Vill að lífeyrissjóðir fjárfesti meira erlendis

Benedikt Jóhann­es­son segir að það komi til greina að þrýsta íslensku líf­eyr­is­sjóð­unum í frek­ari erlendar fjár­fest­ingar ef þeir færi sig ekki í slíkar í auknum mæli sjálfir. Hlutfall þeirra sé um 20 pró­sent af heild­ar­eignum en ætti að vera um 50 pró­sent.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það komi vel til greina að grípa til aðgerða við að þrýsta íslenskum líf­eyr­is­sjóðum í frek­ari erlendar fjár­fest­ingar ef þeir hreyfi sig ekki sjálfir í þá átt. „Almennt talað er betra að þeir sjái sér hag í því sjálfir og það er skyn­sam­legt fyrir þá að fara í meiri fjár­fest­ingar erlendis út frá áhættu­dreif­ing­ar­sjón­ar­miði,“ segir Benedikt. [links]

Líf­eyr­is­sjóð­irnir gátu nán­ast ekk­ert fjár­fest erlendis eftir að höft voru sett á hér­lendis í lok árs 2008. Fyrir vikið eru þeir gríð­ar­lega umsvifa­miklir í íslensku atvinnu­lífi og eiga m.a., beint og óbeint, yfir helm­ing skráðra hluta­bréfa. Sjóð­irnir byrj­uðu að fá und­an­þágur á árinu 2015 til að fjár­festa tak­mark­aðar upp­hæðir utan hafta og eftir að höft voru losuð að mestu fyrr á þessu ári þá geta líf­eyr­is­sjóðir fjár­fest mun meira erlendis en þeir hafa gert hingað til.

Í byrjun árs 2017 var hlut­fall eigna þeirra erlendis 22,6 pró­sent að með­al­tali en sam­kvæmt tölum Seðla­banka Íslands hafa þær dreg­ist saman á und­an­förnum mán­uðum. Sá sam­dráttur er þó nær örugg­lega ein­vörð­ungu vegna styrk­ingu krón­unnar. [adspot]

Sér­fræð­ingar hafa bent á að hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­i­s­jóða­kerf­is­ins ætti að vera á bil­inu 35-45 pró­sent út frá áhættu­dreif­ing­ar­sjón­ar­miði. Auk þess er ljóst að það myndi vinna gegn frek­ari styrk­ingu krón­unnar ef sjóð­irnir myndu fjár­festa meira erlendis.

Benedikt seg­ist telja að hlut­fall þeirra í erlendum eignum ætti að vera nálægt 50 pró­sent, og því sé langt í land að það sé ásætt­an­legt. „Hlutfall þeirra í t.d. inn­lendum hluta­bréfum er orðið óþægi­legt félags­lega. Ég held að það væri heil­brigt að þeir færu meira út og að almenn­ingur færi að huga meira að því að dreifa sinni áhættu með gjald­eyr­is­reikn­ingum. Ég er ekki að tala um að menn ættu að fara með pen­inga til Panama, heldur að opna slíka reikn­inga í íslenskum bönkum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár