Ísfélagsfjölskyldan og KS settu 160 nýjar milljónir í Morgunblaðið í janúar

Búið er að upp­færa eig­enda­lista útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins á vef fjöl­miðla­nefndar. Þar sést hverjir lögðu félag­inu til fé 200 milljón króna í hluta­fjár­aukn­ingu í jan­úar. Tveir stórir eig­endur báru hit­ann og þung­ann af henni.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfélagi Vest­manna­eyja lögðu til 80 pró­sent þeirra 200 millj­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, í jan­úar síð­ast­liðnum. Þetta kemur fram í upp­færðum eig­enda­lista á vef Fjöl­miðla­nefndar.

Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­ónir króna af 200 millj­ónum króna þegar hlutafé í Þórsmörk ehf., eig­anda Árvak­urs, var aukið þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn, eða 80 pró­sent fjár­magns­ins.

[adspot]Á sama tíma var sam­þykktum félags­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­féð um allt að 400 millj­ónir króna til við­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019. Ekki hefur verið til­kynnt um nýt­ingu á þeirri heim­ild til fyr­ir­tækja­skráar enn sem komið er.

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­lega 1,6 millj­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS um 324 millj­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­ónum króna.

Eignarhlutur Eyþórs minnkar

Kjarninn greindi frá því 18. apríl síð­ast­lið­inn að KS hefði verið á meðal þeirra sem lögðu Þórsmörk til nýtt rekstr­arfé, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Íslenskar sjáv­ar­af­urðir, og ætti að minnsta kosti 20 pró­sent hlut í félag­inu. Það gerð­ist í kjöl­far þess að við­tal við Þórólf Gísla­son, kaup­fé­lags­stjóra, hafði birst í Morg­un­blað­inu nokkrum dögum áður þar sem hann opin­ber­aði að KS ætti um fimmt­ungs­hlut. Sam­kvæmt skrán­ingu sem birt var á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar sagði hins vegar að KS ætti í gegnum dótt­ur­fé­lagið Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., 15,84 pró­sent hlut í Þórs­mörk.

KS lagði alls til 100 millj­ónir króna af þeim 200 millj­ónum króna sem Þórsmörk fékk frá hlut­höfum sínum í jan­úar, eða helm­ing­inn.

Aðrir sem lögðu Þórsmörk til fé voru m.a. félög tengd Ísfélagi Vest­manna­eyja sem eiga enn jafn hátt hlut­fall og áður í Þórsmörk eftir hluta­fjár­aukn­ing­una, eða tæp­lega 30 pró­sent hlut. Alls settu tvö félög, Ísfé­lagið og félagið Hlynur A, í eigu Guð­­­bjargar Matt­h­í­a­s­dótt­­­ur, aðal­­­eig­anda Ísfé­lags­ins, sam­an­lagt um 60 millj­ónir króna inn í Þórsmörk í jan­úar. Þær 40 millj­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­aukn­ing­una.

[adspot]Alls tóku fimm skráðir hlut­hafar ekki þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og minnk­aði hlut­falls­leg eign þeirra sam­hliða henni. Á meðal þeirra var félagið Ramses II ehf., í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Eign­ar­hlutur Ramses hefur skroppið saman úr 22,87 pró­sentum í 20,05 pró­sent. Stundin hefur und­an­farið greint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri með 325 milljón króna kúlu­láni frá félagi í eigu Samherja. Þar hefur meðal ann­ars komið fram að Eyþór hafi aldrei viljað upp­lýsa um hvernig hann hafi fjár­magnað kaupin á hlutnum og sagt að við­skiptin væru trún­að­ar­mál.

Flestir minni eig­endur Þórs­merkur eru tengdir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­um.

Tilkynnt um breytingar mörgum mánuðum eftir aukningu

Sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla á að til­kynna fjöl­miðla­nefnd um allar eig­enda­breyt­ingar á fjöl­miðlum innan tveggja virkra daga frá því að kaup­samn­ingur er gerð­ur. Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á Þórs­mörk voru upp­færðar á heima­síðu nefnd­ar­innar í gær, 28. maí 2019. Þar áður höfðu þær ekki verið upp­færðar frá 13. sept­em­ber 2017.

[links]Í ljósi þess að hluta­fjár­aukn­ing í Árvakri var skráð 21. jan­úar síð­ast­lið­inn þá hefur var ekki farið eftir ofan­greindum lögum um skrán­ingu á eign­ar­haldi, enda má ekki skrá nýtt hlutafé nema að það hafi þegar verið greitt.

Árvakur er útgáfu­­fé­lag Morg­un­­blaðs­ins, mbl.is og útvarps­­­stöðv­­­ar­innar K100. Félagið er eina eign Þór­s­­merk­­ur. Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­­rekstur á und­an­­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Tap félags­­ins á árinu 2017 var til að mynda 284 millj­­ónir króna. Það var fimm­falt meira tap en árið 2016. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2017 tap­aði félagið tæp­­­lega 1,8 millj­­­örðum króna. Árs­reikn­ingur fyrir árið 2018 hefur ekki verið birtur.

Eignarhald Þórsmerkur nú er eftirfarandi:

  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Laxdal Arnalds, 20,05 pró­sent
  • Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., forsv.m. Sigurjón Rafnsson, 20,00 pró­sent
  • Hlynur A ehf., forsv.maður Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, 16,45 pró­sent
  • Ísfélag Vest­manna­eyja hf., forsv.maður Stefán Frið­riks­son, 13,43 pró­sent
  • Legalis sf., forsv.maður Sig­ur­björn Magn­ús­son, 12,37 pró­sent
  • Rammi hf., forsv.maður Ólafur Mart­eins­son, 6,14 pró­sent
  • Þingey ehf., forsv.maður Aðal­steinn Ing­ólfs­son, 3,59 pró­sent
  • Stálskip ehf., forsv.maður Halldór Krist­jáns­son, 3,08 pró­sent
  • Brekku­hvarf ehf., forsv.maður Ásgeir Bolli Krist­ins­son, 2,05 pró­sent
  • Fari ehf., forsv.maður Jón Pálmason, 1,54 pró­sent
  • Hrað­frysti­húsið – Gunnvör hf., forsv.maður Einar Valur Krist­jáns­son, 1,30 pró­sent
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár