Brexit mestu vandræði sem breskir stjórnmálamenn hafa lent í lengi

Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor segir að Brexit sé að reyn­ast Theresu May for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands gríð­ar­lega erfitt, eftir afsagnir þriggja ráð­herra í rík­is­stjórn hennar síð­asta sól­ar­hring­inn.

„Það hefur komið í ljós síð­ustu árin að Brexit eru mestu vand­ræði sem breskir stjórn­mála­menn hafa lent í síðan breska heims­veldið var að leys­ast upp,“ segir Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor inntur eftir við­brögðum við afsögnum þriggja [links]ráð­herra í rík­is­stjórn Theresu May í Bret­landi.

Kjarninn greindi frá því í dag að Boris Johnson hefði sagt af sér emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra. Hann varð þannig þriðji ráð­herr­ann á innan við sól­ar­hring til að hætta í rík­is­stjórn­inni, en í gær til­kynntu þeir David Davis ráð­herra Brex­it-­mála og Steve Baker ráð­herra úrsagnar lands­ins úr ESB að þeir hefðu yfir­gefið rík­is­stjórn­ina.

Ólafur segir bresku þjóð­ina algjör­lega klofna í tvær fylk­ingar um hvort hún vilji vera inni eða úti þegar kemur að Evr­ópu­sam­band­inu.

„Í raun­inni er það alveg ótrú­legt að David Cameron hafi á sínum tíma reynt að leysa inn­an­flokksá­tök í Íhalds­flokknum með því að setja málið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Öll þró­unin síðan hefur sýnt hvað þetta er gríð­ar­lega flokið mál. Það hefur nátt­úr­lega komið í ljós að mjög margt af því sem að þeir sem studdu Brexit í þjóð­at­kvæða­greiðsl­unni héldu fram hefur bara reynst rangt. Margt af því sem Brex­it­sinn­arnir héldu að útganga úr Evr­ópu­sam­band­inu myndi færa Bretum, það mun alls ekki ger­ast, þannig að núna erum við búin að horfa á Íhalds­flokk­inn og reyndar breska stjórn­mála­menn almennt engj­ast í tvö ár og vita ekk­ert í hvaða fót þeir eiga að stíga. Það er ennþá algjör­lega ómögu­legt að setja hver lend­ingin á end­anum verður.“

Ólafur segir stöðu May bæði flókna og erf­iða.

„Nú hefur breska stjórnin náð ein­hvers konar sam­komu­lagi um ein­hvers konar mjúkt Brexit viðrist vera. Samt sem áður eru hörð­ustu Brex­it­sinn­arnir í Íhalds­flokknum mjög ósáttir við þá nið­ur­stöðu sem nátt­úru­lega sýnir sig með afsögn­ina hjá Davis. Staða May er nátt­úru­lega mjög flókin og erfið. Fyrir utan átökin í Íhalds­flokknum þá virð­ist líka Verka­manna­flokk­ur­inn tala svo­lítið út og suður í mál­inu. Þannig að ég held að það sé á þessu stigi ómögu­legt að spá nokkru um það hver þró­unin verður að öðru leyti en að hún veður mjög erfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár