Ekki vanhæfur í máli Ólafs Ólafssonar

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og með­dóm­arar hans í Lands­rétti höfn­uðu því með úrskurði sínum í gær að Vil­hjálmur væri van­hæfur til að dæma í áfrýj­uðu máli um end­ur­upp­töku Ólafs Ólafs­sonar.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og með­dóm­arar hans í Lands­rétti höfn­uðu því með úrskurði sínum í gær að Vil­hjálmur væri van­hæfur til að dæma í áfrýj­uðu máli um end­ur­upp­töku Ólafs Ólafs­sonar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM sendir fyrir hönd Ólafs Ólafs­sonar í dag.

[links]Í til­kynn­ing­unni kemur jafn­fram fram að úrskurð­ur­inn verði kærður til Hæsta­réttar.

Vil­hjálmur er dóm­ari í máli sem áfrýjað var til Lands­réttar þar sem tek­ist er á um kröfu Ólafs um end­ur­upp­töku á þætti hans í Al Than­i-­mál­inu. Ólafur Ólafs­son krafð­ist þess að Vil­hjálmur viki sæti.

Kjarninn fjall­aði um málið í vik­unni en í svari Þór­ólfs Jóns­son­ar, lög­fræð­ings Ólafs, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kom fram að sú krafa væri byggð á ákvæði í lögum um með­ferð einka­mála sem kveður á um að dóm­ari sé van­hæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru „önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans með réttu í efa.“

Í því sam­hengi var vísað til þrenns. Í fyrsta lagi muni Vil­hjálmur vera náinn vinur Mark­úsar Sig­ur­björns­son, sem var einn dóm­enda í Al Thani mál­inu og sat í for­sæti í dóm­in­um.

Í öðru lagi hafi sonur Vil­hjálms, Ingi Freyr Vil­hjálms­son blaða­mað­ur, ritað tugi blaða­greina um Ólaf þar sem jafnan sé fjallað um hann á afar nei­kvæðan hátt.

Í þriðja lagi hafi annar sonur Vil­hjálms, Finnur Vil­hjálms­son, verið sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara en síðar ráð­inn starfs­maður rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sem rann­sak­aði sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. Finnur var annar höf­undar skýrslu sem nefndin sendi frá sér þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að Ólafur hefði beitt stjórn­völd blekk­ing­um. Erindi frá Ólafi vegna þeirrar máls­með­ferðar allrar er nú til með­ferðar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu.

Hér­aðs­dóm­ur Reykja­vík­­ur hafn­aði kröfu Ólafs Ólafs­­son­ar í des­em­ber síð­ast­liðnum um að fella úr gildi úr­sk­­urð end­­ur­upp­­­töku­­nefnd­ar sem kom­ist hafði að þeirri nið­ur­­­stöðu að ekki væri efni til þess að end­­ur­upp­­­taka Al Than­i-­málið svo­­kall­aða þar sem Ólaf­ur var sak­­felld­ur fyr­ir mark­aðs­mis­­­not­k­un.

Ólaf­ur höfð­aði mál gegn emb­ætti rík­­is­sak­­sókn­­ara og ís­­lenska rík­­inu í júní 2016. Hann krafð­ist þess að felld­ur yrði úr gildi úr­sk­­urður end­­ur­upp­­­töku­­nefnd­ar frá 26. janú­ar 2016 þar sem hafnað var beiðni hans um end­­ur­upp­­­töku Al Than­i-­máls­ins, sem dæmt var í Hæsta­rétti Íslands 12. fe­brú­ar 2015. Þá krafð­ist Ólaf­ur máls­­kostn­að­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár