Þriðjungur landsmanna er ekki í þjóðkirkjunni

Íslend­ingum sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una fækkar enn. Það sem af er ári hafa rúm­lega þús­und fleiri sagt sig úr henni en gengið í hana. Alls standa nú um 120 þús­und lands­menn utan þjóð­kirkj­unnar.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, við þingsetningu Alþingis.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, við þing­setn­ingu Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls fækk­aði Íslend­ingum sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una um 1.069 á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018. Annar hver lands­maður sem breytti skrán­ingu sinni í trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lagi ákvað að ganga úr þjóð­kirkj­unni. Þetta kemur fram í tölum frá Þjóðskrá um breyt­ingar á slíkum skrán­ingum.

Um er að ræða breyt­ingar sem eru mjög í takt við það sem átt hefur sér stað hér­lendis á und­an­förnum árum. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra lands­manna sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una met­tölu, en þá voru 253.069 lands­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú 233.146. Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 19.923 frá árs­byrjun 2009. Á því tíma­bili hefur Íslend­ingum fjölgað um 33.708, en þjóð­kirkj­unni hefur mis­tek­ist að ná þeim fjölda til sín líka. Sam­an­lagt eru hafa því tæp­lega 54 þús­und Íslend­ingar ákveðið að ganga ekki í þjóð­kirkj­una á síð­ast­liðnum árum. Alls standa nú um 120 þús­und lands­menn utan þjóð­kirkju.

Hlut­falls­lega hefur þeim sem vilja vera í kirkj­unni einnig fækkað mikið. Árið 1998 var 90 pró­sent þjóð­ar­innar í henni. Í dag eru 66 pró­sent þjóð­ar­innar þar inni, eða tveir af hverjum þremur lands­mönnum.

Mikill flótti í fyrra

Mikill flótti var úr þjóð­kirkj­unni í fyrra, þegar þegnum hennar fækk­aði um 3.019 á alm­an­aks­ár­inu. Þorri þess hóps sagði sig úr henni á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2017, eða 2.246 alls.

Það er næst­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­anir um þöggun þjóð­kirkj­unnar yfir meintum kyn­ferð­is­glæpum Ólafs Skúla­son­ar, fyrr­ver­andi bisk­ups, voru settar fram. Þá fækk­aði um 4.242 í þjóð­kirkj­unni á einu ári.

Líklega má leita skýr­inga á hinum mikla fjölda úrsagna í fyrra í því að Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands og leið­togi þjóð­kirkj­unnar, rataði tví­vegis í fréttir á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2017 vegna mála sem þóttu umdeild.

Fyrst sagði hún í sam­tali við Morg­un­blaðið að henni þætti ekki sið­ferð­is­lega rétt að stela gögnum og fara á bak við fólk til að afhjúpa mál og leiða sann­­leik­ann í ljós. Þessi ummæli féllu í sam­hengi við lög­bann sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði sam­þykkt gagn­vart fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­unum Stund­inni og Reykja­vík Media, vegna birt­ingar þeirra á fréttum sem unnar voru úr gögnum úr gamla Glitni.

Síðara málið sem kom upp var í des­em­ber, þegar kjara­ráð ákvað að hækka laun Agn­esar um tugi pró­senta. Heild­ar­laun hennar eftir hækk­un­ina eru 1.553.359 krón­ur. Hækk­­unin var auk þess aft­­ur­­virk til 1. jan­úar 2017, sam­­kvæmt úrskurð­in­­um. Um ára­mót fékk því bisk­up ein­greiðslu fyrir síð­­asta árið en sú upp­­hæð nam 3,3 millj­­ónir króna.

Hækk­unin kom í kjöl­far bréfs sem biskup sendi kjara­ráði þar sem ýmis rök voru færð fyrir því að hún ætti að fá launa­hækk­un. Sér­stak­lega var til­greint að biskup greiddi nú húsa­leigu fyrir afnot af emb­ætt­is­bú­stað sem henni er skylt að búa í. Í Frétta­blað­inu þann 28. des­em­ber var greint frá því að leigan fyrir bisk­ups­bú­stað­inn, sem er 487 fer­metra hús í mið­borg Reykja­vík­ur, væri tæp­lega 90 þús­und krónur á mán­uði.

Kostar á fimmta milljarð á ári

Til­veru­réttur þjóð­kirkj­unnar er tryggður í stjórn­ar­skrá lands­ins. Þar segir að hin evang­el­íska lút­erska kirkja skuli vera þjóð­kirkja á Íslandi og að rík­is­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Auk þess er í gildi hið svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag frá árinu 1997, sem í felst að þjóð­kirkjan afhenti rík­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun 138 presta og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu.

Í krafti þessa fær þjóð­kirkja umtals­verða fjár­muni úr rík­is­sjóði. Þaðan er til að mynda greitt fram­lag til Bisk­ups Íslands, í Kirkju­mála­sjóð og Jöfn­un­ar­sjóð sókna. Sam­tals er áætlað að þessi upp­hæð verði 2.830 millj­ónir króna í ár. Til við­bótar fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni er. Ætla má að sú upp­hæð verði um 1.750 millj­ónir króna í ár. Sam­tals mun rekstur þjóð­kirkj­unnar því kosta tæp­lega 4,6 millj­arða króna í ár. Þá er ekki með­talið rúm­lega 1,1 millj­arðs króna fram­lag til kirkju­garða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár