Tollastríðið hans Trumps

Trump er byrj­aður í tolla­stríði við alþjóða­væddan heim við­skipta, með það að mark­miði að örva efna­hag­inn heima fyrir.

Það verður ekki annað sagt um Donald J. Trump, Banda­ríkja­for­seta, en að hann láti hendur standa fram úr ermum, þegar kemur að því að upp­fylla lof­orð um að setja á vernd­ar­tolla fyrir banda­rísk fyr­ir­tæki og banda­rískan efna­hag. Hvort þeir séu skyn­sam­legir, og muni á end­anum gagn­ast banda­rísku efna­hags­lífi, er svo annað mál.

Hann marg­ít­rek­aði í kosn­inga­bar­áttu sinni árið 2016 að Banda­ríkin þyrftu að end­ur­skoða utan­rík­is­verslun sína og þátt­töku sína í alþjóða­sam­starfi og fjöl­þjóð­legum frí­versl­un­ar­samn­ingum.

Stál í ál í stál

Nýjasta útspilið í þessum efnum hefur fallið í grýttan jarð­veg á mark­aði í Banda­ríkj­unum. Það eru tollar á inn­flutn­ing á stáli og áli, en Trump sagði sjálfur þegar til­kynnt var um þessar aðgerðir, að þær myndu skapa störf í Banda­ríkj­unum og leiða til þess að banda­rísk fyr­ir­tæki gætu eflt við­skipti sín, meðal ann­ars við bíla­fram­leið­endur í land­inu sjálfu.

Um 25 pró­sent tollur verður lagður á inn­flutt stál og 10 pró­sent á ál. Þessar aðgerðir eru risa­vaxnar á flesta mæli­kvarða, og hafa þegar komið fram mikil mót­mæli frá öðrum mark­aðs­svæðum, eins og í Evrópu og Asíu.

Óttast versnandi samkeppnisstöðu

En hvers vegna hafa einnig heyrst áhyggju­raddir í Banda­ríkj­unum?

Ýmis fyr­ir­tæki sem nota stál og ál við fram­leiðslu sína, t.d. í bíla- og flug­véla­iðn­aði, ótt­ast að toll­arnir leiði til þess að sam­keppn­is­hæfnin skað­ist.

Þrátt fyrir að allt, þá er iðn­aður í Banda­ríkj­unum að miklu leyti háður fram­leiðslu frá öðrum löndum þegar kemur að áli og stáli. Sé horft til síð­ustu tíu ára þá hefur mun­ur­inn orð­inn mestur um sexfaldur, það er að sexfalt meira af stáli og áli hefur verið flutt til Banda­ríkj­anna heldur en frá þeim. Að með­al­tali er mun­ur­inn um fjór­faldur.

Þessar aðgerðir Trumps nú bein­ast ekki síst að Kín­verjum, en málm­iðn­að­ur­inn hefur vaxið gríð­ar­lega hratt þar á und­an­förnum árum, og hefur sala þaðan verið sífellt umfangs­meiri, meðal ann­ars til Banda­ríkj­anna. Kín­verjar segj­ast ekki hafa áhuga á tolla­stríði við Banda­ríkin, láta þó fylgja, að ef fari svo að hags­munir Kína séu skað­aðir, þá verði slíkum aðgerðum svarað.

Trump hefur sagt, að næst geti bíla­fram­leið­endur í öðrum löndum, í Evrópu og Asíu, fengið að finna fyrir tollum og ýmis konar höftum. Með það að mark­miði að styrkja bíla­iðn­að­inn heima fyrir.

Óbein áhrif á Íslandi?

Í ljósi þessa geti hinir nýju tollar haft mikil áhrif á banda­rískt efna­hags­líf, og einnig á heims­mark­að­inn. Óbein áhrif á Íslandi gætu komið fram í gegnum þróun heims­mark­aðs­verðs áls, þó erfitt sé að segja til um hver þró­unin verði.

Almennt er því spáð að eft­ir­spurn eftir áli muni vaxa tölu­vert á næstu árum, en megnið af áli sem fram­leitt er á Íslandi fer til kaup­enda í Evrópu.

Hergagnaframleiðendur ósáttir

Á meðal þeirra sem eru ósáttir við þessar aðgerðir Trumps og stjórnar hans, eru her­gagna­fram­leið­endur, en þeir telja að hækkun toll­anna geti leitt til kostn­að­ar­hækk­ana og erf­ið­leika í rekstr­inum. Í versta falli fær­ist við­skipti annað, sem síðan muni fækka störfum og leiða til verri vanda­mála.

Trump heldur sig þó við þessa sýn; Banda­ríkin verða að ná vopnum sínum með því að beita tollum og höftum, til að „vernda“ störf í heima­land­inu og örva banda­ríska hag­kerfið. Hann telur þessa nálgun á efna­hags­málin vera þá skyn­sam­leg­ustu, hvað sem aðrir hafa um það að segja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár