Fjarskipti: Það verði ekki hópuppsagnir í tengslum við samrunann við 365

Fækka á stöðu­gildum hjá sam­ein­uðu félagi Fjar­skipta og 365 um 41, og sú fækkun á að eiga sér stað 365 megin. Fjar­skipti segja að þetta verði gert í gegnum starfs­manna­veltu á 12-18 mán­uðum. Fækkunin sparar 275 millj­ónir á ári.

Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone, vill koma því á fram­færi að ekki verði hóp­upp­sagnir í tengslum við sam­runa félags­ins og 365 miðla. Þeim stöðu­gildum sem fækkað verður, alls 41 tals­ins, verður fækkað í gegnum starfs­manna­veltu á 12-18 mán­aða tíma­bili en ekki með upp­sögnum.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að í trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem birtar voru í sam­runa­skrá félag­anna tveggja komi fram að „vegna sam­legð­ar­á­hrifa er það mat Fjar­skipta að stöðu­gildum á ein­ingum sem fær­ast yfir til Fjar­skipta hf. frá 365 muni fækka um 41.“ Þetta á að spara sam­ein­uðu félagi 275 millj­ónir króna á ári vegna sparn­aðar í launum og starfs­manna­kostn­aði.

[links]

Með sam­run­anum eykst velta Fjar­skipta um 8,5 millj­arða króna og stöðu­gildum á Íslandi fjölgar um 68 pró­sent, úr 305 stöðu­gildum í 512.

Í fyrstu útgáf­unni af sam­runa­skránni sem eft­ir­litið birti voru trún­að­ar­upp­lýs­ingar úr skránni aðgengi­leg­ar, þar á meðal upp­lýs­ingar um hversu mörg stöðu­gildi myndu hverfa við sam­run­ann. Ný útgáfa án trún­að­ar­upp­lýs­ing­anna var sett á vef­inn í stað hinnar síðar sama dag. Kjarn­inn hefur upp­runa­legu útgáf­una undir hönd­um og þar koma meðal ann­ars fram upp­lýs­ing­arnar um vænta fækkun stöðu­gilda og þann sparnað sem það á að skila. 

[adspot]

Stefán Sig­urðs­son, for­stjóri Fjar­skipta, sagði í Kast­ljósi 1. mars síð­ast­lið­inn að ekki stæði til að segja upp fólki. Þar sagði Stefán: „Við tökum alla starfs­menn­ina yfir.[...]Og í raun­inni verður engum sagt upp en við gerum ráð fyrir því að með tím­anum náum við þess­ari hag­ræð­ingu. Við tökum tólf til átján mán­uði í þetta. En þetta er ekki sam­ein­ing til að segja upp fólki heldur erum við að ná hag­kvæmi í tækni­legum innviðum, við munum ná hag­kvæmni í eig­in­lega öllum okkar stoð­ein­ingum með tím­anum en upp­sagnir eru ekki í deigl­unni.“

Í sam­runa­skránni segir að alls eigi að nást kostn­að­ar­sam­legð upp á rúman millj­arð króna. Af þeirri tölu á að nást fram 562 millj­óna króna í tækni­legri sam­legð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár