Kaupum á Birtingi rift

Slæm fjár­hags­staða Pressunnar er ástæðan fyrir því að kaupum á tíma­rita­út­gáf­unni Birt­ingin hefur verið rift. Rekstur Pressunnar er í molum.

Kaupum Pressunnar á öllu hlutafé tíma­rita­út­gáf­unnar Birtingi hefur verið rift. Ástæðan er slæmt fjár­hags­staða Pressunnar, en eins og greint var frá að vef Kjarnans í morgun þá hafa allir hlut­hafar, sem til­kynnt var um að myndu leggja félag­inu til um 300 millj­ónir króna, hætt við þátt­töku og er rekstur félags­ins nú í upp­námi.

Í bréfi sem sent var til starfs­fólks Birtings, segir að eig­endur Birtíngs ehf. hafi „kom­ist að sam­komu­lagi við eig­endur Pressunnar ehf um riftun á kaupum Pressunnar á öllu hlutafé í Birtíngi ehf. Aðilar und­ir­rit­uðu þessa riftun þann 10. maí síð­ast­lið­inn. Ástæða rift­un­ar­innar eru fyr­ir­sjá­an­legar van­efndir á greiðslu kaup­verðs vegna mjög slæmrar fjár­hags­stöðu Pressunnar ehf. Það verður því ekk­ert úr fyr­ir­hug­aðri sam­ein­ingu Birtíngs við sam­stæðu Pressunnar ehf. Birtíngur stendur eftir traustum fótum og er verið að tryggja fjár­hags­lega stöðu félags­ins.“

Félag í eigu Hall­­­dórs Krist­manns­son­ar, Róberts Wessman, Árna Harð­­­ar­­­son­­­ar, Hilm­­­­­ars Þórs Krist­ins­­­sonar og Jóhanns G. Jóhanns­­­son­­­ar, Fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagið Dal­­­ur­inn ehf., ætl­­aði að verða langstærsti eig­andi Pressunnar og koma inn með 155 millj­­­ónir króna af nýju hluta­fé.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans til­kynntu for­svars­menn þess félags núver­andi stjórn­endum Pressunnar í síð­ustu viku að þeir og aðrir sem ætl­uðu að koma inn í rekst­ur­inn sam­hliða þeim myndu draga sig út og að ekk­ert yrði að hluta­fjár­aukn­ing­unni.

Skuldir Pressunnar reynd­ust vera, þegar búið var að rýna í stöðu þess, rúm­lega 700 millj­ónir króna og að það var mat þeirra, sem ætl­uðu að koma að félag­inu, að sam­bæri­lega upp­hæð þurfi til að koma Pressu­sam­stæð­unni á réttan kjöl.

Af þessum skuldum séu um 300 millj­ónir króna við líf­eyr­is­sjóði, stétt­ar­fé­lög og vegna van­gold­inna opin­berra gjalda, svo­kall­aðra rimla­gjalda. Hin ætl­aða hluta­fjár­aukn­ing hefði því ekki dugað fyrir því að greiða þær skuld­ir, og hvað þá aðr­ar.

Þá átti auk þess eftir að taka inn í dæmið fjár­fest­ingu í rekstr­in­um, sem reiknað var með að þyrfti á ein­hverjum tíma­punkti að vera umtals­verð, sér­stak­lega í ljósi þess að búið var að skera rekstur rit­stjórna miðl­anna sem heyra undir sam­stæð­una „al­veg inn að bein­i,“ líkt og einn við­mæl­andi Kjarn­ans sagði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár