Sjávarútvegsráðherra boðaður á fund atvinnuveganefndar

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra komi fyrir atvinnu­vega­nefnd og ræði meðal ann­ars afleið­ingar Sam­herj­a­máls­ins á önnur íslensk fyr­ir­tæki og grein­ina í heild sinni.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG og nefnd­ar­maður í atvinnu­vega­nefnd Alþingis, hefur óskað eftir því að Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra mæti sem fyrst á fund atvinnu­vega­nefndar til að fara yfir Sam­herj­a­málið. Meðal ann­ars til að ræða hvort að ráðu­neytið hafi gripið til ein­hverra aðgerða vegna máls­ins og ef svo er, til hvaða aðgerða. Rósa Björk greinir frá þessu í Facebook-færslu í morgun.

Íslensk stjórnmál geti ekki setið hjá aðgerðarlaus

„Áhrif Sam­herj­a­máls­ins eigum við eftir að sjá að fullu leyti. Þar undir er skatt­kerfi okkar og eft­ir­lit með því, sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi, alþjóða­sam­vinna sem snýst ekki bara um heil­indi í þró­un­ar­sam­vinnu og eft­ir­fylgni með henni, heldur líka að standa við alþjóð­lega samn­inga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og spill­ingu, náin tengsl stjórn­mál­anna og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. Stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem beðið hefur verið eftir í alltof langan tíma. Orðspor okkar á erlendri grundu. Og fleira - eins ótrú­legt það kann að hljóma,“ skrifar Rósa Björk en að hennar mati er Sam­herj­a­málið af þeim skala og af því umfangi að íslensk stjórn­mál geti ekki setið hjá aðgerða­laus. [adspot]

Hún hefur því óskað eftir því að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra komi fyrir atvinnu­vega­nefnd og ræði stöðu Samherja sem sé stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins og jafn­framt eitt umfangs­mesta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í Evrópu. Enn fremur þurfi að ræða afleið­ingar Sam­herj­a­máls­ins á önnur íslensk fyr­ir­tæki og grein­ina í heild sinni.

„Á mál­inu eru margar hliðar en grunn­kjarn­inn í því er samt nýt­ing á auð­lind okkar allra og útdeil­ing á arð­inum á þeirri nýt­ingu. Sam­söfnun auðs á fárra manna hendur, í stað þess að meiri arður af nýt­ing­unni renni í sam­eig­in­lega sjóði okkar allra er stefið í margra ára deilum íslensks sam­fé­lags um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið,“ skrifar Rósa Björk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár