Sigmundur Davíð spyr forseta Alþingis um hálfnakið fólk

Formaður Mið­flokks­ins hefur beint fyr­ir­spurn til for­seta Alþingis og vill fá að vita hver hafi gefið leyfi fyrir því að „hálf­nakið fólk“ nýtti Alþing­is­húsið í aug­lýs­inga­skyni.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi um hver það sé sem veiti „leyfi fyrir því að hálf­nakið fólk nýtti Alþing­is­húsið í aug­lýs­inga­skyni og gengi þaðan á sama hátt og for­seti Íslands og þing­menn gera við þing­setn­ingu?“

Í fyr­ir­spurn­inni er einnig farið fram á að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, svari því hvort hann telji slíka notkun á þing­hús­inu og þing­hefðum sé til þess fallin að auka virð­ingu Alþingis og hvort að þetta leyfi teng­ist „stuðn­ingi for­seta Alþingis við mál­stað þeirra sem leyfið hlutu“?

Ekki náð­ist í Sigmund Davíð við vinnslu frétt­ar­innar. Líklega er ástæða þess að hann spyr um málið gjörn­ingur sem var settur á svið í til­efni af opn­un sýn­ing­ar­inn­ar Demoncrazy á Lista­hátíð Reykja­vík­ur í síð­ustu viku. Í honum gengu ber­brjósta ungar kon­ur frá Alþing­is­hús­inu við Aust­ur­völl að Lista­safni Íslands til að „ögra þeirri jakka­fata­klæddu, mið­aldra og karl­kyns ímynd valds­ins sem þær hafa alist upp við.“ Meðal ann­ars stóðu kon­urnar í dyrum Alþingis er snýr að Aust­ur­velli, en ljós­mynd­ari mbl.is smellti mynd af kon­unum í þeim aðstæðum.. Áður hafði ljós­mynda­sýn­ing af kon­unum opnað við Asutur­völl í tengslum við gjörn­ing­inn.

Sig­mundur Davíð vill einnig fá að vita hvort að aðrir hópar geti vænt þess að fá leyfi fyrir sams konar við­burðum óháð því hvort for­seti Alþingis er fylgj­andi mál­stað þeirra eða ekki og spyr hvort þetta leyfi sé til marks um að „vænta megi frek­ari til­slak­ana á reglum um klæða­burð Alþing­is­manna?“

Fjórar fyrirspurnir

Umrædd fyr­ir­spurn er ein af fjórum sem Sig­mundur Davíð lagði fram í dag. Hinar þrjár snúa að upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna, kostn­aði við ráðn­ingar á aðstoð­ar­fólki ráð­herra í rík­is­stjórn­inni og kostn­aði við sér­fræð­inga­ráð­gjöf rík­is­stjórn­ar­innar.

Í fyr­ir­spurn­inni um upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna er meðal ann­ars spurt hvað sé átt við með „borg­ar­línu“, í hverju stuðn­ingur rík­is­stjórnar við borg­ar­línu muni fel­ast og í hverju upp­bygg­ing almenn­ings­sam­gangna sem vísað sé til í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar muni fel­ast.

Sig­mundur Davíð vill einnig m.a. fá að vita hversu marga aðstoð­ar­menn ráð­herrar og rík­is­stjórn hafi ráðið án aug­lýs­ingar, hvort að slíkir aðstoð­ar­menn hafi áður verið fleiri og hvernig for­sæt­is­ráð­herra ætli að jafna aðstöðumun ráð­herra ann­ars vegar, „sem njóta ríku­legs stuðn­ings ráðu­neyta, stofn­ana og aðstoð­ar­manna, og stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna hins vegar, sem njóta ekki slíks stuðn­ings?“

Að end­ingu vill hann fá að vita hversu margir hafi verið ráðnir til að veita for­sæt­is­ráð­herra, ráð­herrum í rík­is­stjórn eða rík­is­stjórn­inni í heild sér­fræði­ráð­gjöf eða aðra aðkeypta þjón­ustu, að frá­tal­inni veit­inga- og ræst­inga­þjón­ustu, frá því að rík­is­stjórnin tók til starfa, hvaða aðilar þetta hafi verið og hverjar greiðslur til þeirra séu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listahátíð

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár