Ríkisstjórn May samþykkir Brexit-samninginn

Rík­is­stjórn Theresu May hefur sam­þykkt Brexit-samn­ing­inn en næst þarf breska þingið að sam­þykkja hann. Fjöldi ráð­herra og þing­manna í Bret­landi hafa nú þegar mót­mælt samn­ingnum harð­lega og þrír ráð­herrar hafa sagt af sér í morgun.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands
Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Bret­lands hefur sam­þykkt drög að Brex­it-­samn­ingnum sem Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, lagði fyrir ráð­herra í gær­kvöldi. Fund­ur­inn stóð yfir í fimm klukku­tíma en sam­kvæmt BBC var ákvörð­unin ekki sam­hljóða. Laura Kuens­sberg, stjórn­mála­skýr­andi BBC, sagð­ist hafa heim­ildir fyrir því að níu ráð­herrar hefðu verið á móti.

[links]May segir umræður ráð­herr­anna á fund­inum hafa verið heitar en að hún telji að samn­ings­drögin séu besta mögu­lega nið­ur­staðan sem Bretland hefði getað fengið úr samn­inga­við­ræð­unum við Evr­ópu­sam­bandið. „Valið stóð um þennan samn­ing, sem mun gera okkur kleift að end­ur­heimta stjórn­ina og stuðla að bjart­ari fram­tíð fyrir landið okkar, eða að fara aftur á byrj­un­ar­reit, sund­ur­leit­ari og óviss­ari, og mis­takast að upp­fylla ósk kjós­enda,“ segir May í yfir­lýs­ingu sinni. Hún segir helsta ágrein­ings­efni ráð­herr­anna hafi verið landamæra­málið á Írlandi, hin svo­kall­aða „backstop“ áætlun sem tryggja á að ekki verði komið á hörðum landa­mærum á Írlandi.[adspot]

Átta ráðherrar sagt af sér á þessu ári

Nú þegar hafa þrír ráð­herrar sagt af sér eftir fund rík­is­stjórn­ar­innar. Dominic Raab, Brexit-ráð­herra Bret­lands, hefur sagt af sér en hann segir sam­visku sína ekki leyfa sér að styðja drögin og segir að óásætt­an­legt sé að Evr­ópu­sam­bandið hefði neit­un­ar­vald um það hvort Bretar gætu í raun slitið sig að fullu frá sam­band­inu. Shailesh Vara, þing­maður Íhalds­flokks­ins sem fer með mál­efni Norður-Írlands í bresku rík­is­stjórn­inni og Ester McVey, ráð­herra atvinnu­mála og eft­ir­launa sögðu jafn­framt bæði af sér í morgun. Það gerir átta ráð­herra sem sagt hafa af sér út af Brexit á þessu ári og yfir tutt­ugu ráð­herrar á síð­ustu tveimur árum.

Fleira áhrifa­fólk í breskum stjórn­málum hefur sagt af sér í kjöl­farið. Suella Braverman, und­ir­ráð­herra í Brexit-ráðu­neyt­inu hefur sagt af sér. Hún fylgir þar yfir­manni sínum Dominic Raab úr ráðu­neyt­inu sem hafði umsjón með samn­inga­við­ræð­unum við Evr­ópu­sam­bandið. Anne-Marie Trevelyan, sem var tengiliður ráð­herra mennta­mála við þing­heim, sagði einnig af sér.

May mætir andstöðu

Theresa May flytur ávarp á breska þing­inu í dag en stefnt er að því að samn­ing­ur­inn verði lagður fyrir þingið fyrir jól. Óvíst er hins vegar hvort meiri­hluti sé fyrir sam­komu­lag­inu í neðri deild breska þings­ins, jafn­vel þó þing­flokks­for­maður Íhalds­flokks­ins telji sig hafa tryggt samn­ingnum braut­ar­gengi.

Írski flokk­ur­inn hefur þegar lýst yfir efa­semdum um sam­komu­lagið og varar við því að breska sam­bands­ríkið gæti leysts upp verði sam­komu­lags­drögin sam­þykkt af breska þing­inu. Þessi and­staða gerir Theresu May for­sæt­is­ráð­herra erfitt fyrir enda hefur flokkur hennar ekki meiri­hluta á breska þing­inu og þarf að reiða sig á stuðn­ing flokks sam­bands­sinn­aðra mót­mæl­enda frá Írlandi.

Samn­ings­drögin voru gerð opin­ber í gær­kvöldi en þau hafa strax mætt mik­illi and­stöðu meðal fylk­inga útgöngu­sinna og þeirra sem vilja halda í aðild ESB. Meðal þeirra er Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skota, en hún gagn­rýnir samn­ing­inn harð­lega en ekk­ert er minnst á Skotland í samn­ingnum. Hún segir í sam­tali við BBC það hrika­legar fréttir fyrir Bretland ef samn­ing­ur­inn verði sam­þykktur. Drögin fela í sér að Norður-Írland fái að vera áfram innan innri mark­aða Evr­ópu­sam­bands­ins og segir hún að slíkt myndi vera ósann­gjarnt gagn­vart Skotlandi því rík­is­stjórn Sturgeon vill einnig vera innan innri mark­aða ESB. Hún nefnir einnig að fyrst May geti varla sam­einað rík­is­stjórn sína þá sé ljóst að erfitt verði fyrir hana að sann­færa þingið.

Breskir fjöl­miðlar hafa fjallað um að hugs­an­lega muni hópur útgöngu­sinna óska eftir atkvæða­greiðslu um van­traust á rík­is­stjórn Theresu May í breska þing­inu í dag í von um að gera út um vonir rík­is­stjórn­ar­innar að samn­ing­ur­inn verði sam­þykktur óbreyttur. Jacob Rees-Mogg, einn helsti stuðn­ings­maður Brexit innan Íhalds­flokks­ins, hvatti flokks­fé­laga sína til að hafna samn­ings­drög­unum á þing­inu og Nigel Farage, and­lit Brexit-bar­átt­unnar, skrif­aði á Twitter- síðu sína að þetta væri versti samn­ingur sög­unnar og hvatti þá ráð­herra sem voru fylgj­andi útgöngu Breta að segja af sér.

Enn langt í land

Ef þingið sam­þykkir ekki samn­ing­inn þá er óvíst hvað muni ger­ast næst. Sam­kvæmt BBC er mögu­leiki á því að May reyni að end­ur­semja um nýjan samn­ing við Evr­ópu­sam­band­ið. Lík­legt þykir að tími hennar sem for­sæt­is­ráð­herra sé á enda ef ekki náist sátt við breska þing­ið, hvort sem það sé með nýrri kosn­ingu eða að nýr for­sæt­is­ráð­herra verði val­inn. Haft er eftir heim­ild­ar­mönnum BBC að mögu­leiki sé á því að hún muni kalla eftir nýrri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur margoft sagt að sá mögu­leiki sé ekki fyrir hendi.

Full­trúar hinna 27 aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins þurfa sömu­leiðis að sam­þykkja drögin til að samn­ing­ur­inn öðlist gildi. Leið­toga­fundur verður haldin í lok mán­að­ar­ins til að fín­pússa samn­ing­inn áður en hann verður lagður fyrir þingið. Á þeim fundi á einnig að ræða hvernig sam­­skipt­um Bret­lands og ESB verði háttað eft­ir út­­göngu Bret­lands úr Evr­­ópu­­sam­­band­inu, sem áætluð er 29. mars á næsta ári en gert er ráð fyrir 21 mán­aða aðlög­un­ar­tíma­bili eftir það. Á aðlög­un­ar­tíma­bil­inu mun núver­andi staða Bret­lands innan ESB verða fryst og Bretland þannig halda aðild að tolla­banda­lag­inu og öllum þeim rétt­indum sem fylgja því sam­kvæmt Michel Barnier, aðal­samn­inga­manni Evr­ópu­sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár