Stærstu lífeyrissjóðirnir ekki með tapstöðu í Högum

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga rúm­lega þriðj­ungs­hlut í Högum. Þeir keyptu stærstan hluta bréfa sinna þegar gengi Haga var mun lægra en það er í dag.

Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins, er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni. Alls reka Hagar 50 verslanir innan fimm smásölufyrirtækja og fjögurra vöruhúsa.
Bónus, stærsta versl­un­ar­keðja lands­ins, er krúnu­djá­snið í Haga­sam­stæð­unni. Alls reka Hagar 50 versl­anir innan fimm smá­sölu­fyr­ir­tækja og fjög­urra vöru­húsa. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Virði hluta­bréfa í smá­söluris­anum Högum hefur hríð­fallið und­an­farnar vikur. Frá því um miðjan maí­mánuð hefur gengi bréfa félags­ins lækkað um 35 pró­sent og mark­aðsvirði þess dreg­ist saman um tæpa 23 millj­arða króna.

Ástæðan er inn­koma alþjóð­lega stór­fyr­ir­tæk­is­ins Costco á íslenskan dag­vöru­markað. Frá því að Costco hóf starf­semi 23. maí hafa Hagar tví­vegis sent frá sér afkomu­við­vörun vegna sam­dráttar í sölu sem rak­inn er til breyt­inga á mark­aðnum.

[links]Stærstu eig­endur Haga eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Þeir eiga um helm­ing hluta­bréfa í félag­inu beint eða óbeint og virði hlutar þeirra hefur dreg­ist saman um nálægt tólf millj­arða króna á þremur mán­uðum. Og þrír stærstu sjóðir lands­ins eru þar umsvifa­mestir, líkt og í mörgum öðrum skráðum félögum. Mark­aðsvirði bréfa þeirra í Högum hefur dreg­ist saman um tæpa átta millj­arða króna frá því um miðjan maí. Mikil gagn­rýni hefur verið sett fram á sjóð­ina fyrir að taka þátt í áhættu­sömum hluta­bréfa­við­skiptum og margir gagn­rýnendur nota stöðu Haga sem dæmi um slík við­skipti. En hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir tapað á við­skiptum sínum með hluti í Högum?

Gildi var með frá upphafi

Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga sam­tals rúm­lega þriðj­ungs­hlut í Högum, eða 33,88 pró­sent. Þeir eru Gildi Líf­eyr­is­sjóður (á 12,95 pró­sent), Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (A-deild hans á 10,24 pró­sent hlut og B-deildin 3,53 pró­sent) og Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna (á 10,24 pró­sent).

Hagar voru fyrsta félagið sem skráð var á markað eftir hrunið. Hópur fjár­festa sem fékk að kaupa alls 44 pró­sent hlut í félag­inu fyrir skrán­ingu greiddi 10 krónur á hlut fyrir 34 pró­sent og 11 krónur fyrir við­bótar tíu pró­sent. Samtals greiddi hóp­ur­inn 5,4 millj­arða króna fyrir þennan 44 pró­senta hlut.

Í hópnum voru m.a. nokkrir líf­eyr­is­sjóðir. Stærstur þeirra var Gildi, sem átti með beinum hætti 8,6 pró­sent hlut þegar Hagar voru skráðir á markað. Fyrir þann hlut greiddi Gildi rúm­lega einn millj­arð króna. Gengi bréfa í Högum við opnun mark­aða í dag var um 36,5 krónur á hlut. Virði þess hlutar sem Gildi keypti í upp­hafi, og hefur haldið á alla tíð síðan þá, er um 3,8 millj­arðar króna miðað við skráð gengi Haga í dag. Því væri ágóði Gildis af upp­haf­legri fjár­fest­ingu sjóðs­ins í Högum, ef hann seldi öll þau bréf í dag, um 2,8 millj­arðar króna.

Gildi hefur hins vegar bætt við sig hlutum í Högum síðan þá á hærra verði. Í lok árs 2012 átti sjóð­ur­inn 10,3 pró­sent og ári síðar 10,8 pró­sent hlut. Þannig hélst eign­ar­hlutur Gildis fram á þetta ár. Gengi Haga á árinu 2012, þegar Gildi bætti stærstu við­bót­inni við sig, var 16,45 krónur á hlut í upp­hafi árs en 22,48 krónur á hlut í lok þess. Þ.e. langt undir því gengi sem er á bréf­unum í dag. Þessi kaup hafa því líka skilað sjóðnum bók­halds­legum hagn­aði.

[adspot]Á þessu ári fór Gildi svo að bæta við sig hlutum í Högum. Fyrst í mars­mán­uði þegar eign­ar­hlutur sjóðs­ins fór upp í 11,9 pró­sent. Síðan aftur í júní­mán­uði, nokkrum vikum eftir að Costco opn­aði sína verslun, og eign­ar­hlut­ur­inn fór upp í 12,95 pró­sent, þar sem hann stendur í dag. Áætla má að Gildi hafi greitt á bil­inu 1,1-1,2 millj­arða króna fyrir þessa hluti. Ef sjóð­ur­inn seldi þá alla í dag fengið hann um 926 millj­ónir króna fyrir þá. Tapið er því ekki umtals­vert í stóra sam­heng­inu og ljóst að Gildi hefur hagn­ast mjög vel á fjár­fest­ingu sinni í Högum heilt yfir.

Hagnaður hjá hinum líka

LSR er næst stærsti eig­andi Haga í dag. Sjóð­ur­inn var ekki á meðal þeirra sem fjár­festu mikið í félag­inu við skrán­ingu. Hann var raunar ekki á meðal 20 stærstu hlut­hafa Haga í lok árs 2011. Það breytt­ist á fyrri hluta árs­ins 2012 og í mars það ár var eign­ar­hlutur A-deildar LSR kom­inn í 6,2 pró­sent. Um helm­ingur þess hlutar var keyptur á rúm­lega 17 krónur á hlut. Hinn hlut­inn, miðað við skráð gengi, hefur verið keyptur á geng­inu 16-17 krónur á hlut. Kaup­verðið hefur verið í kringum 1,2 millj­arða króna.

Í lok árs 2012 var eign­ar­hlutur LSR kom­inn í 8,4 pró­sent. Ári síðar var eign­ar­hlut­ur­inn kom­inn í 9,4 pró­sent. Hann hefur að mestu hald­ist í kringum þá hlut­deild síðan, eða þangað til að sjóð­ur­inn bætti lít­il­lega við sig hlut í ár, 2017. Eign­ar­hlutur A-deild­ar­innar er nú 10,24 pró­sent. B-deild sjóðs­ins á síðan 3,53 pró­sent hlut, en hún átti 4,9 pró­sent hlut í árs­lok 2012, þegar gengi bréfa í Högum var rúm­lega tvö­falt lægra en það er í dag.

Sam­an­dregið þá liggur fyrir að LSR hefur hagn­ast á fjár­fest­ingu sinni í Högum.

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna var einnig lengi í gang við kaup á bréfum í Högum. Sjóð­ur­inn átti 0,72 pró­sent hlut í árs­lok 2011 og bætti við sig hægt og rólega næstu árin. Í árs­lok 2013 var hlut­ur­inn orð­inn 4,8 pró­sent og í lok árs 2014 8,2 pró­sent. Seinni hluta þess árs var gengi bréfa í Högum svipað og það er í dag. Versl­un­ar­menn hafa síðan selt hluta af bréfum sínum í Högum á árinu 2016 og það sem af er ári. Þær sölur eru með hagn­aði. Þeir eiga nú 7,16 pró­sent hlut og ljóst að sjóð­ur­inn hefur hagn­ast á fjár­fest­ingu sinni í smá­söluris­anum. Að minnsta kosti eins og staðan er í dag.

Arðgreiðslur og endurkaup

Hagar hafa greitt niður lán á und­an­förnum árum langt umfram lána­samn­inga. Það hefur skilað sér í því að skuldir félags­ins hafa lækkað gríð­ar­lega á skömmum tíma. Á rekstr­ar­ár­inu 2011/2012 vor­u ­nettó vaxat­ber­andi skuldir Haga 8,4 millj­arðar króna. Í lok síð­asta rekstr­ar­ár­s, ­sem lauk í febr­úar 2017, voru þær orðnar 1.279 millj­ónir króna. Eigið fé félags­ins var á sama tíma 17,4 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 57,8 pró­sent. Þessi mikla áhersla á nið­ur­greiðslu skulda skil­aði sér í því að eig­in­fjár­staða Haga er nú 11,2 millj­örðum krónum betri en hún var í lok rekstr­ar­árs­ins 2011/2012.

Það varð til þess að stjórn Haga sam­þykkti nýja arð­greiðslu­stefnu á aðal­fundi í apríl í fyrra sem fól í sér að lögð yrði áhersla á að félagið skili til hlut­hafa sinn þeim verð­mætum sem skap­ast í rekstr­inum á hverju ári. Áfram yrði stefnt að því að Hagar greiði hlut­höfum sínum arð sem nemi að lág­marki 50 pró­sent hagn­að­ar­ næst­lið­ins rekstr­ar­árs, líkt og gert hafði verið und­an­farin ár. Að auki myndi ­fé­lagið kaupa eigin bréf og kaupa fast­eignir á hag­stæðu verði sem nýt­ast ­fé­lag­inu í starf­semi sinni. Á síð­asta rekstr­ar­ári keypti félagið bréf af hlut­höfum sínum fyrir einn millj­arð króna og frá því að félagið var skráð á markað hefur það greitt um 6,4 millj­arða króna í arð til hlut­hafa sinna. Stór hluti þeirra arð­greiðslna hefur runnið til íslenskra líf­eyr­is­sjóða í hlut­hafa­hópnum.

Stærstu sjóðir lands­ins hafa því ekki tapað á fjár­fest­ingu sinni í Högum, þótt að mark­aðsvirði eignar þeirra hafi dreg­ist umtals­vert saman á und­an­förnum mán­uðum. Þvert á móti myndu þeir allir hafa hagn­ast veru­lega á fjár­fest­ing­unni ef þeir seldu bréf sín í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár