Hafnaði lögbanni á Stundina

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur hafnað stað­fest­ingu á lög­banni Glitnis HoldCo á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar.

Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjórar Stundarinnar við dómsuppkvaðninguna í héraðsdómi í dag.
Jón Trausti Reyn­is­son og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjórar Stund­ar­innar við dóms­upp­kvaðn­ing­una í hér­aðs­dómi í dag. Mynd: Bára Huld Beck.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði því að stað­festa lög­bann sem sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu setti á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar upp úr gögnum innan úr þrota­bús Glitnis. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm þess efnis rétt í þessu.

Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík féllst þann 16. októ­ber síð­ast­lið­inn á lög­banns­kröfu þrota­bús­ins, Glitnis HoldCo gegn frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar og Reykja­vik Media, sem er í eigu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, með þeim afleið­ingum að bann var sett á frétta­flutn­ing­inn upp úr gögn­unum, en meðal þess sem finna má í gögn­unum eru upp­lýs­ingar um einka­mál­efni veru­legar fjölda fyrr­ver­andi við­skipta­vina Glitnis. Á meðal þess sem fjallað hefur verið um ítar­lega eru fjár­mál Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Glitnir HoldCo taldi að upp­lýs­ing­arnar væru bundnar banka­leynd.

Kjarninn rifj­aði upp for­sögu máls­ins fyrr í dag sem lesa má hér.

Í for­sendum dóms hér­að­dóms segir meðal ann­ars að Stundin hafi með umfjöllun sinni um mál­efni þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bjarna Bene­dikts­sonar og ann­arra ekki gengið nær einka­lífi þeirra sem um ræddi en óhjá­kvæmi­legt hafi verið í opin­berri umræðu í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi um mál­efni sem varðar almenn­ing og að nægar ástæður hafi þar af leið­andi verið fyrir hendi sem rétt­lættu birt­ingu þess­ara skrifa. Engu breyti þar um hvernig gögnin komust í hendur þeirra né heldur að í þeim séu upp­lýs­ingar sem und­ir­orpnar séu banka­leynd.

Í dómnum segir orð­rétt um þetta: „Ljóst er að umfjöllun um við­skipta­leg umsvif þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og ann­arra, þar sem meðal ann­ars var vikið að áhættu­sömum fjár­fest­ingum sem ekki skil­uðu til­ætl­uðum árangri eru þáttur í umfjöllun fjöl­miðla um afleið­ingar útlána­stefnu íslenskra við­skipta­banka og áhættu­sækni íslenskra fjár­festa, sem kann að hafa átt þátt í því hvernig fór. [...] getur skerð­ing á frelsi fjöl­miðla til að fjalla um slík mál­efni ekki talist nauð­syn­leg í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi. Gildir þá einu þótt umfjöll­unin byggi á gögnum sem und­ir­orpin eru trún­aði og að birtar hafi verið upp­lýs­ingar sem gangi nærri frið­helgi einka­lífs til­greindra ein­stak­linga. Hvað varðar umfjöllun stefnda, Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf., um mál­efni ann­arra ein­stak­linga en þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þá eru umræddir ein­stak­lingar ýmist tengdir þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra fjöl­skyldu­böndum eða gegnum við­skipti, auk þess sem þeir höfðu á þeim tíma sem umfjöll­unin tók til tengsl við Glitni hf. Er það mat dóms­ins að umfjöllun um mál­efni þeirra hafi verið svo sam­ofin frétta­efn­inu í held að ekki verði greint á milli [...]. Þá verða ekki dregnar þær álykt­anir af umfjöllun stefnda, Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf., að ætl­unin sé að fjalla um mál­efni handa­hófs­kenndra ein­stak­linga sem ekki eigi erindi til almenn­ings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár