Meirihluti Verkamannaflokksins vill aðra Brexit-þjóðaratkvæðagreiðslu

Nærri því þrír af hverjum fjórum félögum í breska Verka­manna­flokknum vilja að önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði haldin um útgöng­una úr Evr­ópu­sam­band­inu. Formaður flokks­ins vill hins vegar að samn­ingur May verði lagður fyrir þingið.

Nærri því þrír af hverjum fjórum félögum í breska Verka­manna­flokknum vilja að önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði haldin um útgöng­una úr Evr­ópu­sam­band­inu. Það er á skjön við skoðun Jeremy Cor­byn, leið­toga Verka­manna­flokks­ins, sem vill að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um Brexit árið 2016 verði end­an­leg. Þetta kemur fram í frétt Guardian í dag.

Tæplega 90 prósent myndu kjósa að vera áfram í ESB

Í könn­unni kemur fram að að 72 pró­sent flokks­manna vilji að Corbyn styðji aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Færi slík atkvæða­greiðsla fram myndu 88 pró­sent flokks­manna greiða atkvæði með áfram­hald­andi veru í ESB og 71 pró­sent kjós­enda flokks­ins. Alls voru 1.034 félagar í Verka­manna­flokknum spurðir út í afstöðu sína í skoð­ana­könnun sem fram­kvæmd var af rann­sókn­ar­hópi í Queen Mary Uni­versity of London rétt fyrir jól 2018.

Corbyn ósammála flokksfélögunum

Jeremy Cor­byn hefur ekki tekið undir kröfur félags­manna sinna um að efnt skuli til ann­arrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla. Leiðtogi Verka­manna­flokks­ins vill að þingið fái að greiða atkvæði um Brexit-samn­ing Theresu May en talið er að breska þingið muni kol­fella samn­ing­inn. Þá þykir lík­legt að boðað yrði til nýrra kosn­inga og þá myndi Corbyn freista þess í kjöl­farið að fá umboð þjóð­ar­innar til að semja um hag­stæð­ari samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið. Þrátt fyrir að leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkja hafi þver­tekið fyrir að semja upp á nýtt. Þetta kemur fram í við­tali við Corbyn í Guardian þann 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Corbyn seg­ist jafn­framt vilja tolla­banda­lag við Evr­ópu­sam­bandið og náið sam­band við hinn ábata­sama innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins.

Samkvæmt frétt Guardian auka nið­ur­stöður könn­un­ar­innar þrýst­ing­inn á að Corbyn krefj­ist ann­arar atkvæða­greiðslu. En 56 pró­sent með­lima flokks­ins sögð­ust íhuga það að yfir­gefa flokk­inn ef flokk­ur­inn breytti ekki um stefnu þegar kemur að Brexit, það eru 88.000 manns.

Þrátt fyrir þessa gjá á milli stefnu Corbyn og afstöðu flokks­manna hans nýtur hann enn stuðn­ings sem for­maður. En um 66 pró­sent félaga Verka­manna­flokks­ins telja hann vera standa sig vel og 58 pró­sent telja að hann gæti náð betri Brexit-samn­ingum sem for­sæt­is­ráð­herra en Theresa May í fyrr­nefndri könnun.

May stefnir að því að leggja samninginn fyrir breska þingið í janúar

[links]Stefnt er að því að Bretland gangi form­lega úr Evr­ópu­sam­band­inu hinn 29. mars næst­kom­andi, hvort sem útgöngu­samn­ingur liggur fyrir eða ekki. Leið­toga­ráð ESB hefur sam­þykkt útgöngu­samn­ing Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Breta, en breska þingið á enn eftir að sam­þykkja hann. Í byrjun des­em­ber frestaði May atkvæða­greiðsl­unni í breska þing­inu um Brexit-samn­ing­inn vegna þess að ljóst þótti að samn­ing­ur­inn yrði kol­felldur í þing­inu. Í kjöl­farið stóð hún af sér van­traust­s­til­lögu þing­manna breska Íhalds­flokk­inn og hefur í des­em­ber reynt að ná fram breyt­ingum á samn­ingnum í við­ræðum við samn­inga­nefnd ESB.

May stefnir að því að leggja samn­ing­inn fyrir breska þingið nú í jan­úar. Ef May mis­tekst að koma samn­ingnum í gegnum þingið í jan­úar þá gæti svo farið að Bretar gangi úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings. The Guardian sagði frá því í des­em­ber hvernig þung­vikt­ar­menn í þing­flokkum Íhalds- og Verka­manna­flokks vinni nú að því bak við tjöldin að knýja rík­is­stjórn Theresu May til að fresta úrgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu um nokkra mán­uði til að forð­ast samn­ings­lausan skilnað.

Breska rík­is­stjórnin hefur nú þegar kynnt aðgerðir sem sýna að það er raun­veru­legur mögu­leiki á samn­ings­lausri útgöngu Breta. Rík­is­stjórnin hefur und­ir­búið svo­kall­aðar „vara­á­ætl­anir“ fari það svo að Bretland yfir­gefi sam­bandið án samn­ings. Áætlanir rík­is­stjórn­ar­innar felst m.a í því að 3500 her­menn verði í við­bragðs­stöðu og að upp­lýs­inga­bæk­lingum verði dreift til fyr­ir­tækja um hugs­an­legra breyt­inga á landa­mærum, þetta kemur fram í frétt á vef Sky News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár