Vantrausttillaga gegn May felld í breska þinginu

Skömmu fyrir kosn­ing­una lýsti hún því yfir að hún myndi hætta sem for­sæt­is­ráð­herra í lok kjör­tíma­bils­ins.

Van­traust­til­laga gegn Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, var felld í breska þing­inu í kvöld, en skömmu áður en til­lagan var borin upp til atkvæða hafði hún lýst því yfir, að hún hygð­ist hætta í lok kjör­tíma­bils­ins, árið 2022.

Tvö hund­ruð þing­menn greiddu atkvæði að May héldi áfram en 117 sam­þykktu van­traust.

Ástæða van­traust­s­til­lög­unnar var Brexit, en umræða um málið hefur ein­kennst af miklum deilum í þing­inu. Óánægja hefur verið með stöðu máls­ins innan Íhalds­flokks­ins.

Staðfest hafa verið lög í Bret­landi, þar sem ráð er fyrir því gert að Bretland gangi form­lega úr Evr­ópu­sam­band­inu 29. mars klukkan 23:00. 

Samn­ingur um Brexit, og for­send­urnar sem liggja munu fyrir við útgöngu, hefur ekki verið sam­þykktur í þing­inu. Und­an­farnar vikur hafa ein­kennst af miklum deilum, ekki síst innan Íhalds­flokks­ins, flokks for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár