Útlendingum fjölgaði um tæplega átta þúsund á árinu 2017

Alls fluttu 7.910 fleiri útlend­ingar til Íslands en frá land­inu í fyrra. Þeim fjölg­aði um 25 pró­sent. 78 pró­sent af allri fjölgun hér­lendis á árinu 2017 var vegna útlend­inga. Um síð­ustu ára­mót voru erlendir rík­is­borg­arar 37.950 tals­ins.

Þúsundir erlendra ríkisborgara ákveða á ári hverju að koma til Íslands og setjast þar að, að minnsta kosti um stundarsakir.
Þúsundir erlendra rík­is­borg­ara ákveða á ári hverju að koma til Íslands og setj­ast þar að, að minnsta kosti um stund­ar­sakir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á árinu 2017 voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar sem fluttu til Íslands 7.910 fleiri en brott­fluttir. Alls fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi um 25 pró­sent á síð­asta ári. Þeim hefur fjölgað um 81 pró­sent frá byrjun árs 2011 og eru nú 37.950 tals­ins. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.

[links]Lands­mönnum fjölg­aði um 10.130 á árinu 2017 og eru nú 348.580. Það þýðir að 78 pró­sent þeirrar fjölg­unar er vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til lands­ins.

Sprenging í fyrra

Í lok árs 2011 voru erlendir rík­is­borg­arar sem bjuggu á Íslandi 20.957 tals­ins. Þeim hafði fækkað árin á undan í ljósi þess að hrunið hafði skilið eftir sig atvinnu­leysi sem slag­aði upp í tveggja stafa tölu, verð­bólgu sem fór hæst upp í um 18 pró­sent og tug­pró­senta geng­is­fall íslensku krón­unn­ar.

Síðan þá hefur þeim fjölgað ár frá ári, en þó aldrei jafn mikið og í fyrra. Á árinu 2017 einu saman fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum meira en á þeim fjórum árum sem á undan komu til sam­ans. Frá byrjun árs 2014 og til byrjun árs 2017 fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum um 7.690 tals­ins, eða um 220 færri en fjölg­unin nam á síð­asta ári.

Í byrjun árs 2017 voru erlendir rík­is­borg­arar 30.380. Eru nú 37.950. Á árinu 2017 fjölg­aði þeim því, líkt og áður sagði, um 25 pró­sent. Erlendir rík­is­borg­arar eru nú 10,9 pró­sent allra sem búa hér­lendis.

[adspot]Frá byrjun árs 2011 hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 81 pró­sent. Flestir þeirra sem hingað flytja eru á aldr­inum 20-29 ára. Í fyrra fluttu 3.230 erlendir rík­is­borg­arar úr þeim ald­urs­hópi til lands­ins. Næst flestir voru á fer­tugs­aldri, eða 2.040.

Alls fluttu 11.650 erlendir rík­is­borg­arar til Íslands í fyrra, en 3.740 slíkir fluttu frá land­inu. Það þýðir að 7.910 fleiri erlendir rík­is­borg­arar fluttu til lands­ins en frá því á árinu 2017.

Á sama tíma fluttu 360 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar til þess umfram þá sem fluttu í burtu. Það er fyrsta árið frá því fyrir hrun sem fleiri Íslend­ingar flytja heim en í burtu frá land­inu.

Fjölgun umfram spár

Í mann­fjölda­spá Hag­stofu Íslands, sem birt var síðla árs 2017, er því spáð, sam­kvæmt mið­spá, að alls muni aðfluttum íbúum á Íslandi umfram brott­flutta fjölga um 23.385 frá byrjun árs 2017 og til loka árs 2021. Sam­kvæmt háspá yrði sá fjöldi 33.734. Þeir eru nær ein­vörð­ungu erlendir rík­is­borg­ar­ar. Erlendum rík­is­borg­urum sem hér búa ætti því að fjölga um 77-111 pró­sent á fimm ára tíma­bili.

Spáin van­á­ætlar samt sem áður fjölgun útlend­inga á síð­asta ári. Í mið­spá hennar var gert ráð fyrir að aðfluttir umfram brott­flutta yrðu 5.119 á árinu 2017. Þeir voru hins vegar 7.910, eða 55 pró­sent fleiri en spáin gerði ráð fyrir.

Ástæða þess að útlend­ingum hér­lendis fjölgar svona mikið er auð­vitað efna­hags­upp­sveifl­an. Á Íslandi verða til mörg þús­und störf á ári í tengslum við ferða­þjón­ustu, bygg­inga­vinnu og aðra afleidda þjón­ustu. Flest störfin eru lág­launa­störf og ekki er til vinnu­afl hér­lendis til að anna eft­ir­spurn eftir starfs­fólki. Þess vegna flykk­ist erlent vinnu­afl hingað til að vinna þessi störf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár