Lífeyrissjóðir lánuðu jafn mikið óverðtryggt og verðtryggt í nóvember

Útlán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga vegna íbúð­ar­kaupa eða end­ur­fjár­mögn­unar dróg­ust saman um tæpan þriðj­ung milli mán­aða. Helm­ingur útlána þeirra voru óverð­tryggð.

Mjög hefur hægt á útlánum lífeyrissjóða til íbúðarkaupa á síðustu mánuðum.
Mjög hefur hægt á útlánum líf­eyr­is­sjóða til íbúð­ar­kaupa á síð­ustu mán­uðum. Mynd: Pexels

Sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða lands­ins tóku 42 pró­sent lægri upp­hæð verð­tryggt að láni hjá sjóð­unum í nóv­em­ber 2018 en í sama mán­uði árið áður. Alls lækk­aði heild­ar­upp­hæðin sem sjóðs­fé­lag­arnir tóku að láni hjá sjóð­unum til íbúð­ar­kaupa um 32 pró­sent milli ára. Í nóv­em­ber 2017 lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 9,7 millj­arða króna til íbúð­ar­kaupa en í nóv­em­ber í fyrra nam sú upp­hæð 6,6 millj­örðum króna.

[links]Sú upp­hæð skipt­ist nán­ast jafnt milli verð­tryggðra og óverð­tryggðra lána. Raunar munar ein­ungis einni milljón króna á lána­teg­und­unum. Svo lít­ill munur hefur aldrei verið á verð­tryggðum og óverð­tryggðum útlánum líf­eyr­is­sjóða frá því að þeir fóru að bjóða upp á óverð­tryggð lán síðla árs 2015. Til sam­an­burðar má nefna að í ágúst 2018, þegar líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu alls 10,2 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna, voru 81 pró­sent allra útlána verð­tryggð. Þremur mán­uðum síðar voru, líkt og áður sagði, um 50 pró­sent þeirra óverð­tryggð.

Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands sem birtar voru í dag.

Stóru sjóðirnir farnir að draga í land

Mjög hefur hægst á lán­tökum til íbúð­ar­kaupa hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins á und­an­förnum mán­uðum. Sá sam­dráttur á sér fyrst og síð­ast stað í verð­tryggðum lánum.

[adspot]Ástæðan er tví­þætt, ann­ars vegar hafa aðstæður á mark­aði breyst nokkuð skarpt, sér­stak­lega með hækk­andi verð­bólgu sem gerir verð­tryggð lán óhag­kvæm­ari.

Hins vegar hafa stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og nú síð­ast Gildi Líf­eyr­is­sjóður allir lækkað veð­hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána sinna úr 75 í 70 pró­sent. Það gerir það að verkum að færri sjóðs­fé­lagar en áður geta tekið slík lán.

Farið var yfir þessa stöðu í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á Kjarn­anum í síð­ustu viku. Þar var greint frá því að ákvörðun Gildis um að lækka veð­hlut­fall sitt byggði meðal ann­ars á var­úð­ar­sjón­ar­miði vegna mik­illa verð­hækk­ana á fast­eigna­mark­aði á und­an­förnum árum, og hins vegar vegna auk­innar ásóknar í lán hjá Gildi. Heim­ildir Kjarn­ans herma að sú ásókn hafi auk­ist umtals­vert eftir að hinir tveir stóru líf­eyr­is­sjóð­irnir sem lána sjóðs­fé­lögum til íbúð­ar­kaupa lækk­uðu veð­hlut­fall sitt niður í 70 pró­sent.

Bitnar verst á þeim sem eiga minna eigið fé

Íslend­ingar taka sögu­lega mun frekar verð­tryggð lán en óverð­tryggð. Ástæðan er sú að þeim fylgir lægri greiðslu­byrði, en síð­ustu ár hafa slík lán einnig verið hag­kvæm þar sem verð­bólga var árum saman undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands og end­ur­koma líf­eyr­is­sjóð­anna á íbúð­ar­lána­markað haustið 2015 hefur leitt til þess að vaxta­kjör hafa lækkað hratt. Þannig er nú hægt að fá verð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum á 2,46 pró­sent hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum, sem býður 70 pró­sent veð­hlut­fall. Alls bjóða níu líf­eyr­is­sjóðir verð­tryggð íbúð­ar­lán með undir þriggja pró­senta vöxtum. Til sam­an­burðar eru ódýr­ustu breyti­legu verð­tryggðu vextir sem bjóð­ast í banka á Íslandi hjá Lands­bank­anum. Þar eru vext­irnir 3,55 pró­sent, eða 44 pró­sent hærri en hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum. Lands­bank­inn býður hins vegar við­skipta­vinum sínum hærra veð­hlut­fall, eða 85 pró­sent.

[adspot]Þetta þýðir að þeir sem hyggja á íbúð­ar­kaup en eiga lítið eigið fé þurfa að taka óhag­kvæm­ari lán en bjóð­ast þeim sem eiga meira eigið fé og geta tekið allt sem þeir þurfa að láni hjá líf­eyr­is­sjóðum.

Mikið breyting á allra síðustu mánuðum

Í íbúða­mark­aðs­skýrslu Grein­ingar Íslands­banka sem birt var í októ­ber 2018 kom fram að 77 pró­sent heild­ar­skulda heim­ila lands­ins væru verð­tryggðar. Í þeim saman mán­uði, sam­hliða því að verð­bólga tók að hækka skarpt, dróg­ust verð­tryggð útlán fjár­mála­fyr­ir­tækja, sam­kvæmt mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs, veru­lega saman. Raunar voru nýu íbúð­ar­lán, að frá­dregnum umfram- og upp­greiðslum eldri lána, nán­ast ein­vörð­ungu óverð­tryggð lán, eða 94 pró­sent.

Þessi til­hneig­ing sést einnig vel í útlánum líf­eyr­is­sjóða. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018 voru 75 pró­sent allra útlána þeirra til sjóðs­fé­laga verð­tryggð lán. Í októ­ber og nóv­em­ber voru þau tæp­lega 53 pró­sent allra lána, og óverð­tryggð lán því tæp­lega 47 pró­sent útlána líf­eyr­is­sjóða.

Alls hafa líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lána tæp­lega 330 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna frá því að þeir hófu end­ur­komu sína á íbúð­ar­lána­markað af alvöru haustið 2015 með því að hækka veð­hlut­föll og bjóða upp á mun hag­stæð­ari kjör en þeir höfðu gert áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár