Allir þrír stærstu lífeyrissjóðirnir búnir að lækka veðhlutfall niður í 70 prósent

Gildi hefur lækkað veð­hlut­fall lána sem hann veitir sjóðs­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa niður í 70 pró­sent. Það var m.a. gert vegna þess að hinir tveir stóru líf­eyr­is­sjóð­irnir höfðu lækkað sitt veð­hlut­fall þannig, sem skil­aði auk­inni aðsókn í lán Gildis.

Gildi líf­eyr­is­sjóður lækk­aði veð­hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána sinna niður í 70 pró­sent um nýliðin ára­mót. Þar með hafa allir stóru líf­eyr­is­sjóð­irnir þrír: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) lækkað veð­hlut­fall sitt frá því sem það var hæst eftir að þeir hófu fulla sókn inn á íbúða­lána­markað að nýju haustið 2015.

[links]Líf­eyr­is­sjóður verszlunarmanna lækk­aði veð­hlut­fall á sjóðs­fé­lags­lánum sínum úr 75 í 70 pró­sent sum­arið 2017. LSR lækk­aði sitt láns­hlut­fall með sama hætti í fyrra og nú hefur Gildi, líkt og áður segir, gert slíkt hið sama.

Í frétt á vef Gildis segir að ákvörð­unin byggi meðal ann­ars á var­úð­ar­sjón­ar­miði vegna mik­illa verð­hækk­ana á fast­eigna­mark­aði á und­an­förnum árum, og hins vegar vegna auk­innar ásóknar í lán hjá Gildi. Heim­ildir Kjarnans herma að sú ásókn hafi auk­ist umtals­vert eftir að hinir tveir stóru líf­eyr­is­sjóð­irnir sem lána sjóðs­fé­lögum til íbúð­ar­kaupa lækk­uðu veð­hlut­fall sitt niður í 70 pró­sent.

Í frétt Gildis segir að einnig sé horft til þess að hlut­fall lána sjóðs­fé­laga nálgist nú þau við­mið sem sett séu í fjár­fest­ing­ar­stefnu sjóðs­ins. Á ein­fald­ara máli þýðir það að hver líf­eyr­is­sjóður setur sér æski­legt hámark á ákveðnum eigna­flokkum, til dæmis lánum til sjóðs­fé­laga vegna íbúð­ar­kaupa. Í þeirri miklu aðsókn sem verið hefur í íbúða­lán líf­eyr­is­sjóða á und­an­förnum rúmu þremur árum þá hefur Gildi nálg­ast það hámark.

[adspot]Enn bjóða fjórir líf­eyr­is­sjóðir sjóðs­fé­lögum sínum 75 pró­sent lán. Þeir eru Brú, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda, Lífsverk og Stapi.

Hafa keyrt niður vexti

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa lengi lánað sjóð­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa. Þau lán hafa þó verið þannig að mun lægra láns­hlut­fall hefur verið í boði sem gerði það að verkum að fólk sem átti lítið eigið fé gat illa nýtt sér þau lán. Það breytt­ist allt haustið 2015 þegar sjóð­irnir hækk­uðu láns­hlut­fall sitt og bjóða upp á enn hag­stæð­ari kjör. Frá þeim tíma hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir lánað sjóðs­fé­lögum sínum 323 millj­arða króna til íbúð­ar­kaupa.

Sjóð­irnir hafa getað boðið upp á afar hag­stæð lán, þ.e. miðað við þau vaxta­kjör sem vana­lega eru í boði á Íslandi, fyrir þá sem upp­fylla lána­skil­yrði þeirra. Þannig eru lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir líf­eyr­is­sjóða nú 2,46 pró­sent á meðan að lægstu sam­bæri­legu vextir banka eru 3,55 pró­sent. Lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir banka á Íslandi eru því 44 pró­sent hærri en lægstu vextir líf­eyr­is­sjóðs.

Þetta geta líf­eyr­is­sjóð­irnir meðal ann­ars gert vegna þess að líf­eyr­is­sjóðir þurfa ekki að greiða ýmiss konar gjöld og álögur sem t.d. bankar, sem eru í sam­keppni við þá á þessum mark­aði, þurfa að gera. Þar hefur mest munað um hinn svo­kall­aða banka­skatt, sem nú stendur til að lækka úr 0,376 pró­sent af skuldum í 0,145 pró­sent. Í hvít­bók um fjár­mála­kerfið, sem kynnt var í síð­asta mán­uði, kom fram að slík aðgerð muni skila álíka lækkun í rekstr­ar­kostn­aði og 15 pró­sent fækkun starfs­fólks bank­anna, sem jafn­gildir um 400 stöðu­gildum hjá stærstu bönk­unum þremur.

Óljóst hvort lægri bankaskattur skili lægri vöxtum

Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa sagt að þessi skattur geri það að verkum að bankar séu ekki sam­keppn­is­hæfir við aðra veit­endur útlána. Því borga í raun við­skipta­vinir bank­anna banka­skatt­inn, að minnsta kosti að hluta, í gegnum lak­ari kjör en þeir gætu ella boð­ið.

[adspot]Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, sló þó aðeins á þær vonir að lækkun banka­skatts myndi skila sér í betri vaxta­kjörum í við­tali við Frétta­blaðið í júlí síð­ast­liðnum. Þar sagði hann það ekki vera svo að „að ef skatt­ur­inn færi þá myndi það skila sér að fullu í lægri vöxtum en slík ráð­stöfun yrði til þess að styðja við okkar við­leitni til að geta boðið heim­ilum og fyr­ir­tækjum hag­stæð­ari kjör.“

Margir útilokaðir frá hagstæðustu lánunum

Raunverð íbúða á Íslandi hefur hækkað um tæp­lega 60 pró­sent frá 2010 og í krónum talið hefur verðið tvö­fald­ast. Þetta er næst mesta hækkun á hús­næð­is­verði í heim­inum.

Í íbúða­mark­aðs­skýrslu sem Greining Íslands­banka birti í októ­ber 2018 kom fram að eig­endur hús­næðis hefðu hagn­ast um 2.051 millj­arða króna vegna hækk­ana.

Þessar miklu hækk­anir hafa hins vegar einnig gert það að verkum að aldrei hefur verið erf­ið­ara að kaupa fyrstu eign og flestir þeirra sem eru á leigu­mark­aði eru þar af illri nauð­syn frekar en vilja. Leigu­verð hefur auk þess hækkað langt umfram ráð­stöf­un­ar­tekjur frá árinu 2011.

Þegar stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lækka veð­hlut­fall sitt, eins og þrír stærstu hafa nú gert, þá úti­lokar það enn fleiri frá því að geta tekið hag­stæð­ustu lánin sem bjóð­ast á mark­aðnum. Með­al­upp­hæð kaup­samn­ings á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var til að mynda 51 milljón króna í fyrra. Fyrir helgi hefði sjóðs­fé­lagi hjá Gildi þurft að eiga tæp­lega 12,8 millj­ónir króna í útborgun til að geta keypt slíka með­al­eign, og tekið lán hjá sjóðnum. Í dag þarf hann að eiga 15,3 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár