Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna segjast ekki geta undir neinum kringumstæðum nema að einu leiti tekið undir nauðsyn þess að afnema stimpilgjöld af fiskiskipum. Undantekningin sé sú þegar skip komi i fyrsta skipti á íslenska skipaskrá.
[adspot]Í umsögn þeirra um frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um afnám stimpilgjaldsins segir að þau hafi verið nauðsynlegur hemill til að vernda störf íslenskra sjómanna sem taka laun eftir íslenskum kjarasamningum. Félögin benda á að í lang flestum tilfellum séu íslenskir sjómenn fjölskyldumenn sem eigi lífsviðurværi sitt undir öruggu rekstrarumhverfi þeirra skipa sem séu þeirra starfsvettvangur. „Með því að aflétta stimpilgjaldi er útgerðinni gert kleift að flagga skipum út og inni af íslenskri skipaskrá að eigin geðþótta og stefna afkomu sjómannanna í stórhættu.
Í umsögn þeirra segir einnig að í ljósi þess sem fram kemur í „Samherjaskjölunum“ svokölluðu ætti Alþingi að fara sér afar hægt í þessum efnum.
Áður hafði félag skipstjórnarmanna skilað sambærilegri umsögn og sagt að ákvæði laganna um stimpilgjöld væri sá þröskuldur sem komið hefði í veg fyrir stóraukna hreyfingu skipa inn og út af íslenskri skipaskrá undir erlent flagg og til baka.“
SFS barist lengi fyrir afnáminu
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa einnig sent inn umsögn, sem birt var á vef Alþingis í gær. Þau taka undir mikilvægi þess að afnema stimpilgjald af skjölum varðandi eignayfirfærslu á skipum. „Mikilvægt er að heimatilbúnar hindranir dragi ekki mátt úr íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum sem eiga í harðri samkeppni á alþjóðlegum markaði. Stjórnvöld eru hvött til þess að gæta að samkeppnishæfni íslenskra útflutningsfyrirtækja því að í þeim efnum er hægara að styðja en reisa.“
[adspot]SFS þvertekur auk þess fyrir það að staða íslenskra sjómanna muni breytast verði stimpilgjöldin afnumin. Á árunum 2008 til 2017 greiddu sjávarútvegsfyrirtæki rúmlega 1,2 milljarða króna í stimpilgjald vegna fiskiskipa.
SFS hafa barist hart fyrir því að gjaldið verði afnumið undanfarin misseri, meðal annars í umsögn um fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp fyrir árið 2020. Þar sögðu þau aðgerðina nauðsynlega og löngu tímabæra.
Í umsögninni sagði meðal annars að það væri mat samtakanna að mikilvægt sé að átta sig á því að skip séu ekkert annað en atvinnutæki þeirra sem þau nota. „Með því að fara fram á háa greiðslu stimpilgjalda vegna skipa sem eru yfir 5 brúttótonnum á sér stað mismunun eftir atvinnugreinum, enda ljóst að aðrir lögaðilar sem notast þurfa við tæki á borð við flugvélar, rútur, vinnuvélar eða önnur stórvirk atvinnutæki er ekki skylt að greiða stimpilgjöld.[...] Jafnframt ber að nefna að fyrirtæki í útgerð sem hafa áhuga á að endurnýja sinn skipakost, þurfa ekki aðeins að greiða 1,6% stimpilgjald heldur verður það 3,2% af verðmæti viðskiptanna sem fer í stimpilgjöld. Þannig þurfa fyrirtækin jafnan að greiða bæði gjaldið við sölu eldra skips og síðan aftur við kaup á nýju skipi og því verður álagningin í raun tvöföld við endurnýjun skipastóls.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir