Dómsmálaráðherra þarf að íhuga stöðu sína ef dómsmál tapast

Vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar segir að Sigríður Á. Andersen verði að vega og meta það alvar­lega hvort henni sé stætt að sitja áfram ef fyr­ir­huguð dóms­mál gegn henni og rík­inu vegna vals á dóm­urum í Lands­rétt tap­ist.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra verður að vega og meta mjög alvar­lega hvort henni sé stætt að sitja áfram í emb­ætti ef nið­ur­staða dóm­stóla verður sú að hún hafi beitt ómál­efna­legum sjón­ar­miðum við til­nefn­ingu dóm­ara í Lands­rétt. Þetta segir Jón Steindór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut sem skipan dóm­ara í Lands­rétt verður til umfjöll­unar. Þátt­ur­inn verður frum­sýndur klukkan 21:30 í kvöld.

[links]

Dómnefnd hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að 15 af 33 umsækj­endum væru hæf­astir í þau 15 emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem í boði eru. Sigríður ákvað að breyta röðun list­ans með þeim hætti að fjórir sem dóm­nefnd til­nefndi hurfu af honum og fjórum öðrum var bætt við. Hún rök­studdi þessa ákvörðun sína með því að hún vildi gera dóm­ara­reynslu umsækj­enda hærra undir höfði. Stjórn­ar­and­staðan taldi að ráð­herr­ann hefði ekki rök­stutt breyt­ing­arnar sínar nægi­lega vel og vildi að ákvörðun í mál­inu yrði frestað þannig að hægt yrði að vinna það betur. Var það meðal ann­ars gert vegna harðrar gagn­rýni frá lög­mönnum sem skil­uðu umsögnum inn til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og vegna þess að rök­stuðn­ing­ur­inn gekk ekki upp ef hann miðað við stiga­gjöf dóm­nefndar fyrir dóm­ara­reynslu ein­vörð­ungu.

Málið var hins vegar sam­þykkt með atkvæðum stjórn­ar­liða ein­vörð­ungu. Einn þeirra umsækj­enda sem var fjar­lægður af list­anum, Ástráður Har­alds­son, hefur þegar til­kynnt að hann muni stefna íslenska rík­inu og ráð­herr­anum sjálfum vegna máls­ins og telur hana hafa brotið lög. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem einnig var fjar­lægður af list­anum, hefur einnig sagt að hann íhugi að leita réttar síns.

[adspot]

Jón Hösk­ulds­son hefur sömu­leiðis sagt að hann liggi undir feldi um næstu skref en Eiríkur Jónsson, sem dóm­nefndin mat sjö­unda hæf­asta umsækj­and­ann, hefur ekk­ert viljað láta hafa eftir sér opin­ber­lega um hvort hann ætli að höfða mál eða ekki.

Á ábyrgð dómsmálaráðherra

Jón Steindór segir að fyrir liggi að látið verði reyna á hvort emb­ætt­is­færsla Sigríðar hafi verið lög­leg eða ekki fyrir dóm­stólum. Það hafi reyndar legið fyrir að lík­lega yrði reynt á það líka ef listi dóm­nefndar hefði verið lát­inn standa óbreyttur. Jón Steindór segir að dóms­mála­ráð­herra hafi þegar lýst því yfir að hún beri póli­tíska ábyrgð á skip­un­inni og hann seg­ist sann­ar­lega vona að stjórn­ar­liðar hafi staðið rétt að ákvörð­un­inni. „Ef það hefur ekki verið gert þá er það á ábyrgð dóms­mála­ráð­herra“.

Aðspurður um hvernig hún ætti að axla þá ábyrgð segir Jón Steindór að komi það í ljós að ráð­herr­ann hafi beitt ómál­efna­legum sjón­ar­miðum við ákvörð­un­ar­töku sína „þá held ég að hún verði að hugsa mjög alvar­lega sinn gang.“

Aðspurður um hvað felist í segir Jón Steindór að ráð­herr­ann verði þá „að vega og mæta hvort honum sé stætt eftir það ef hann er dæmdur fyrir að hafa staðið ómál­efna­lega að til­nefn­ing­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár