Fjöldi þeirra sem sóttu um hæli á Íslandi í ár er nánast sá sami og í fyrra

Útlit er fyrir að fjöldi hæl­is­leit­enda hér­lendis á þessu ári verði nán­ast sá sami og hann var í fyrra. Búist hafði verið við mun fleirum. Alls hafa fimm fleiri fengið hæli á árinu 2017 en fengu árið 2016.

Langflestir þeirra sem fá hæli hérlendis koma frá Afganistan, Írak eða Sýrlandi.
Lang­flestir þeirra sem fá hæli hér­lendis koma frá Afganistan, Írak eða Sýrlandi. Mynd: EPA

Alls fengu 115 flótta­menn hæli á Íslandi á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins. Það eru fimm fleiri en fengu hæli hér­lendis á öllu árinu 2016, þegar 110 manns fengu slíkt. Alls hafa 1.033 sótt um hæli hér­lendis það sem af er ári en þeir voru 1.130 í fyrra. Það stefnir því í að fjöldi hæl­is­leit­enda hér­lendis verði nán­ast sá sami 2017 og hann var árið 2016. Þetta kemur fram í tölum sem Útlend­inga­stofnun birti í gær.

[links]Af þeim 115 sem hafa fengið hæli hér­lendis það sem af er ári komu 25 frá Afganistan, 34 frá Írak og 13 frá Sýrlandi. Það þýðir að tæp­lega tveir af hverjum þremur sem fengið hafa hæli hér­lendis á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins hafa komið frá þessum þremur löndum.

Þeim hæl­is­leit­endum sem eru í þjón­ustu sveit­ar­fé­laga eða Útlend­inga­stofn­unar hefur fækkað mikið á þessu ári. Þeir voru 820 í byrjun des­em­ber 2016 en 559 í byrjun yfir­stand­andi mán­aðar. Það þýðir að hæl­is­leit­endum sem eru á for­ræði ríkis eða sveit­ar­fé­laga hefur fækkað um tæpan þriðj­ung á einu ári. Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá fram­færslu­eyri. Hann er átta þús­und krónur fyrir ein­stak­ling á viku en 23 þús­und krónur hjá fjög­urra manna fjöl­skyldu. Auk þess fær hver full­orð­inn hæl­is­leit­andi 2.700 krónur í vasa­pen­ing á viku og for­eldrar fá við­bótar þús­und­ krónur fyrir hvert barn.

[adspot]Flestir þeirra sem sóttu um hæli hér­lendis á árinu 2017 komu frá Georgíu (286 manns) og Albaníu (251 manns). Bæði ríkin eru á lista yfir örugg ríki þar sem grund­vall­ar­mann­rétt­indi eru almennt talin virt. Þeim sem sækja um hæli frá þessum ríkjum er yfir­leitt ekki veitt hæli hér­lendis.

2,7 milljarðar til hælismála á næsta ári

Fjöldi hæl­is­leit­enda hér­lendis jókst mikið í fyrra. Í upp­gjöri rík­is­sjóðs vegna fyrstu sex mán­aða árs­ins 2017 kom fram að hrein útgjöld vegna rétt­inda ein­stak­l­inga hafi verið 2,2 millj­­­arðar króna sem var 1.251 millj­­­ónum meira en áætlað var. Þar sagði: „Í fjár­­­heim­ildum vegna árs­ins 2017 voru veru­­­lega van­á­ætl­­­aðar í fjár­­­laga­­­gerð fyrir árið 2017 í ljósi for­­­dæma­­­lausrar fjölg­unar hæl­­­is­um­­­sókna á síð­­­­­ustu mán­uðum árs­ins 2016. Kostn­aður vegna þess­­­ara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfir­­­stand­andi ári.“ Hluti þess við­bót­ar­kostn­aðar var því vegna kostn­aðar sem féll til á árinu 2016 en hafði ekki verið gert ráð fyrir í fjár­lögum.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í októ­ber þar sem hann sagði að kostn­aður vegna hæl­is­leit­enda hér­lendis gæti farið í sex millj­arða króna á ári og jafn­vel í 220 millj­arða króna á ári miðað við sviðs­myndir sem settar hefðu verið fram.

Samkvæmt fjár­heim­ild til útlend­inga­mála í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018 er reiknað með að heild­ar­fram­lög til hæl­is­mála verði um 2,7 millj­arðar króna á næsta ári, sem er helm­ingi lægri upp­hæð en lægri mörk þess bils sem Ásmundur nefndi í grein sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár