Kanna matarsóun Íslendinga

Umhverf­is­stofnun ætlar að rann­saka ítar­lega umfang mat­ar­só­unar á þessu ári.

Umhverf­is­stofnun hefur ákveðið að hrinda af stað ítar­legri rann­sókn á umfangi mat­ar­só­unar á Íslandi árið 2019. Þetta kemur fram í frétt Umhverf­is­stofn­unar. 

Í næstu viku verður byrjað að hringja út til ríf­lega 1.000 heim­ila sem lenda í slembi­úr­taki og heim­il­is­fólk beðið að taka þátt í rann­sókn­inni. Þátt­tak­endur verða beðnir að vigta mat og mat­ar­úr­gang sem fer til spillis á heim­il­inu í eina viku og skrá inn í gagna­gátt sem vistuð er á heima­síðu Umhverf­is­stofn­unar. Síðar verður hringt í fyr­ir­tæki, einnig sam­kvæmt slembivali. Gallup sér um úthring­ing­arnar.

Vestræn lönd sóa gíf­ur­legu magni mat­væla á hverju ári sem hefðu hugs­an­lega geta brauð­fætt millj­ónir manna. Mat­væla­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna metur það sem svo að 1,3 milljón tonn af mat­vælum fari í ruslið á hverju ári. Semsagt um þriðj­ungur þess matar sem keyptur fer beint í ruslið.

Í frétt Umhverf­is­stofn­unar kemur fram að þau von­ist til að sem flestir sjái sér þess kost að taka þátt í rann­sókn­inni, því góð þátt­taka sé for­senda þess að áræð­an­legar upp­lýs­ingar fáist um umfang mat­ar­só­unar hér á landi. Umhverf­is­stofnun stóð fyrir sam­bæri­legri rann­sókn árið 2016.

Mat­ar­só­un­ar­rann­sóknin er gerð með styrk frá Evrópsku hag­stof­unni (EUROSTAT). Til­gang­ur­inn er að afla hagtalna um umfang mat­ar­só­unar á Íslandi, sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár