Raab nýr ráðherra í Brexit-málum

Dominic Raab hefur tekið við sem svo­kall­aður Brexit-ráð­herra í rík­is­stjórn Bret­lands eftir afsögn for­vera hans David Davis í gær.

Dominic Raab, nýr ráðherra Brexit-mála í bresku ríkisstjórninni
Dominic Raab, nýr ráð­herra Brexit-mála í bresku rík­is­stjórn­inni Mynd: EPA

Dominic Raab hefur tekið við sem ráð­herra Brexit-mála í rík­is­stjórn Theresu May í Bret­landi. Ráðning Raab kemur í kjöl­far afsagnar for­vera hans David Davis í gær­kvöldi. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Raab hefur verið yfir­lýstur stuðn­ings­maður útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, en hann spil­aði veiga­mik­inn þátt í kosn­inga­bar­áttu aðskiln­að­ar­sinna í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið. Samkvæmt Guardian mætti líta á ráðn­ingu Raab sem snið­göngu rík­is­stjórn­ar­innar á Michael Gove, sem væri aug­ljós val­kostur í stöð­una.

Afsögn Davis kemur í kjöl­far afsagnar ann­ars ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem sá um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, Steve Baker. Vegna þeirra þurfti Theresa May að velja í nýjar ráð­herra­stöður á sama tíma og hún þarf að sann­færa alla stjórn­ar­þing­menn til að styðja áætlun hennar. 

Takist May ekki að sann­færa alla þing­menn sína gæti staða hennar sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands verið í hættu, en ef 15 pró­sent sam­flokks­manna hennar á þingi sam­þykkja ekki nýju rík­is­stjórn­ina geta þau lagt fram van­traust­s­til­lögu á hendur May. Hins vegar er ólík­legt að mati Guardian að til­lagan yrði sam­þykkt, nái hún í gegn. 

Davis hafði áður sagst ekki geta lengur unað við ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar að stefna að „mjúkri“ útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu, en sú stefna miðar að frí­versl­un­ar­svæði milli Bret­lands og ESB þar sem bæði svæðin lúta sömu reglum. 

Í afsagn­ar­bréfi sínu ítrekar Davis þessar áhyggjur og sagði stefn­una munu gefa Evr­ópu­sam­band­inu gríð­ar­leg völd yfir breska hag­kerfið og ekki gefa land­inu sínu sjálf­stjórn í neinum raun­veru­legum skiln­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár