Mannréttindadómstóllinn tekur fyrir kæru vegna Landsréttarmálsins

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur tekið kæru vegna Lands­rétt­ar­máls­ins til með­ferðar og farið fram á skýr­ingar frá íslenska rík­inu. Afgreiðsla rétt­ar­ins eins­dæmi í sögu íslenskra mála.

Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi mannsins.
Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, verj­andi manns­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur tekið kæru vegna Lands­rétt­ar­máls­ins til með­ferðar og farið fram á skýr­ingar frá íslenska rík­inu. Svo skjót máls­með­ferð er eins­dæmi enda rétt um mán­uður frá því kæra barst dóm­stólnum. Ástæðan er sögð alvar­leg réttaró­vissa, sem hætta sé á að skap­ist vegna máls­ins.

[links]Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Hæsti­réttur stað­festi þann 24. maí síð­ast­lið­inn dóm Lands­réttar í saka­máli manns sem hafði verið dæmdur í 17 mán­aða fang­elsi fyrir marg­vís­leg brot. Þetta þýð­ir, að mati Hæsta­rétt­ar, að Arn­fríður Ein­ars­dóttir megi dæma í Lands­rétti.

Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, verj­andi manns­ins, lagði fram kröfu í Lands­rétti þann 2. febr­úar síð­ast­lið­inn um að Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, dóm­ari við dóm­stól­inn, víki sæti úr dóms­máli sem henni hafði verið úhlutað vegna van­hæf­is. Arn­fríður var einn fjög­urra dóm­ara sem dóms­mála­ráð­herra lagði til að yrði skipuð í stað þeirra fjög­urra sem sér­stök hæfn­is­nefnd mat hæf­asta.

[adspot]

Lands­­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms í lok febr­úar síð­ast­liðnum og sagði að skip­un­inni yrði ekki hagg­að. Alþingi hefði sam­­þykkt skip­un­ina og á þeim grund­velli hefði for­­seti Íslands skipað hana. Þá lægi fyrir að Arn­­fríður upp­­­fylli, og upp­­­fyllti við skip­un­ina, almenn hæf­is­skil­yrði sam­­­kvæmt lögum um dóm­stóla. Sem skip­uðum dóm­­­ara bæri henni að rækja þann starfa sem emb­ætt­inu fylgir í sam­ræmi við stjórn­­­­­ar­­­skránna. Þá nyti hún sjálf­­­stæðis í emb­ætt­is­at­höfnum sín­um, meðal ann­­­ars gagn­vart ráð­herra sem gerði til­­­lögu um skipan hennar í emb­ætt­ið.

Í frétt RÚV kemur fram að spurn­ingar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins til íslenska rík­is­ins séu í tveimur liðum. Þar sé meðal ann­ars spurt, hvernig það sam­rým­ist ákvæði mann­rétt­inda­sátt­mála að skipun dóm­ara hafi ekki fylgt þeim ákvæðum laga að Alþingi skuli greiða atkvæði um hvert og eitt dóm­ara­efni fyrir sig, í stað þess að greiða atkvæði um til­lögu ráð­herr­ans í heild eins og gert var. Enn fremur sé spurt um nið­ur­stöðu Hæsta­réttar frá í maí í sam­hengi við fyrri dóm Hæsta­réttar um brot ráð­herr­ans á lögum við skip­un­ina. Með öðrum orðum vilji Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn vita hvernig ólög­leg skipan dóm­ara geti hald­ist í hendur við þá nið­ur­stöðu að sömu dóm­arar sitji lög­lega í rétt­inum.

Gunnar Ingi Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður var í við­tali við RÚV en hann hefur mikla reynslu af því að sækja mál fyrir mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Hann segir afgreiðslu rétt­ar­ins nú eins­dæmi í sögu íslenskra mála þar.

„Þetta var alveg ein­stak­lega hraður tími. Það er algengt að þessi mál taki þrjú til fimm ár jafn­vel ívið lengur. Mál sem kært er til dóm­stóls­ins og varða hugs­an­lega réttaró­vissu í ein­stökum ríkjum þau eru flokkuð þannig að þau á að reka hraðar og þau eru tekin fram fyrir önnur mál,“ segir Gunnar Ingi í sam­tali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár