Segir Morgunblaðið ekki lúta fjarstýringum utan úr bæ frá flokkum

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins gagn­rýnir for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins harka­lega í Reykja­vík­ur­bréfi. Hann segir blaðið ein­ungis geta átt sam­leið með flokknum ef hann sé „sjálfum sér sam­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sínum.“

„Morg­un­blaðið er borg­ara­legt blað og þótt það lúti ekki fjar­stýr­ingum utan úr bæ frá flokkum eða ein­stak­lingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en ekki að geta átt góða sam­leið með flokknum ef hann er sjálfum sér sam­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sínum.“

Þetta skrifar Davíð Oddsson, annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, í Reykja­vík­ur­bréfi í blað­inu í dag þar sem umfjöll­un­ar­efnið er að uppi­stöðu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, meint fjar­lægð hans frá kjós­endum sínum og þriðji orku­pakk­inn.

Davíð er fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ára­tugum saman hefur verið form­legt eða óform­legt sam­band milli flokks og blaðs, sem oftar en ekki hafa gengið í takt. Full­trúar Morg­un­blaðs­ins sátu til að mynda ára­tugum saman þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks. Þótt slitið hafi verið á þau form­legu tengsl seint á síð­ustu öld. Und­an­farin ár hefur farið minna fyrir því og gagn­rýni á for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins orðið algeng­ari í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins. Þar hefur mál­flutn­ingur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Mið­flokks hans átt meira upp á pall­borðið síð­ustu miss­erin en það sem for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur haft fram að færa.

[adspot]Sú gagn­rýni sem Morg­un­blaðið hefur sett fram á Sjálf­stæð­is­flokk­inn hefur verið sér­stak­lega hörð vegna afstöðu flokks­ins gagn­vart þriðja orku­pakk­anum, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður ásamt fjórum öðrum flokkum á Alþingi. Einungis Mið­flokk­ur­inn með níu þing­menn og Flokkur fólks­ins með tvo eru á móti sam­þykkt frum­varpa sem stuðla að inn­leið­ingu hans.

Eitt ár átaka

Í lok ágúst í fyrra var hald­inn fjöl­mennur fundur í Val­höll á vegum hverfa­­fé­laga Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins í Smá­í­­­­búða-, Bú­­­­staða- og Foss­vogs­hverfi og Hlíða- og Holta­hverfi í Reykja­vík­­­­­ur. Sá fundur sendi frá sér ályktun þar sem skorað var „ein­­­­dregið á for­ystu Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins að hafna þriðja orku­­­pakka Evr­­­­ópu­­­­sam­­­­bands­ins á þeim grunni að hann stang­­­­ast á við ákvæði stjórn­­­­­­­ar­­­­skrár­inn­­­­ar, opn­ar Evr­­­­ópu­­­­sam­­­­band­inu leið til yf­ir­ráða yfir einni helstu auð­lind Íslands og hækk­­­­ar verð á raf­­­­orku og af­­­­leið­ing­ar til langs tíma eru óvis­s­­­­ar.“ Á meðal þeirra sem sátu þann fund var Davíð Oddsson. Hann gagn­rýndi svo for­ystu síns gamla flokks harð­lega í leið­ara skömmu síðar þar sem hann sagði Þórdísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa látið rugla sig í rím­in­u. Hann sagði líka að: „Erfitt væri að ímynda sér að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni standa að þessu máli, að minnsta kosti ekki þeir fáu sem hlupust ekki undan merkjum í Icesave.“

Við­vör­un­ar­orð Davíðs náðu þó ekki eyrum þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks. Og und­an­farið hefur for­ystu­fólk hans svarað fyrr­ver­andi for­mann­inum fullum hálsi þegar hann hefur gagn­rýnt það. Skýrasta dæmið var í grein Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í lok síð­asta mán­aðar þar sem hún svar­aði gagn­rýni Davíðs á stuðn­ing hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins við nýtt frum­varp um þung­un­ar­rof. Þar sagði hún meðal ann­ars: „Rétt er það sem áður hefur verið haldið fram í þessu blaði að upp­finn­inga­menn hafa lengi reynt að finna upp eilífð­ar­vél­ina og ekki tek­ist. Því er mik­il­vægt að fest­ast ekki í for­tíð­inni, heldur þró­ast í takt við nýja tíma og leiða þær óum­flýj­an­legu breyt­ingar sem fram­tíðin mun hafa með sér fremur en að ótt­ast þær[...]Það er ekki hlut­verk Sjálf­stæð­is­flokks­ins að standa vörð um úreltar hug­myndir sem þóttu einu sinni góðar. Við gerum grein­ar­mun á grunn­gildum og ein­staka stefnu­málum eða úrræðum sem einu sinni virk­uðu. Um leið og við berum virð­ingu fyrir sög­unni er mik­il­vægt að við mótum fram­tíð­ina.“

[adspot]Auk þess að vera í for­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins þá hefur Áslaug Arna teng­ingu inn í rekstur Morg­un­blaðs­ins. Faðir hennar Sig­ur­björn Magn­ús­son, er stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­lags blaðs­ins.

Þá vakti ekki síður athygli að á 90 ára afmæli Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lok síð­asta mán­aðar ákvað Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, að birta afmæl­is­grein í Frétta­blað­inu ekki Morg­un­blað­inu. Sú ákvörðun þótti senda skýr skila­boð um hvernig for­mað­ur­inn teldi sam­band flokks­ins við gamla mál­gagnið standa.

Samræmdar árásir spunameistara

Davíð leggur út frá aðsendri grein eftir Jón Hjalta­son í Reykja­vík­ur­bréfi dags­ins, en sú grein birt­ist í vik­unni. Þar taldi höf­und­ur­inn upp allt sem Sjálf­stæð­is­flokkur dags­ins í dag væri ekki að gera en sem hann teldi að væri hin eina sanna sjálf­stæð­is­stefna. Greinin hófst á því að höf­undur sagði að nú um stundir sýnd­ist honum „sem flokks­for­yst­unni þyki helst við hæfi að hnýta í þann for­mann sem verið hefur þjóð­inni og flokknum drýgstur og bestur. Mér stendur stuggur af ykkur því ég hefi þungar áhyggjur af flokknum.“ Sá for­maður sem vísað er til er Davíð Oddsson. Jón sagð­ist hafa rætt við hund­ruð félags­manna sem hugn­ist ekki ferða­lag flokks­for­yst­unnar og ætli ekki að slást í þá för.

Í nið­ur­lagi greinar Jóns sagði síðan: „Ég velti fyrir mér hvort ekki væri far­sælla að þið færuð frá flokknum en að flokk­ur­inn fari frá ykkur.“

Í Reykja­vík­ur­bréf­inu í dag segir Davíð: „Miðað við sam­ræmdar árásir sem leyna sér ekki og spuna­meist­arar halda utan um og Jón nefnir í upp­hafi sinnar greinar er rétt að taka fram að rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins hafa ekk­ert heyrt um stefnu eða rök­stuðn­ing þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Morg­un­blaðið er borg­ara­legt blað og þótt það lúti ekki fjar­stýr­ingum utan úr bæ frá flokkum eða ein­stak­lingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en ekki að geta átt góða sam­leið með flokknum ef hann er sjálfum sér sam­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sínum.“

Þingmenn komu ekki í Hádegismóa í kaffi og kruðerí

Síðan rekur Davíð hvernig hann telur flokk­inn vera á villi­götum í orku­pakka­mál­inu. Fyrir hefði legið að síð­asti lands­fundur hefði lagt lín­una í þessum efnum með sam­þykkt álykt­unar sem sagði að „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafnar frekara fram­sali á yfir­ráðum yfir íslenskum orku­mark­aði til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins.“

„Nú reyna menn með einkar aumu og satt best að segja algjör­lega óboð­legu yfir­klóri, langt fyrir neðan sína virð­ingu, að láta eins og almennt hjal, sem verið hefur í almennum yfir­lýs­ingum fund­ar­ins og einskis getið við afgreiðslu þess hafi eytt fyrr­nefndri ákvörðun með göldrum,“ skrifar Davíð.

[links]„Þessir klaufa­legu koll­hnísar hófust þó ekki fyrr en á loka­metr­unum. En sjálf­stæð­is­menn töldu ekki ástæðu til að ótt­ast. Lands­fund­ar­á­kvörð­unin lá fyrir og sjálfur for­maður flokks­ins hafði í áheyrn alþjóðar úr ræðu­stól Alþingis tekið af öll tví­mæli vorið 2018 og aldrei gefið til kynna að hann myndi snú­ast í sams konar hring og hann gerði í Icesave forðum, svo flokks­menn undr­uð­ust og horfðu hryggir á. Bjarni Bene­dikts­son sagði: „Hvað í ósköp­unum liggur mönnum á að kom­ast undir sam­eig­in­lega raf­orku­stofnun Evrópu á okkar ein­angr­aða landi með okkar eigið raf­orku­kerfi? Hvers vegna í ósköp­unum hafa menn áhuga á því að kom­ast undir boð­vald þess­ara stofn­ana? […] Eru það rök að þar sem Evr­ópu­sam­band­inu hefur þegar tek­ist að koma Íslandi undir ein­hverja sam­evr­ópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra? […] Hérna erum við með krist­al­tært dæmi um það, raf­orku­mál Íslands eru ekki innri-mark­aðs­mál.““

Davíð segir að ári síðar hafi Bjarni hins vegar lagst þvert á sín og flokks­ins sjón­ar­mið án þess að útskýra hvað hefði hrakið hann frá fyrri afstöðu. „Allan þann tíma hafði Morg­un­blaðið ástæðu til að vera í góðri trú. Ekki einn ein­asti þing­maður hefur gert sér ferð á rit­stjórn­ar­skrif­stofur blaðs­ins þar sem þeim hefði verið tekið opnum örmum og fengið kaffi og kruð­erí.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár