Glitnir HoldCo og Stundin - Baráttan um birtingu

Í dag mun koma í ljós hvort lög­bann á birt­ingu Stund­ar­innar og Reykja­vík Medi­a ehf. á fréttum eða annarri umfjöllun sem byggja á eða eru unnar úr gögnum er varða fyrr­ver­andi við­skipta­vina Glitn­is muni halda. Kjarninn rifj­aði upp málið.

Dómur verður kveð­inn upp í máli Glitnir HoldCo gegn Útgáfu­fé­lagi Stund­ar­innar og Reykja­vik Media, sem er í eigu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­son­ar, í hádeg­inu í dag. Forsaga máls­ins er sú að sýslu­mað­ur­­inn í Reykja­vík féllst á lög­banns­kröfu þrota­­bús Glitn­is þann 16. októ­ber síð­ast­lið­inn með þeim afleið­ingum að bann var sett á frétta­­flutn­ing Stund­­ar­inn­ar og Reykja­vík Media, sem bygg­ir á gögn­um inn­­an úr fallna bank­an­­um.

Glitnir HoldCo ehf., eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitn­is, fór fram á það þann 10. októ­ber við sýslu­manns­emb­ættið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að lög­bann verði lagt við birt­ingu Stund­ar­innar og Reykja­vík Medi­a ehf. á fréttum eða annarri umfjöllun sem byggja á eða eru unnar úr gögnum er varða einka­mál­efni veru­legs fjölda fyrr­ver­andi við­skipta­vina Glitn­is. Á meðal þeirra sem fjallað hefur verið ítar­lega um er Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Glitnir Holdco taldi að upp­lýs­ing­arnar væru bundn­ar ­banka­leynd.

Glitnir hafði ráðið breska lög­manns­stofu til að gæta hags­muna sinna ­vegna umfjöll­unar The Guar­dian sem byggir á sömu gögn­um. Glitnir hafði jafn­framt til­kynnt umrætt brot til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem fer með rann­sókn ­máls­ins.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hætti aftur á móti rann­sókn á leka úr bank­anum þann 18. jan­úar síð­ast­lið­inn. Fjár­mála­eft­ir­litið kærði lek­ann til emb­ætt­is­ins eftir að fréttir fóru að birt­ast sem byggja á gögnum úr lek­anum. Milli 20 og 30 manns voru teknir til skýrslu­töku meðan á rann­sókn máls­ins stóð en það skil­aði engum upp­lýs­ingum um hver hefði dreift upp­lýs­ing­unum úr Glitni né hver eða hverjir hefðu komið gögnum til fjöl­miðla. Málið var því fellt niður.

Viðskipti Bjarna til umfjöllunar

Umfjöllun Stund­ar­inn­ar, Reykja­vik Media og The Guar­dian hófst með því að sagt var frá því 6. októ­ber síð­ast­lið­inn að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefði selt all­ar eign­ir sín­ar í Sjóði 9 hjá Glitni, fyrir um 50 millj­­ónir króna, dag­ana fyr­ir banka­hrun­ið. Í des­em­ber árið 2016 hafði Bjarni verið spurður í sjón­varps­þætti á Stöð 2 út í eign sína í Sjóði 9 og hvort hann hefði selt. Þá svar­aði hann því til að hann hefði ekki átt neitt sem skipti máli í sjóðn­um.

Í umfjöllun Stund­ar­innar hefur einnig verið fjallað um tveggja millj­arða króna kúlu­lán sem eign­ar­halds­fé­lag Bjarna og náinna fjöl­skyldu­með­lima hans fengu til að kaupa allt hlutafé í N1, 50 milljón króna kúlu­lána­skuld hans sem var færð yfir á skuld­sett eign­ar­halds­fé­lag Bjarna sem var síðan slitið og um að vitn­is­burður Bjarna í Vafn­ings­mál­inu svo­kall­aða stang­ist á við þau gögn sem Stund­in, Reykja­vik Media og The Guar­dian hafa undir hönd­um. Þá hefur Stundin einnig greint frá því að gögnin sem mið­ill­inn hafi undir höndum sýni að Bjarni hafi verið virkur þátt­tak­andi í við­skiptum aflands­fé­lags­ins Falson, sem hann átti hlut í.

Umfjöllun ætti erindi til almennings

Jón Trausti Reyn­is­son, annar rit­stjóra Stund­ar­inn­ar, var afar ósáttur við lög­bannið. Hann sagði að lög­bannið hefði þær afleið­ingar að Stundin mætti ekki vinna fréttir upp úr gögn­unum og gæti því ekki birt frek­ari fréttir um mál, þar til réttaró­vissu um heim­ild til þess hefði verið eytt. Ljóst var að nið­ur­staða myndi ekki fást í málið fyrr en eftir alþing­is­kosn­ing­arnar í októ­ber.

Jón Trausti sagði að öllum kröfum Glitnis Holdco hefði verið kröft­ug­lega mót­mælt af Stund­inni, enda ætti umfjöll­unin erindi við almenn­ing. Hún fjall­aði um sam­spil við­skipta og stjórn­mála í aðdrag­anda hruns­ins.

Hann sagði enn fremur að aðgerðir eins og þessar „hættu­legar í lýð­ræð­in­u“, og hann taldi að dóm­stólar myndu ekki fall­ast á þessa heftun á tján­ingar­frels­inu þegar á reynir.

Glitnir HoldCo höfð­aði síðan þann 23. októ­ber síð­ast­lið­inn stað­fest­ing­ar­mál vegna lög­banns­ins og var fyr­ir­takan í mál­inu tæpum tveimur mán­uðum síðar. Aðal­með­ferðin fór fram í byrjun jan­úar á þessu ári.

Glitni væri tilkynnt ef birting stæði til

Eftir umfjöllun Kjarnans sem einnig var unnin upp úr Glitn­is­gögn­unum barst Kjarn­anum bréf þann 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn frá Ólafi Eiríks­syni, lög­manni hjá LOGOS lög­manns­stofu, fyrir hönd Glitnis HoldCo. Í bréf­inu var því haldið fram að óheim­ilt væri að birta gögn eða upp­lýs­ingar úr gögnum sem Kjarninn byggði á. Ólafur sagði í bréf­inu að umbjóð­andi hans teldi birt­ingu frétta­skýr­ing­ar­innar vera ólög­mæta og brjóta í bága við þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Í frétta­skýr­ing­unni kom fram að hún væri unnin upp úr skýrslu KPMG, skýrslu Ernst & Young, skýrslum frá Kroll og sam­an­tekt frá LEX. Allt væru þetta aðilar sem unnu fyrir skila­nefnd Glitnis við að rann­saka fjár­magns­flutn­inga og við­skipti innan hans í kringum banka­hrunið.

[links]Í bréfi lög­manns­ins var bent á að fyrir lægi lög­bann, sem sett var á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media upp úr gögnum frá Glitni í októ­ber, við birt­ingu gagna og upp­lýs­inga er byggja á gögnum sem bundin væru trún­aði.

Í ljósi þessa fór LOGOS, fyrir hönd Glitnis HoldCo, fram á við Kjarnann að hann veitti í fyrsta lagi upp­lýs­ingar um hvort frek­ari birt­ing úr umræddum gögnum væri fyr­ir­huguð. Hér var átt við allar fréttir sem byggja á upp­lýs­ingum og/eða gögnum frá Glitni eða úr kerfum þess. Í öðru lagi var þess farið á leit við Kjarnann að ef frek­ari birt­ing úr fram­an­greindum gögnum væri fyr­ir­huguð um umbjóð­anda þeirra, Glitni, væri til­kynnt fyrir fram með tveggja sól­ar­hringa fyr­ir­vara að slík birt­ing stæði til.

Í nið­ur­lagi bréfs­ins sagði að Glitnir HoldCo áskilji sér rétt til að grípa til allra lög­mæta aðgerða vegna birt­ingar Kjarnans á umræddum trún­að­ar­upp­lýs­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár