Karl Marx og kratakrísan

Þýskir kratar hafa glímt við marg­háttuð vand­ræði í vetur. Þótt for­manns­skipti hafi átt sér stað blása enn naprir vindar um flokk­inn.

Martin Schulz má með réttu kalla sveiflukóng.
Martin Schulz má með réttu kalla sveiflu­kóng. Mynd: EPA

Karl Marx átti merk­is­af­mæli um síð­ustu helgi. Hann hefði orðið 200 ára, hefði hann lifað. Þjóð­verjar hafa afskap­lega gaman af að fagna afmælum og þeir hafa haldið upp á afmæli gamla fræði­manns­ins sem þeir hröktu í útlegð hálf­þrí­tugan af því skrif hans fóru fyrir brjóstið á Prússa­keis­ara. Í fæð­ing­arbæ hans, vín­bænum Trier við ána Mósel rétt við landa­mæri Lúx­em­borgar, var afmæl­inu sér­stak­lega fagnað enda full­trúi kín­verskra stjórn­valda mættur til að afhenda bæj­ar­búum styttu af þessum fræg­asta syni bæj­ar­ins. Engin smá­smíði sú stytta, hálfur sjötti metri á hæð.

Það er við hæfi því Karl Marx var stór­menni og arfur hans mik­ill og marg­breyti­legur. Hvar sem menn standa í póli­tík við­ur­kenna flestir að hann sá í gegnum kap­ít­al­ismann af skarp­skyggni sem fáum er gefin. Ágrein­ing­ur­inn liggur helst í því hversu miklu af vonsku komm­ún­ism­ans menn vilja rekja til hans per­sónu­lega.

Hluti þessa arfs er til­vist SPD, flokks þýskra jafn­að­ar­manna sem nú deilir stjórn­ar­taumunum hér í Berlín með kristi­legum demókrötum. SPD rekur sögu sína aftur til árs­ins 1863 þegar Marx var í útlegð og gat þess vegna ekki verið með. En hann var með í and­anum og skrif­að­ist á við flokk­inn frá Lundúnum. Þegar hann lést var Bismarck búinn að banna flokk­inn, rétt eins og Hitler gerði síðar.

Ég veit hins vegar ekki nema Marx snúi sér reglu­lega í gröf sinni yfir flokknum eins og staða hans er núna.

Forystuafl á brauðfótum

Sozialdemochratische Partei Deutschlands eins og flokk­ur­inn heitir fullu nafni á þýsku er elsti flokkur lands­ins og hefur lengst af þeirri sögu verið stærstur eða næst­stærstur flokka hér í landi. Allt frá því goð­sögnin Willy Brandt varð kansl­ari árið 1969 hefur flokk­ur­inn skipst á við kristi­lega demókrata um að skipa í það emb­ætti. Fylgi hans hefur lengst af verið á bil­inu 30-40%. Hann hefur löngum verið for­ystu­afl jafn­að­ar­manna á Evrópu- og heims­vísu og notið virð­ingar sem slíkur.

En nú er öldin önnur. Í kosn­ing­unum síð­asta haust var fylgið dottið niður í 20,5% og í skoð­ana­könn­unum að und­an­förnu hefur það mælst á bil­inu 17-19%. Þessi þrauta­ganga hefur staðið um nokk­urra ára bil en fyrir réttu ári virt­ist henni vera lokið. Snemma árs í fyrra kusu jafn­að­ar­menn sér nýjan leið­toga, Martin Schulz. Hann var kos­inn með öllum greiddum atkvæðum á flokks­stjórn­ar­fundi og hafði varla tyllt sér í for­manns­stól­inn þegar fylgið fór að aukast í könn­unum.

Það má með réttu kalla Schulz sveiflu­kóng, þó ekki í alveg sama skiln­ingi og Geirmund Val­týs­son. Kúrvan í skoð­ana­könn­unum stefndi í að fara upp fyrir fylgi Kristi­legra demókrata þegar leið á vorið. En þá hófst nið­ur­sveiflan og í kosn­ing­unum í lok sept­em­ber fékk flokk­ur­inn aðeins um fimmt­ung atkvæða sem er léleg­asta útkoma hans í sög­unni. Schulz fór þá í fýlu og lýsti því yfir með afdrátt­ar­lausum hætti að hann ætl­aði aldrei framar að taka þátt í stjórn­ar­myndun með Angelu Merkel, hvað þá að þiggja af henni ráð­herra­emb­ætti.

Eftir að Frank-Walter Stein­meier for­seti Þýska­lands og flokks­bróðir Schulz þrýsti á hann lét hann sig þó hafa það að ganga til við­ræðna við Merkel um stjórn­ar­myndun og náðu þau saman um nýja stór­sam­ein­ingu, GroKo. Og það sem meira var, Schulz ætl­aði ekki að láta sér nægja að vera vara­skeifa kanslar­ans eins og hans hlut­verk hefur verið heldur taka að sér emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra. Svo ákveð­inn var hann í þessu að hann lét emb­ætti flokks­for­manns af hendi og til­nefndi Andreu Nahles sem arf­taka sinn. Við þetta hélt hann í tvo sól­ar­hringa, þá var reiði flokks­manna hans orðin svo mikil að hann varð að gefa eftir utan­rík­is­ráðu­neytið. Honum hafði láðst að ræða þetta við starf­andi utan­rík­is­ráð­herra, Sigmar Gabriel, hvað þá aðra flokks­fé­laga. Nú er hann því bara óbreyttur þing­maður með engin völd og þverr­andi áhrif. Þó eru uppi raddir um að hann gæti verið á leið aftur á Evr­ópu­þingið sem kosið verður til á næsta ári en þar á hann reyndar for­tíð sem þing­for­seti.

Þrotinn að kröftum og vinalaus

Þessi svana­söngur Schulz sem for­maður SPD vakti furðu margra utan flokks sem innan og um hann var skrifuð bók sem kom út um miðjan mars. Sá sem rit­aði er blaða­maður á Der Spiegel, Markus Feldenkirchen, sem fylgdi Schulz eins og skugg­inn allt til enda. Hann lýsir því hvernig Schulz var kjör­inn for­maður undir því víg­orði að brúa bilið sem hafði mynd­ast milli for­yst­unnar og hins almenna flokks­fé­laga og hvernig hann end­aði með því í raun að taka sér alræð­is­vald, hann vildi bæði ráða og reka, hvað svo sem sam­þykktir og hefðir flokks­ins sögðu til um.

Feldenkirchen lýsir síð­asta ferða­lag­inu sem Schulz fór sem for­maður, í flug­vél frá Köln til Berlínar dag­inn áður en hann sagði af sér sem for­maður. Hann var útkeyrður þrátt fyrir að hafa tekið sér frí í tvo daga til að fara á karni­val í heimabæ sínum, Aachen. – Guð hvað ég er þreyttur. Ég efast um að ég nái því að hress­ast, ég þarf örugg­lega hálft ár til þess að ná upp kraft­inum aftur, sagði hann. For­mannsárið hefði byrjað vel en svo fór allt á verri veg og það end­aði með vinslitum við Sigmar Gabriel en þeir höfðu lengi verið nánir félagar. Schulz líkti þessum síð­ustu mán­uðum við það sem ger­ist í sjón­varps­þátt­unum House of Cards þar sem fjallað er um grimmd og nið­ur­læg­ingu sem helsta ein­kenni stjórn­mál­anna.

Hver er sérstaða SPD?

Þótt Schulz hafi hörfað ofan af toppnum blása enn naprir vindar um flokk­inn ef marka má fréttir fjöl­miðla. Í helg­ar­út­gáfu Berlín­ar­blaðs­ins Tagesspi­egel má lesa for­síðu­frétt um að enn séu átök um menn og sér í lagi mál­efni í SPD. Þar er tek­ist á um ýmis mál en þó einkum þau sem ráð­herrar flokks­ins bera ábyrgð á og þeir eru sjálfir virkir í deil­unum.

Sem dæmi má nefna að stefna nýs utan­rík­is­ráð­herra SPD, Heiko Maas, gagn­vart Rússum er harð­ari en sú sem for­veri hans, áður­nefndur Sigmar, fylgdi. Gegn þessu stefna margir flokks­menn Ost­politik Willy Brandts sem vildi vera í senn fylg­inn sér og sveigj­an­legur í við­ræðum við Rússa. Þá gerð­ist það í vik­unni að Olaf Scholz fjár­mála­ráð­herra flokks­ins – sá fyrsti sem SPD hefur fengið – lagði fram fyrsta fjár­laga­frum­varp sitt í vik­unni og þar fannst mörgum vanta tals­vert upp á fjár­fest­ingar- eða eyðslu­gleð­ina. Rót­tæk­linga­blaðið Taz kall­aði frum­varpið Rautt núll sem er til­vísun í svart núll kristi­legra demókrata sem hafa þá meg­in­stefnu að auka aldrei skuldir rík­is­ins.

Þessar deilur má eflaust skoða í ljósi þess að stór hluti flokks­manna er á því að flokk­ur­inn hefði helst ekki átt að taka sæti í fleiri Merkel­stjórnum, þær hafi dregið úr honum tenn­urnar og nú þurfi jafn­að­ar­menn að skerpa lín­urnar, draga fram þá rót­tækni sem liggur í rót­unum og sög­unni.

Meðan allt þetta gekk á kaus flokk­ur­inn sér nýjan for­mann í apríl. Í fyrsta sinn í rúm­lega hálfrar ann­arrar aldar langri sögu SPD treysta flokks­menn konu til þess að gegna for­ystu jafn­að­ar­manna. En hvernig skyldi Andreu Nahles ganga að skerpa flokkslín­urnar með fram því að halda vin­skap­inn við Angelu Merkel? Í það verður spáð í næsta pistli sem birt­ist á sunnu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár