Birgir veitti leyfi fyrir hálfnaktri myndatökunni

Birgir Ármanns­son þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins veitti leyfi fyrir mynda­töku á hálf­nöktum konum í tengslum við gjörn­ing á Lista­há­tíð í þing­flokks­her­bergi flokks­ins. Sér enga ástæðu til að amast við þessum list­gjörn­ingi.

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis hefur svarað Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­manni Mið­flokks­ins um leyf­is­veit­ingar fyrir „hálf­nakið fólk“ í Alþing­is­hús­inu. [links]Sig­mundur spurði Stein­grím í gær í skrif­legri fyr­ir­spurn út í gjörn­ing sem var settur á svið í til­efni af opn­un sýn­ing­­ar­inn­ar Demoncr­azy á Lista­há­tíð Reykja­vík­­ur í síð­ustu viku. Í honum gengu ber­brjósta ungar kon­ur frá Alþing­is­hús­inu við Aust­­ur­­völl að Lista­safni Íslands til að „ögra þeirri jakka­fata­klæddu, mið­aldra og karl­kyns ímynd valds­ins sem þær hafa alist upp við.“ Meðal ann­ars stóðu kon­urnar í dyrum Alþingis er snýr að Aust­ur­velli, en ljós­mynd­ari mbl.is smellti mynd af kon­unum í þeim aðstæð­u­m.. Áður hafði ljós­mynda­sýn­ing af kon­unum opnað við Asutur­völl í tengslum við gjörn­ing­inn.

Í skrif­legu svari Stein­gríms kemur fram, við spurn­ing­unni um hver hafi veitt leyfi fyrir því að hálf­nakið fólk nýtti Alþing­is­húsið í aug­lýs­inga­skyni og gengi þaðan á sama hátt og for­seti Íslands og þing­menn geri við þing­setn­ingu, að mynda­takan hafi farið fram í þing­flokks­her­bergi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og að það muni hafa verið for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem veitti góð­fús­lega leyfi fyrir mynda­tök­unni og „við það gerir for­seti engar athuga­semdir“ segir í svari Stein­gríms.

Birgir Ármanns­son er þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og segir það passa að hann hafi veitt leyfi fyrir mynda­tök­unni í sam­tali við Kjarnann. „Ég get haft mínar per­sónu­legu skoð­anir á þessum list­gjörn­ingi eins og ýmsum öðrum en á hinn bóg­inn þá truflar það mig ekki þó að þetta hafi verið með þessum hætti,“ aðspurður um hvað legið hafi að baki þessu leyfi.

„Í þessu til­viki var óskað eftir mynda­töku í þing­flokks­her­bergi okkar og það er auð­vitað óvenju­legt en ég sá ekki ástæðu til að leggj­ast gegn því,“ segir Birgir og segir um það hvort aðrir hópar megi vænta þess að fá leyfi fyrir sams konar við­burðum að það hlóti að met­ast bara í hverju til­viki fyrir sig og ekki hægt að gefa neitt algilt svar við því. „Auðvitað er umgengni um þing­húsið háð ákveðnum reglum, skil­yrðum og leyfum en ég sé enga ástæðu til þess að amast við þessum list­gjörn­ingi.“

Í svari Stein­gríms segir um list­gjörn­ing­inn: „ Varðandi þann list­gjörn­ing að hópur kvenna gekk ber­brjósta út úr Alþing­is­hús­inu um aðal­dyr og út í bæinn, þá var leyfi til þess veitt af skrif­stofu­stjóra Alþingis og er það sömu­leiðis athuga­semda­laust af hálfu for­seta. Áður hafði verið vel tekið í ósk aðstand­enda Lista­há­tíðar um sam­vinnu við Alþingi um upp­setn­ingu mynda og var for­seti því með­mæltur. Ekki reyndi þó, þegar til kom, á þann þátt með sama hætti og til stóð þar sem það fannst annar heppi­legri staður fyrir upp­setn­ingu mynd­anna. Rétt er að minna á í þessu sam­bandi að list­við­burður þessi og gjörn­ingur er í beinu sam­hengi við þá vakn­ingu sem konur víða um heim, og einnig á Íslandi, hafa hrundið af stað undir for­merkj­unum „Ég líka“ og hefur m.a. leitt til þess að Alþingi hefur nú breytt siða­reglum sínum og einnig haldið rak­ara­stofu­við­burð, hvort tveggja í því skyni að vinna gegn hvers kyns kyn­bundnu áreiti, kyn­bundnu ofbeldi, ein­elti og annarri óásætt­an­legri hegðun.“

Sig­mundur Davíð spurði Stein­grím einnig um hvort hann teldi umrædda notkun á þing­hús­inu og þing­hefðum til þess fallna að auka virð­ingu Alþingis. Stein­grímur svarar því til að á því kunni eðli­lega að vera skiptar skoð­anir og fari eftir smekk manna og við­horfi til list­sköp­unar. „Viðhorf for­seta er að Alþingi eigi að vera í góðum tengslum við þjóð­lífið og finna til í stormum sinnar tíðar. Þar á meðal er að leggja fyrir sitt leyti lið ef óskað er eftir atbeina við list­sköpun og atburði af því tagi sem Lista­há­tíð í Reykja­vík er og ekki síst ef vett­vangur slíkra atburða er næsta nágrenni þing­húss­ins.“

Stein­grímur segir að engin afstaða sem slík hafi verið tekin til boð­skap­ar­ins sem lista­menn­irnir vildu koma á fram­færi eða þess mál­staðar sem þeir vildu með list­sköpun sinni þjóna. „Forseti dregur þó enga dul á að hann lítur með vel­vilja og aðdáun á þá vakn­ingu sem konur hafa með hetju­legri fram­göngu sinni og frá­sögnum vakið varð­andi margs konar forn­eskju­leg við­horf og óásætt­an­lega fram­komu sem þær mega enn sæta í sam­tím­anum vegna kyn­ferðis síns. Þessi afstaða for­seta hafði þó ekki áhrif í þessu til­viki, heldur þau almennu sjón­ar­mið sem að framan greinir um að Alþingi eigi að vera í góðum tengslum við þjóð­lífið og megi gjarnan styðja við atburði af því tagi sem Lista­há­tíð í Reykja­vík er, ef eftir því er leitað.“

Stein­grímur segir í lok­inn að vænt­an­lega yrðu sömu við­horf uppi ef eftir ein­hverju sam­bæri­legu yrði leitað í fram­tíð­inni og aðstæður að öðru leyti sam­bæri­legar. Hann vonar að aldrei verði farið inn á þá braut að láta ein­hvers konar list­póli­tíska íhlutun eða afstöðu ráða för heldur almenn sjón­ar­mið. Þá segir hann, aðspurður um hvort þetta leyfi sé til marks um að vænta megi frek­ari til­slak­ana á reglum um klæða­burð Alþing­is­manna, að list­við­burð­ur­inn sé rót­grónum venjum um snyrti­legan klæða­burð þing­manna við vinnu sína óvið­kom­andi með öllu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listahátíð

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár