Segir forystu Sjálfstæðisflokksins vera sama um vilja flokksmanna

Stríð Davíðs Odds­sonar og Morg­un­blaðs­ins sem hann stýrir við Sjálf­stæð­is­flokk­inn heldur áfram á síðum blaðs­ins í dag. Þar gagn­rýnir hann for­ystu flokks­ins harka­lega og bætir í gagn­rýni sína vegna þriðja orku­pakk­ans.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að for­ystu­sveit flokks­ins sé nú nokkuð sama um hvað sé sam­þykkt á lands­fundum, að í þá sveit rað­ist reynslu­lítið fólk sem hafi fengið póli­tískt vægi „langt umfram það sem áður tíðk­að­ist“ og að lask­aður flokk­ur­inn sé að taka á sig enn meira högg með stuðn­ingi sínum við þriðja orku­pakk­ann. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins í dag.

[links]Davíð skrif­aði hvassa gagn­rýni á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og for­ystu hans á sama vett­vangi fyrir viku síðan sem vakti mikla athygli, enda hefur Morg­un­blaðið nær alltaf fylgt Sjálf­stæð­is­flokknum að málum og Davíð ein fyr­ir­ferð­ar­mesti for­maður í sögu flokks­ins. Þá sagði hann meðal ann­ars að Morg­un­blaðið væri borg­ara­legt blað og þótt „það lúti ekki fjar­stýr­ingum utan úr bæ frá flokkum eða ein­stak­lingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en ekki að geta átt góða sam­leið með flokknum ef hann er sjálfum sér sam­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sín­um.“

Gagnrýnir flokksforystuna

Í Reykja­vík­ur­bréfi dags­ins heldur gagn­rýni Davíðs á flokk­inn áfram og hún grund­vall­ast fyrst og síð­ast á afstöðu hans flokks­ins í þriðja orku­pakka­mál­inu, sem hann styður ásamt fjórum öðrum flokkum á þingi.

[adspot]Gagn­rýnin bein­ist bæði gegn því að í for­ystu flokks­ins sé ekki að velj­ast nægi­lega öfl­ugt fólk, og án þess að það sé sagt berum orðum er þar ugg­laust verið að vísa til Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, vara­for­manns flokks­ins, og Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, rit­ara hans, sem eru báðar ungar konur sitt hvoru megin við þrí­tugt. Þær hafa báðar verið í stórum hlut­verkum í orku­pakka­mál­inu, Þórdís Kolbrún sem ráð­herra orku­mála og Áslaug Arna sem for­maður utan­rík­is­mála­nefndar.

Í bréf­inu segir Davíð að það hafi lengi verið „óskráð meg­in­regla í Sjálf­stæð­is­flokknum, sem reynd­ist vel, að hversu öfl­ugur sem for­maður flokks­ins væri, sem þeir voru sann­ar­lega lang­flestir, skyldi lands­fundur eða flokks­ráðs­fundur tryggja að sá sem næstur stæði for­mann­inum hefði ríku­lega stjórn­mála­lega reynslu ef örlög eða atvik hög­uðu því svo að fylla þyrfti skarðið yrðu góð tök á því.“

Nú þyki hins vegar fínt að reynslu­lítið fólk „sem hefur fengið póli­tískt vægi með slíkt nesti langt umfram það sem áður tíðk­að­ist, tali niður til flokks­systk­ina sinna og leggi lykkju á leið sína til að vísa þeim sem eldri eru út úr umræð­unni með þótta sem fer öllum illa.“

Segir Halldór stjórnast af ættarvita

Davíð rekur svo hvernig farið hafi verið með drög að lands­fund­ar­sam­þykktir í hans tíð og hvaða aðferð­ar­fræði hefði verið beitt til að semja um agnúa á þeim. Þá hefðu slíkar sam­þykktir verið teknar „mjög alvar­lega“. Síðustu árin hafi hins vegar virst sem að for­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins „sé nokkuð sama um hvað sam­þykkt sé á lands­fundum, því að ekk­ert þurfi með það að gera.“

Gagnrýni Davíðs á flokks­for­yst­una og flokk­inn und­an­farið hefur kallað fram við­brögð. Einn þeirra sem hafa svarað honum á opin­berum vett­vangi er Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­seti Alþingis, sem starf­aði með Davíð í stjórn­málum ára­tugum saman. Halldór er frændi Bjarna Bene­dikts­sonar, núver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í grein sinni benti Halldór á að bréfa­skriftir geti verið hættu­legar þar sem þær lýsi því í hvaða sál­ar­á­stand­i ­maður er þá ­stund­ina. Síðan gagn­rýndi hann fram­setn­ingu Davíðs á þriðja orku­pakka­mál­inu.

[adspot]Í Reykja­vík­ur­bréf­inu í dag segir Davíð að Halldór Blöndal hafi stundum, hér áður fyrr, haft átta­vita sem mátti hafa hlið­sjón af. „En hann ratar illa eftir að notk­unin á ætt­ar­vit­anum óx. Og lendir þá í hverri haf­vill­unni af annarri. Ætt­ar­vit­anum fylgdi hann þegar hann kúventi yfir nótt og lagð­ist á árar með Jóhönnu og Stein­grími í Icesave og erlendum kröfu­höfum. Flokk­ur­inn hans og okkar hefur ekki borið sitt barr síðan.“

Hann segir að kann­anir sýni að þorri flokks­manna sé á móti þriðja orku­pakk­anum og að eng­inn hafi fengið að vita af hverju for­ysta flokks­ins hafi farið gegn flokknum í Icesave-mál­inu. „Og nú fær eng­inn að vita „af hverju í ósköp­unum“, svo notuð séu orð for­manns­ins sjálfs, lask­aður flokk­ur­inn á að taka á sig enn meiri högg. Halldór Blöndal áttar sig ekki á þessu fremur en Icesave, sem hann hafði barist gegn þar til ætt­ar­vit­inn tók öll völd. Þessi sami ætt­ar­viti sem núna er að ærast í seg­ul­stormunum.“

Segir Bjarna hafa gefið til kynna að hann ætlaði ekki að skipa Má

Davíð rifjar líka upp þegar Már Guð­munds­son var end­ur­skip­aður seðla­banka­stjóri af Bjarna Bene­dikts­syni árið 2014, en Davíð var sjálfur seðla­banka­stjóri í nokkur ár þangað til að gerð var laga­breyt­ing árið 2009 sem leiddi til þess að að hann fór úr starfi. Vinstri stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur skip­aði svo Má í stöð­una síðar á því ári.

Davíð greinir frá því að Bjarni hefði „bæði gefið til kynna og sagt ýmsum frá að hann ætl­aði sér ekki að end­ur­skipa Má Guð­munds­son þegar að því kom árið 2014. Þegar að þessu dró var ráð­herr­ann staddur fyrir norðan, senni­lega á Siglu­firði, og hringdi í menn og upp­lýsti þá, og þar á meðal rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að vegna óvænts flækju­stigs sem upp hefði komið (sem ekki verður farið út í hér) hefði hann ekki náð að gera breyt­ing­arnar sem hann hefði marg­boðað. Hann myndi því skipa Má og skip­un­ar­bréfið gæfi til kynna að það yrði til fimm ára. Hins vegar væri sam­eig­in­legur skiln­ingur á því að skip­unin stæði í hæsta lagi til eins árs.

Ekki voru endi­lega allir mjög trú­aðir á þennan mála­til­búnað. En sam­kvæmt minnis­p­unkt­unum sagði ráð­herr­ann efn­is­lega á þessa leið: Þessu mega menn treysta og Már gerir sér grein fyrir þessu og mun birta yfir­lýs­ingu sem í raun stað­festir það sem ég er að segja.“

Már situr enn sem seðla­banka­stjóri og mun ljúka síð­ara kjör­tíma­bili sínu sem slíkur í ágúst næst­kom­andi. Nú stendur yfir ráðn­ing­ar­ferli á eft­ir­manni hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár