Halldór Blöndal segir bréfaskriftir Davíðs lýsa sálarástandinu hans

Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi ráð­herra, gagn­rýnir Reykja­vík­ur­bréf Davíðs Odds­sonar í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Halldór segir að verst þykir honum full­yrð­ingar Davíðs um þriðja orku­pakk­inn sem hann segir að ekki sé fótur fyrir

Halldór Blöndal, fyrrverandi forseti Alþingis og formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna.
Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis og for­maður Samtaka eldri sjálf­stæð­is­manna. Mynd: Bára Huld Beck

Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi alþing­is­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ráð­herra, skrifar til Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar gagn­rýnir hann Reykja­vík­ur­bréf rit­stjór­ans frá því í síð­ustu viku en í bréf­inu fer Davíð hörðum orðum um Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Halldór bendir á að bréfa­skriftir geti verið hættu­legar þar sem þær lýsa því í hvaða sál­ar­á­standi maður er þá stund­ina.

Í bréf­inu segir Halldór að verst þykir honum að Davíð hafi haldið því fram í bréf­inu að í þriðja orku­pakk­anum felist fram­sal á yfir­ráðum yfir íslenskum orku­mark­aði til stofn­anna Evr­ópu­sam­bands­ins. Halldór segir að ekki sé fótur fyrir þess­ari full­yrð­ingu og raun sé það athygl­is­vert að Davíð skuli setja það fram þar sem sam­þykkt EES-samn­ings­ins hér á landi væri Davíð að þakka.

Gagnrýndi framgöngu flokksins í orkupakkamálinu

[links]Í síð­ustu viku gagn­rýndi Davíð for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins harka­lega í Reykja­vík­ur­bréfi. Í bréf­inu fjall­aði hann meðal ann­ars um meinta fjar­lægð flokks­ins frá kjós­endum sínum og hvernig flokk­ur­inn væri á villi­götum þegar að kemur að þriðja orku­pakk­anum.

Halldór svarar bréfi Davíðs í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag sem ber yfir­skrift­ina „Orð til Davíðs Odds­sonar“. Í bréf­inu segir Halldór að margir hafi saknað þess að sjá ekki Davíð og Þor­steinn Pálsson, fyrrum for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á 90 ára afmæli flokks­ins í Valhöll í maí síð­ast­liðnum. Halldór segir afmæl­is­há­tíð­ina hafa verið vel­heppn­aða og að hann hafi fundið það glöggt að á meðal sjálf­stæð­is­manna sé mikil ánægja yfir stöðu þjóð­mála og for­ystu flokks­ins.

„Þrátt fyrir gjald­þrot Wow-air og hrun loðnu­stofns­ins er svig­rúm til að bæta lífs­kjör og lækka skatta. Menn taka eftir því að það er traust milli for­manna stjórn­ar­flokk­anna, sér­stak­lega Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar, og skilja af reynsl­unni að það er for­sendan fyrir því, að áfram megi vel takast um stjórn þjóð­mála. Saman fer sterk staða þjóð­ar­bús­ins, meiri kaup­máttur og jafn­vægi í efna­hags­málum,“ segir Halldór. [adspot]

Bréfaskriftir geti verið hættulegar

Í grein­inni fjallar Halldór jafn­framt um Reykja­vík­ur­bréf Davíðs og bendir hann á að bréfa­skriftir geti komið upp um mann. „Bréfa­skriftir geta verið hættu­legar af því þær koma upp um mann, - lýsa því í hvaða sál­ar­á­standi maður er þá stund­ina. Og auð­vitað hefnir það sín, ef illa liggur á manni, - þá miklar maður hlut­ina fyrir sér og freist­ast til að fara ekki rétt með,“ segir Halldór. Hann segir að ógæti­legt hafi verið hjá Davíð að gera orð Jón Hjalta­sonar að sínum en hann segir að það hefði ekki gerst ef betur hefði legið á Davíð.

Halldór segir að mikið af rang­færslum og ósann­indum megi finna í grein Jóns sem Davíð leggur út frá í bréf­inu. Þar á meðal að for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði ráðið Már Guð­munds­son sem seðla­banka­stjóra tvisvar. Hann segir að hið rétta sé að Már hafi verið ráð­inn í júlí 2009 en þá var vinstri stjórn í land­inu.

„Már var síðan end­ur­ráð­inn eftir aug­lýs­ingu 2014 og skip­aði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í stöð­una. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var þá for­sæt­is­ráð­herra og hafði um það að segja. Rétt er að rifja upp, að hann var for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í byrjun árs 2009 þegar allur þing­flokkur þess flokks greiddi atkvæði með því að breyta lögum um Seðla­bank­ann til þess að losna við þá seðla­banka­stjóra sem þá voru. Einn þeirra varst þú, Davíð Oddsson,“ bendir Halldór á.

Þjóðin á Davíð að þakka að samningar tókust um Evrópska efnahagssvæðið

Að lokum segir Halldór að athygl­is­vert sé að Davíð hafi sett fram þá full­yrð­ingu að í þriðji orku­pakk­anum felist fram­sal á yfir­ráðum yfir íslenskum orku­mark­aði. „Margt fellur mér illa í þessu þínu síð­asta Reykja­vík­ur­bréfi en verst þó, að þú skulir halda því fram að í þriðja orku­pakk­anum felist fram­sal á yfir­ráðum yfir íslenskum orku­mark­aði til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins. Það er ekki fótur fyrir þess­ari full­yrð­ingu. Og það er raunar athygl­is­vert, að þú skulir setja hana fram.“

Halldór segir að í raun eigi þjóðin Davíð að þakka að samn­ingar tók­ust um Evrópska efna­hags­svæði og að það hafi verið Davíð sem sann­færði hann og aðra um, að sá samn­ingur rúm­að­ist innan ákvæða stjórn­ar­skrár­innar. Sömu­leiðis fyrsti og annar orku­pakk­inn. „Þar vannstu gott verk og þarft. Mér liggur meira á hjarta en það verður að bíða næstu greinar sem birt­ist innan fárra daga ef guð lofar,“ segir Halldór að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár