Drög að Brexit-samningi í höfn: Hvað gerist næst?

Samn­inga­nefndir Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sam­þykkt drög að samn­ingi um útgöngu Breta úr sam­band­inu. Tillagan verður lögð fyrir ráð­herra bresku rík­is­stjórn­ar­innar til sam­þykktar í dag en mikil óvissa ríkir um hver nið­ur­staðan verður.

Ráð­herrar bresku rík­is­stjórn­ar­innar voru boð­aðir á fund í Downingsstræti klukkan tvö í dag til að ræða drög að Brexit-samn­ingnum en til­kynnt var í gær að drögin lægu fyrir. Theresa May for­sæt­is­ráð­herra Breta von­ast eftir því að ráð­herr­arnir lýsi yfir stuðn­ingi sínum við drögin en hún þarfn­ast stuðn­ings þeirra til að geta lagt samn­ing­inn fyrir breska þingið. Frá þessu er greint á BBC.

[links]Unnið hefur verið að samn­ingnum í yfir ár en í drög­unum er fjallað um hvernig útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu verður háttað. Samn­ings­drög­in eru því lyk­i­láfangi í samn­inga­við­ræð­unum. Helsta ágrein­ing­ar­efnið í samn­inga­við­ræð­unum við ESB hefur verið um hvernig landa­mærum Írlands, sem er í Evr­ópu­sam­band­inu, við Norður-Írland, sem er hluti Bret­lands, verði háttað eftir útgöng­una.

Bæði Bretar og Evr­ópu­sam­bandið vilja forð­ast í lengstu lög að koma upp sjá­an­legu landamæra­eft­ir­liti þar. En sam­kvæmt írska rík­is­út­varp­inu munu Norður-Írar þurfa að halda í stærri hluta af reglu­verki innri mark­aðar og tolla­banda­lags ESB en önnur svæði Bret­lands til þess að koma í veg fyrir sýni­lega landamæra­gæslu á milli Norður-Írlands og Írlands.[adspot]

Samkvæmt BBC eru samn­ings­drög­in um 500 blað­síður en stefnt er að því að samn­ing­ur­inn verði birtur bráð­lega ef rík­is­stjórnin sam­þykkir hann. Ráð­herrar flykkt­ust á Downingsstræti í gær til að líta yfir samn­ing­inn og fund­uðu einn af öðrum með for­sæt­is­ráð­herr­anum. Theresa May full­yrti á breska þing­inu í dag að samn­ings­drög­in um út­göngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu byggi al­farið á niður­stöðu þjóðar­at­kvæða­greiðsl­unn­ar 2016 og hún full­yrðir að hann sé besti mögu­legi samn­ing­ur­inn sem Bretum mun standa til boða.

Samn­ings­drög­in þurfa fyrst að vera sam­þykkt af bresku rík­is­stjórn­inni. Ef það gengur síðan eftir þá þarf breska þingið að sam­þykkja samn­ing­inn og að lokum öll aðild­ar­ríkin. Ef rík­is­stjórnin sam­þykkir samn­ing­inn þá verður hald­inn leið­toga­fundur í Evr­ópu­sam­band­inu seinna í þessum mán­uði til að full­klára hann áður en samn­ing­ur­inn verður lagður fyrir breska þingið fyrir jól.

Óvíst hvort samningurinn verði samþykktur

Óvíst er hins vegar hvort May hafi stuðn­ing rík­is­stjórn­ar­innar en við­brögð ráð­herra við tíð­ind­unum hafa verið mis­jöfn, sam­kvæmt frétta­stofu BBC. Mögulegt er að fleiri ráð­herrar munu segja af sér emb­ættum til að mót­mæla samn­ingnum en Jo Johnsson sagði af sér ráð­herra­emb­ætt­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag vegna óánægju með áform May varð­andi Brexit.

Jeffrey Don­ald­son, þing­maður norður-írska DUP-flokks­ins sem ver rík­is­stjórn Íhalds­flokks­ins van­trausti, segir í sam­tali við BBC að erfitt verði að koma þessu sam­komu­lagi í gegnum þingið. Jeremy Corbyn for­maður Verka­manna­flokks­ins segir samn­ings­drögin slæm og May sé að leggja fram „falskan“ val­kost fyrir þingið. Innan Íhalds­flokks­ins eru einnig ýmsir ósáttir, einkum harð­asti Brexit-vængur flokks­ins en sam­kvæmt þeim er samn­ing­ur­inn ekki sú útganga úr Evr­ópu­sam­band­inu sem fólk­inu hafði verið lofað. Jacob Rees-Mogg, einn helsti stuðn­ings­maður Brexit, lýsir því yfir að hann sé svo óánægður með drög­in að hann gæti hætt að styðja May. Þá hef­ur Boris Johnson, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands og nú­ver­andi þing­maður, sagt að hann muni ekki sam­þykkja drög­in og að rík­is­stjórn May hafi mis­tek­ist að verja Bret­land. Frá þessu er greint í frétt BBC.

Julian Smith, þing­flokks­for­maður Íhalds­manna sem sér um að smala saman atkvæðum Íhalds­flokks­ins á þingi, hef­ur hins veg­ar sagt að hann sé sann­færður um að samn­ings­drög­in muni kom­ast í gegn­um þingið.

Hvað gerist ef ríkisstjórnin samþykkir drögin?

Jafnvel þó Theresa May fái blessun rík­is­stjórn­ar­innar þá er ljóst að slag­ur­inn um að fá samn­ing­inn sam­þykktan í breska þing­inu verði erf­iður. For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur ekki meiri­hluta þing­manna í neðri deild þings­ins með sér í liði. Þingmenn Verka­manna­flokks­ins sem og ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka hafa nú þegar lýst yfir að þeir séu fullir efa­semda um samn­ing­inn eða hafa lýst yfir and­stöðu gegn honum.

Samkvæmt heim­ild­ar­mönnum BBC er eini mögu­leik­inn fyrir Theresu May til að fá samn­ing­inn sam­þykktan í þing­inu að kynna hann sem eina mögu­lega samn­ing­inn fyrir Bretland í von um að fá þá sem eru tví­stíg­andi með sér í lið. Samkvæmt heim­ildum BBC eru nokkrir þing­menn Verka­manna­flokks­ins og Íhalds­flokks­ins að reyna að sjá til þess að einnig verði kosið um aðra mögu­leika í þing­inu.

Ef þingið sam­þykkir ekki samn­ing­inn þá er óvíst hvað muni ger­ast næst. Samkvæmt BBC er mögu­leiki á því að May reyni að end­ur­semja um nýjan samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið. Líklegt þykir að tími hennar sem for­sæt­is­ráð­herra sé á enda ef ekki næst sátt við breska þingið, hvort sem það sé með nýrri kosn­ingu eða að nýr for­sæt­is­ráð­herra verði val­inn. Haft er eftir heim­ild­ar­mönnum BBC að mögu­leiki sé á því að hún muni kalla eftir nýrri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur margoft sagt að sá mögu­leiki sé ekki fyrir hendi.

Full­trúar ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins þurfa sömu­leiðis að sam­þykkja drögin en sam­kvæmt heim­ild­ar­mönnum BBC munu sendi­herrar aðild­ar­ríkj­anna 27 koma saman í Brussel í dag til að ræða drögin. Stefnt er að því að halda leið­toga­fund í lok mán­aðar­ins þar sem skrifað verður und­ir samn­ings­drög­in ef rík­is­stjórnin sam­þykkir drögin. Á þeim fundi á einnig að ræða hvernig sam­skipt­um Bret­lands og ESB verður háttað eft­ir út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, sem áætluð er 29. mars á næsta ári en gert er ráð fyrir 21 mán­aða aðlög­un­ar­tíma­bili eftir það. 

Hér má fylgj­ast með beinni lýs­ingu breska rík­is­út­varps­ins frá fram­vindu Brex­it-við­ræðn­anna í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár