. Þetta átti við um helstu nöfn þýskrar menn­ing­ar­sögu, þá Göthe og Schiller, enn fremur um Johann Sebast­ian Bach á sínum tíma og síðar Franz Liszt. 

Í þetta sinn var stofn­aður lista­há­skóli sem var á fram­færi borg­ar­innar, greiddur með skattfé. Alþjóð­legt kenn­ara­lið var flutt til borg­ar­innar, nem­endur komu úr öllum áttum, jafn­vel voru stúlkur farnar að ganga í lista­há­skóla, sem þótti afar rót­tækt. Veisl­urnar sem haldnar voru í hverri viku fóru heldur ekki fram­hjá bæj­ar­búum. Ímyndið ykkur 40 þús­und manna borg, sem er þétt­byggð með ein­dæmum, þar sem er engin bíla­um­ferð og alger þögn meiri­hluta sól­ar­hrings­ins. Nema frá van de Welde-bygg­ingu Bauhaus, þar sem dun­aði djass- og sígaunatón­list langt fram á nótt. Kennari þeirra var síðan Johannes Itten, sem með útliti sínu hræddi góð­borg­ara upp úr skónum. Itten var enda græn­keri (vegan), stund­aði hug­leiðslu, var með höfuð rakað og gekk um borg­ina í kufli líkt og munkur. 

Hug­leiðsla og sam­söngur hluti námsJohannes Itten: Johannes Itten var einn áhrifa­mesti kenn­ari Bauhaus frá stofnun 1919 til árs­ins 1922. Hann stjórn­aði for­nám­inu, sem allir nem­endur þurftu að klára, þar sem stunduð var hug­leiðsla og sam­söngur. Útlit Itten þótti mjög fram­andi á þriðja ára­tug síð­ustu aldar.

Sögurnar sem gengu um á meðal borg­ar­búa voru á eina leið, Bauhaus-nem­end­urnir, die Bauhäuslers, stund­uðu við skól­ann ekk­ert nema svall og svínarí, þar grass­er­aði komm­ún­ismi, femín­ismi og alþjóða­hyggja, fyrir utan að öll list­sköpun sem þar fór fram var úrkynjuð (minnir um margt á Jónas frá Hriflu og lista­manna­deil­una á Íslandi um 20 árum síðar). Allt var þetta síðan í boði yfir­valda, í óþökk borg­ar­anna. Í dag­blöðum birt­ust reglu­lega skoð­anapistlar þar sem Bauhaus var úthrópað sem óæski­legt synda­bæli en þar var einn helsti gagn­rýn­andi jafnan Elizabeth Förster-Nietzsche, systir Friedrichs Nietzsche, sem hafði sest að í Weimar til að sinna skjala­safni bróður síns heit­ins. Hún var yfir­lýstur þjóð­ern­is­sinni og ras­isti, og átti síðar eftir að gegna lyk­il­hlut­verki í áróð­urs­stríði nas­ista til að hrifsa völd í Þýska­landi. 

List og tækni – ný eining

Það var því ekki síst vegna áhyggju­fullra góð­borg­ara sem stjórn­völd í Thür­ingen fóru bein­línis fram á það að Bauhaus myndi sanna til­veru­rétt sinn. Frá ágúst til loka sept­em­ber árið 1923 var því haldin Bauhaus-sýn­ingin, þar sem afurðir skól­ans mátti sjá, allt frá barna­leik­föngum til híbýl­is­ein­inga, allt frá hús­bún­aði til graf­íkverka. Ein­kunn­ar­orð sýn­ing­ar­innar voru „List og tækni - ný ein­ing.“ Hýbílis­ein­ingin vakti mesta athygli, hið fer­hyrnda ein­býli Haus am Horn, teiknað af Georg Muche, með hús­gögnum eftir nem­endur og kenn­ara skól­ans, til að mynda Marcel Breuer og Ölmu Siedhoff-Buscher. 

Um 15 þús­und gestir sóttu sýn­ing­una sem þótti vel heppnuð. Þar voru fyr­ir­lestrar og tón­leikar haldnir fyrir utan hefð­bundnar sýn­ingar á verkum skól­ans, en auk þess voru flutt inn verk, teikn­ingar og upp­drættir eftir móderníska arki­tekta á borð við Frank Lloyd Wright, áður­nefndan Le Corbusier og Ludwig Mies van der Rohe, sem átti síðar eftir að verða skóla­meist­ari Bauhaus. 

Nokkur dæmi um klass­íska Bauhaus-iðn­hönnun fyrir heim­iliðEfri röð: Lampi eftir Victor Wagenfeld (1924). Vagga eftir Peter Keler (1922). Neðri: Kaffi­kanna og tek­atlar auk fylgi­hluta eftir Marianne Brandt (1924). Skáksett eftir Josef Hartwig (1924). Hartwig var einn fárra kenn­ara við Bauhaus sem varð með­limur Nas­ista­flokks­ins eftir að skól­anum var lokað. Sem er ekki gott fyrir neinn.

En sýn­ingin var ekki nóg. Um leið og sós­í­alde­mókratar misstu völdin í Thür­ingen í rík­is­kosn­ingum árið 1924 til Þýska þjóð­ar­flokks­ins, var ljóst að örlög skól­ans í Weimar voru ráðin. Fjár­stuðn­ingur var skor­inn í tvennt og skömmu síðar var hann alveg horf­inn. Þegar vetr­ar­önn 1924-1925 lauk í mars var ævin­týri Bauhaus lokið í Weimar, eða í öllu falli uns skól­inn var end­urstofn­aður um 70 árum síðar. Nú voru ný ævin­týri í sjón­máli, um 100 kíló­metrum norðar, í iðn­að­ar­borg­inni Dessau í Anhalt. 

Bauhaus Dessau 

Fyrir til­stilli fram­sýnna og frjáls­lyndra stjórn­mála­manna og vel­gjörða­manna í Dessau varð til ein­stakur sam­runi list­sköp­unar og iðn­aðar við opnun Bauhaus-skól­ans. Má þar helst nefna Fritz Hesse, borg­ar­stjóra, sem hafði einmitt sem þing­maður Þýska lýð­ræð­is­flokks­ins (DDP) verið einn höf­unda Weimar-stjórn­ar­skrá­ar­innar. Þá má ekki gleyma þáver­andi millj­óna­mær­ingnum, flug­véla­smiðnum og frið­ar­sinn­anum Hugo Junkers, sem lagði per­sónu­lega til fé svo Bauhaus fengi að dafna í Dessau. Og nú í glæ­nýrri bygg­ingu sem má segja að sé flagg­skip bygg­ing­ar­listar Gropius. 

Dessau-bygg­ingin

Bauhaus-bygg­ingin í Dessau er, líkt og van de Welde-bygg­ingin í Weimar, á heimsminja­skrá UNESCO. Hún er ein­stök, fram­úr­stefnu­leg og nútíma­leg, og það jafn­vel enn í dag. Bygg­ing­ar­efnin eru hin heilaga þrenn­ing; steypa, stál og gler, formin eru hrein og nota­gildið í fyr­ir­rúmi. Nem­enda­vistin bauð upp á vist­leg her­bergi sem voru einnig hugsuð sem vinnu­að­staða nem­enda, þar er sam­komu­salur og mat­salur, fyr­ir­lestr­ar­salir og verk­stæði. Skammt frá skól­anum var síðan ein­stök götu­mynd húsa sem Gropius hann­aði fyrir kenn­ara­lið skól­ans, meist­ara­húsin svoköll­uðu, sem mörg hver standa enn í dag og hafa fengið nauð­syn­lega and­lits­lyft­ingu. 

Í Dessau varð tals­verð stefnu­breyt­ing í kennslu­háttum. Itten var horf­inn á braut og meiri áhersla var lögð á praktískt gildi skól­ans, að hann kæmi því í verk það sem hann predik­aði. Iðn­hönnun varð áber­andi, ekki síst vefn­að­ar­verk­stæðið sem var stýrt af Guntu Stölzl, sem var ein af fáum kven­kyns meist­urum sem fengu að kenna við skól­ann (þótt Bauhaus hafi boðað jafn­rétti kynj­anna í orði, var raunin sorg­lega önnur á borði). Stölzl vildi færa vefn­að­ar­list­ina frá þeirri staðalí­mynd að hún væri ein­ungis „kvená­huga­mál“ og gerði hana að órjúf­an­legum hlut hús­gagna­hönn­unar, ekki síst í stóla­hönnun, þar sem sam­starf hennar og Marcels Breuer varð víð­frægt. 

Grímu­ball BauhausSkemmt­ana­lífið við Bauhaus var ein­stakt. Þar stóðu veislur jafn­vel í marga daga, hús­bandið spil­aði djass og sígaunatón­list sem borg­ar­búar Weimar töldu frá djöfl­inum sjálfum. Hápunktur hvers árs voru grímu­böllin, hér er mynd frá einu slíku frá árinu 1923.
Haus am HornHaus am Horn var eitt flagg­skipa Bauhaus-sýn­ing­ar­innar í Weimar 1923. Teiknað af Georg Muche undir hand­leiðslu Gropius, með hús­gögnum eftir nem­endur og kenn­ara skól­ans. Ef til vill eins og hvert annað ein­býl­is­hús á Flötunum en á þeim tíma alveg ein­stakt.

Upphaf endalokanna 

En þótt vel gengi að skapa vörur og hönnun, kraum­aði undir póli­tísk óvissa sem gerði skól­anum erfitt fyrir. Gropius sagði starfi sínu lausu árið 1928, álagið sem fylgdi því að lægja póli­tískar öldur hafði tekið sinn toll. Þótt Gropius hafi aldrei verið póli­tískur, að öðru leyti en að trúa á jafn­rétti og til­veru­rétt hönn­unar og skap­andi greina, gat hann ekki sætt sig við fas­isma eða órétt­læti. Þegar Þýska list­iðn­að­ar­fé­lagið fór að segja upp félögum sínum sem voru gyð­ingar, hætti Gropius í félag­inu. Þegar skrif­stofu­stjóri Bauhaus mætti eitt sinn til vinnu í nas­ista­bún­ingi, rak Gropius hann á staðnum. 

Hannes Mayer tók við af Gropius sem skóla­meist­ari en varð ekki lang­lífur í starfi. Honum tókst ekki að feta í fót­spor Gropius sem manna­sættir og hafði ef til vill ekki sömu vigt til að standa í hári íhalds­afla. Gropius var auð­vitað erf­iður viður­eignar fyrir póli­tíska and­stæð­inga Bauhaus því hann var ekki aðeins frjáls­lyndur lista­maður, hann var líka stríðs­hetja sem hafði barist í skot­gröf­unum fyrir þjóð sína. Mayer var aftur á móti rót­tækur komm­ún­isti. Hann rak Herbert Bayer og Marcel Breuer úr kenn­ara­lið­inu því þeir voru ekki nægi­lega rót­tækir að hans mati. Mikil óein­ing mynd­að­ist við skól­ann sem end­aði með því að borg­ar­stjór­inn Hesse rak Mayer úr stöðu sinni árið 1930. Við tók Mies van der Rohe, sem fékk sér­stak­lega góð með­mæli frá Gropius. 

En rétt eins og í Weimar, var Bauhaus hrak­inn á brott af póli­tískum öflum. Nasistar náðu völdum í borg­ar­stjórn Dessau árið 1931, og um leið var skól­inn óvel­kom­inn. Mies van der Rohe flutti skól­ann í verk­smiðju­bygg­ingu í Berlín en kraft­ur­inn var að mestu far­inn úr starf­inu sem hafði reynst svo gjöf­ult. Framlag Mies, og sam­ferða­konu hans Lilly Reich, má þó ekki van­meta, þá sér­stak­lega þegar kom að hús­gagna­hönnun en þau höfðu þá þegar hannað hina heims­frægu stóla kennda við Barcelona ann­ars vegar og Brno hins vegar. Bauhaus, í sinni upp­runa­legu mynd, var lokað árið 1933 eftir 14 ára starf. Það sama má segja um Weimar-lýð­veldið sem leið undir lok á sama tíma. Hitler komst til valda árið 1933 og nýr veru­leiki blasti við Þýska­landi. 

Bauhaus-háskól­innAðal­bygg­ing Bauhaus í Weimar var teiknuð af Henry van de Welde í art nouveau-stíl og var reist á árunum 1904 til 1911. Hún er enn notuð í dag sem aðal­bygg­ing Bauhaus-háskól­ans.

Bauhaus í dag

Arfleifð Bauhaus-háskól­ans er enn lif­andi í dag og er haldið á lofti í Weimar. Borgin hefur þurft að fara í gegnum mikið upp­gjör vegna sam­bands síns við skól­ann, en eftir að hann var end­urstofn­aður í borg­inni árið 1996 má segja að hann hafi loks­ins verið tek­inn í sátt. Nýtt Bauhaus-safn var opnað á vor­dögum afmæl­is­árs­ins en safn­bygg­ingin sjálf á einmitt að minna á hrein og skýr fag­ur­fræði­leg form, í anda Bauhaus, en einnig lokað og kalt póli­tískt við­mót sem skól­inn þurfti að glíma við á milli­stríðs­ár­unum. Í núver­andi skóla er síðan enn er lögð áhersla á sam­tvinnun tækni­greina, iðn­hönn­unar og lista. Kenn­ara­liðið er alþjóð­legt og nem­enda­hóp­ur­inn einnig, rétt eins og fyrir 100 árum. Og gott ef við­mótið er ekki orðið aðeins hlý­legra frá yfir­völdum, þótt aldrei megi sofna á verð­inum eins og sagan sannar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár